Árblaðið


Árblaðið - 09.12.1977, Blaðsíða 12

Árblaðið - 09.12.1977, Blaðsíða 12
BÖKUNARVÖRUR í ÚRVALI Á SÉRLEGA HAGSTÆÐU VERÐI Bílaleiga $ö(uská(inn Arnbergi Áhöid sf. Sími 1685 1 LEIGJUM ÚT: Opnar 15. desember 15. des. n.k. verður Jólasveina- þjónusta Ungmennafélagsins opn- uð. Hún verður til húsa í Tryggva- skála dagana 15.—20 des. og verð- ur opin kl. 18,00 til 20,00 sí síma 1475. Pessi þjónusta er þannig hugsuð að fólk getur pantað jólasvein í heimsókn með pakka handa börn- unum. Það fyrsta sem fólk gerir er að hafa samband við skrifstof- una og leggja inn pöntun, ásamt því sem afhenda á. Síðan kemur jólasveinninn askvaðandi með pakkana annað hvort á Porláks- messukvöld eða aðfangadagsmorg- un. Búist er við miklum önnum hjá jólasveinunum, því heyrst hef- ur að margi ætli að notfæra sér þetta nýmæli, og síðan hefur heyrst að börn hafi verið óvenju þæg að undanförnu, enda eins gott. Föstud. 9. desember 1977 2. tölublað — 1. árgangur MÚRHAMRA STEYPUHRÆRIVÉLAR SLÍPIROKKA MÁLARATRÖPPUR BORVÉLAR HJÓLSAGIR FLÍSASKERA O. M. FL. nlllllIlllllllllllllllllllllllllllllllllllllltlllllllllllllllllllllllllllllHIIIIHHIIHIItlllllllllllllllllllllllllllllllllllttllllllllrH Gegn bjórnum Aðalfundur Áfengisvarnarnefnd- ar Árnessýslu var haldinn í Hótel Selfoss 27. nóv. sl. Á fundinn mættu fulltrúar áfengisvarna- nefnda í sýslunni. Björn Stefánsson erindreki Áfengisvarnaráðs ríkisins flutti er- indi um störf ráðsins og áfengis- mál almennt. Jón Guðmundsson, yfirlögregluþjónn á Selfossi talaði um áfengið og umferðina. í ræðu Jóns kom fram að kærur vegna ölvunar á almannafæri væru 60 á 10 mánuðum af árinu og að á þessum tíma hefðu 148 verið sett- ir í fangelsi vegna ölvunar. Einnig sagði Jón að á árinu 1976 hefðu kærur vegna ölvunar við akstur Bæjartáknið. verið 94, en á 10 mánuðum þessa árs væru þær komnar yfir 100. Á fundinum var samþykkt áskorun til alþingismanna þess efnis að þeir leggðust gegn bjór- frumvarpinu, en fundarmenn voru sammála um að tilkoma bjórsins bætti ekki ástandið heldur yrði viðbót við það sem fyrir er. Leikhúsferð eldri borgara Miðvikudaginn 30. nóv. hélt 60 manna hópur á vegum Fé- lagsstarfs eldri borgara á Sel- fossi í leikhúsferð til Reykja- víkur, til að sjá ,,Skjaldhamra“ í Iðnó. Að sögn líkaði fólki leikurinn vel og hafði gaman af ferðinni. Sérlcyfisbílar Selfoss buðu eldri borgurunum ferð- irnar og eiga þeir þakkir skild- ar. Félagsstarf eldri borgara á Selfossi hefur nú starfað í næst- um ár, og hefur staðið fyrir leikhúsferðum, skemmtiferð, opnum húsi og á fimmtudögum í hverri viku eru samveru- stundir í Tryggvaskála ásamt föndri og öðru slíku. Selfoss- hreppur stendur fyrir félags- starfinu, mynduð var nefnd sjálfboðaliða til að sjá um framkvæmdir félagsstarfsins, og hefur sá hópur unnið óeigin- gjarnt starf ásamt fjölda ann- arra sjálfboðaliða. Kofi lil skammar Peir sem eiga leið um Aust- urveginn á móts við Tryggva- götu, komast ekki hjá því að reka augun í ferlega' ljótan kofa er þar stendur. Kofi þessi þjónaði einu sinni því hlutverki að vera griðarstaður fyrir skáta- hreyfingu staðarins. Á þeim tíma var kofanum allavega haldið í horfinu, þannig að hann var ekki til skammar, þótt hann hafi aldrei verið neitt augnayndi. í dag er þetta hús Selfossi hreinlega til stór skammar, og er eiginlega furðu- legt að kofinn hafi fengið að standa þetta lengi. Nú í nokkur ár hefur hús þetta ekkert verið notað, nema þá helst af næturhröfnum laug- ardagskvöldanna er þeir hafa svalað skemmdarfýsn sinni á kofagreyinu, og ber hann þá gjarnan merki þess næsta dag, hurðin uppsprengd, fjalirnar úr -gluggunum og veggirnir út- krassaðir. Ekki er nokkur vafi að Selfyssingar myndu fagna því ef þessi kofi yrði fjarlægð- ur og alveg er víst að bærinn mundi prýkka til muna. Húsið á horninu. \ R ll VI Austurvegi 22 - Selfossi % o u tf Símar. 1430 1630

x

Árblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árblaðið
https://timarit.is/publication/931

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.