Dagsbrún - 01.12.1941, Blaðsíða 4
ingurn til að fá gjöldjn greidd af'
kaupinu. Var það og álitið, að mik-
ill meirihluti félagsmanna teldi, að
rétt væri að þessu sinni, að nota
tækifærið til að ná samningsbundn-
um sumarleyfum, en ekki þess vert
að leggja út í deilu, sem að þessu
sinni yrði notað í landsmálunum
gegn verkalýðnum yfirleitt, í
flokkshagsmunaskyni, og auk þess
sem aðstaða stjórnar brezka setu-
liðsins, hefði þá að minsta kosti
orðið mjög tvísýn.
Félagsfund þótti ekki fært að
halda þá, vegna vandkvæða um
húsnæði, erida mundu tiltölulega
fáir félagsmenn, sem rúmuhust í
litlu húsnæði, ekki geta haft nein
úrslitaatkvæði um málið og óvíst
um fundarsókn.
Samtöl fóru síðan fram við at-
vinnurekendur og tjáðu þeir sig
fúsa til að semja um sumarleyfi, að
óbreyttum samningum að öðru
leyti. Var þá haldinn trúnaðarráðs-
fundur 29. október s.l. og félags-
stjórn gefið umboð til að semja um
sumarleyfin og segja ekki upp
gddandi samningum ef samkomu-
lag fengist um sumarleyfin, en
segja þeim upp ella eða við þá at-
vinnurekendur, er ekki vildu semja
um þau. Hinsvegar var á-
kveðið að félagsstjórn skyldi nota
þá aðstöðu sína, að til hennar þarf
að leita til að fá leyfi til nætur-
vinnu, til þess að setja þá jafnan
skilyrði um kaffitíma fyrir mið-
nætti, og ef unnið hefði verið um
daginn að matmálstími yrði kl. 7—
8 að kvöldi.
Tókust síðan samningar við
Vinnuveitendafélagið um sumar-
leyfin, elns og fara hér á eftir, 80.
október, en við brezka setuliðið 31.
október. Sagt var upp samningum
við Almenna byggingafélagið o. fl.
sem ekki vildu þegar í stað fallast
á viðbótarsamning, um sumarleyf-
in, en samningar hafa nú einnig tek-
ist við það og aðra slíka verktaka.
Með samningum þeim, sem nú
hafa verið gerðir, hefir Dagsbrún
fyrst allra verkamannafélaga feng-
ið samningsbundin ákvæði um sum-
arleyfi verkamanna með fullu dag-
kaupi, er þeir hafa unnið meira en
8 vikur samtals á árinu á sama stað,
og telst það vinnuvika, er minst 31
dagtími hefir verið unninn á vik-
unni, en sumarleyfin eru jafnt fyr-
ir fastamenn, sem dauglaunamenn
að öðru leyti. Fá verkamenn frá 1.
desember 1941 (ekki 1. febrúar
1942 er gömlu samningarnir gátu
runnið út) viðurkenningu fyrir unn-
inn tíma, sem þeir geta fengið
greitt út á kaup fyrir sumarleyfin
næsta sumar. Má vænta þess, að
þessi nýi réttur verkamanna til
sumarleyfa með kaupi muni héðan
af ávalt haldast og þróast. Væri
rétt af Dagsbrún að hafa undirbún-
ing undir það, að geta boðið með-
limum sínum ódýrar sumai’ferðir
og sumardvöl, komið hentugu
skipulagi á þessi sumarleyfi, fyrir
þá, sem það vilja nota utanbæjar.
Með þeirri miklu vinnu, sem
vænta má að verði í bænum, munu
langflestir verkamenn geta fengið
nokkurra daga sumarleyfi, og þó
að dagkaupið fyrir þessa leyfisdaga
sé nokkur fjárhagslegur ávinning-
ur fyrir verkamenn, þá verður þetta
ákvæði fyrst og fremst að teljast
4
DAGSBRÚN