Dagsbrún - 01.12.1941, Blaðsíða 14
tíma lagt sig fram um það, að fá
viðurkenndan sérstakan kaup-
taxta fyrir skipavinnu í Reykjavík.
Þegar þetta er aðgætt verður sam-
anburður Jóns Sigurðssonar á
skipavinnutöxtum úti um land, sem
sáralítið af kaupi verkamanna er
greitt eftir og kauptaxta
verkamanna í Reykjavík ekki til
þess að kasta rýrð á Dagsbrún eða
Dagsbrúnarmenn. Auk þess sýnir
skýrsla sú um kaupgjald í nóv. þ. á.
sem birt er í síðustu sambandstíð-
indum, að í sextán stöðum af þrjá-
tíu og tveim er kaupgjald við skipa-
vinnu, sem Jóni finnst svo mikið til
um aðeins jafnhátt og þó víðar
lægra en kauptaxti Dagsbrúnar í
almennri vinnu og nær því öll
verkamannafélög landsins hafa
lægri almennan kauptaxta en Dags-
brún, en eftir þeim taxta fara allar
megin launagreiðslur til verka-
manna fram. Þetta, sem hér hefir
verið sagt sýnir, að ,,Dagsbrún“
stendur enn sem fyr í fylkingar-
brjósti verkalýðssamtakanina, líka
á sviði kaupgjaldsmálanna. Þeirri
stöðu hennar verður ekki hnekkt
með fölskum samanburði á kaupi
verkamanna í Reykjavík og skipa-
vinnutöxtum annars staðar, sem
eing og áður er sýnt fram á kveður
meira að í orði en á borði.
Dagsbrún hefir einnig nú fyrir
skömmu sýnt það, að hún hefir enn
sem fyr frumkvæði að stórmerkum
framkvæmdum til aukinna rétt-
inda fyrir verkamenn. Með frjálsu
félagslegu átaki hefir nú tekist að
tryggja verkamönnum í Reykjavík
árleg sumarleyfi á kostnað atvinnu-
rekenda, án aðstoðar löggjafa.
Ríkísstjórnin
og samningarnir.
Því hefir verið haldið fram í dag-
blcðum, að Ólafur Thors hafi samið
við mig um að Dagsbrún héldi ó-
breyttum grunntaxta kaupgjalds.
Út af þessu vil ég lýsa því yfir, að
ég hefi hvorki átt tal við Ólaf Thors
né neinn annan ráðherra úm þessi
mál, enda þess ekki verið óskað. Ef
líkisstjórnin hefði óskað viðtals við
mig eða félagsstjórn um þessi mál,
hefði því að sjálfsögðu verið vel
tekið. Þau viðtöl, sem ég hefi átt
um samningana eru við atvinnu-
rekendur: borgarstjóra, stjórn
Vinnuveitendafélagsins og yfirfor-
ingja vinnuskrifstofunnar brezku.
Hinsvegar tel ég að sú leið, sem far-
in var, að framlengja samningana
með óbreyttu grunnkaupi, fullri
dýrtíðaruppbót og viðbættum
sumarleyfum handa verkamönn-
um, hafi verið eina rétta og færa
leiðin fvrir félagið .
Héðinn Valdimarsson.
Fjárhagur ,,Dagsbrúnar“ stend-
ur nú með óvenjulegum blóma. Eru
til þess þær ástæður m. a., að fjár-
stjórn félagsins er í bezta lagi, öt-
ullega gengið að innheimtu árs-
gjalda, enda sérstaklega góð skil-
yrði í því efni, vegna mikillar at-
vinnu verkamanna og ákvæðanna í
samningum Dagsbrúnar við at-
vinnurekendur og setuliðið um inn-
heimtu félagsgjalda af ógreiddum
vinnulaunum. Skilningur Dags-
brúnarmanna er líka vakandi fyr-
DAGSBRÚN
14