Dagsbrún - 01.12.1941, Side 10
ekki er varið til styrkveitinga,
leggst við höfuðstólinn.
9. gr.
Umsóknir um styrk úr sjóðnum
skal rita á eyðublcð, sem styrkveit-
inganefnd leggur til og stjórn Dags-
brúnar hefir samþykkt.
Umsækjandi skal færa sönnur á,
að hann sé löglegur félagsmaður í
Dagsbrún. Fyr en sú sönnun er
fyrir hendi verður umsókn ekki
tekin til greina.
10. gr.
Við ákvörðun um styrk til um-
sækjanda skal styrkveitinganefnd
meðal annars taka tillit til heimil-
isástæðna hans, hve langvarandi
heilsutjónið virðist, að hve miklu
leyti það rýrir vinnuhæfi hans, og
hvort eða að hve miklu leyti hon-
um er bætt tjónið annars staðar að.
11. gr.
Reikningsár sjóðsins er alman-
aksárið og skulu reikningar hans
endurskoðaðir af endurskoðendum
Dagsbrúnar og lagðir fyrir aðal-
fund félagsins til úrskurðar.
12. gr.
Trúnaðan’áð Dagsbrúnar getur
gert breytingar á skipulagsskrá
þessari með % hlutum atkvæða á
fundi, enda séu % hlutar trúnaðar-
ráðsmanna viðstaddir, og hafi þess
verið getið í fundarboði, að bi’eyt-
ingartillögur liggi fyrir fundinum.
Lögmætur Dagsbrúnai'fundur
getur krafist allsherjaratkvæða-
greiðslu í félaginu um bréytingar,
sem ti'únaðarráð hefir gert, ef %
hlutar atkv. á fundinum sam-
þykkja. Sama rétt hefir meirihluti
t’ é 1 a gsst j ó rn ari n n a r.
13. gr.
Tillögu um að sjóðurinn hætti
stcrfum, getur stjórn Dagsbrúnar
ein gert. Skal sú tillaga sæta sömu
meðferð og tillögur um breytingar
á skipulagsskránni.
14. gr.
Ef samþykkt verður tillaga um
að sjóðurinn hætti störfum, renna
eignir hans allar og óskiftar í
Vinnudeilusjóð Verkamannafélags-
ins Dagsbrún, og leggjast við höf-
uðstól hans.
Nýr styrktarsjóður. Á fundi trún-
aðarráðs Dagsbrúnar s.l. haust, var
samþykkt einróma tillaga frá fé-
lagsstjórninni um að stofna styrkt-
arsjóð Dagsbrúnarmanna, með %
hlutum þess fjár, er komið hefir
inn á árinu 1941 fyrir vinnurétt-
indaskírteini utanfélagsmanna. —
Stofnfé sjóðsins er yfir 22,000 kr.
Fyrir atbeina félagsstjórnar, styrk-
ir Reykjavíkurbær sjóðinn. Tillag
bæjarins til sjóðsins fyrir árið
1941, nemur kr. 3.500.00. Sam-
kvæmt skipulagsskrá sjóðsins, er
samþykkt hefir verið, hefir styrk-
veitingarnefnd félagsins kosin um
áramót, á hendi styrkveitingar úr
sjóðnum. Fyrstu styrkveitingu úr
þessum nýja sjóði er fyrir skömmu
lokið og voru að þessu sinni veitt-
ar kr. 7.900.00 til 47 félagsmanna,
er sóttu um styrk. Félagið lagði ár-
ið 1941 fram til styrkveitinga sjóðs-
ins um kr. 2.00 á gildan félags-
mann. Reglur sjóðsins, sem felast í
skipulagsskrá hans, eru birtar á
cðruni stað hér í ritinu.
10
DAGSBRÚN