Dagsbrún

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat

Dagsbrún - 01.12.1941, Qupperneq 13

Dagsbrún - 01.12.1941, Qupperneq 13
Dagsbrúnartaxtirm og skipavinnukaupið út um larsd. Jón Sigurðsson, starfsmaður hjá Alþýðusambandi íslands, skrifar um Dagsbrún grein, er bii’tist í Al- þýðublaðinu 5. nóv. s.l. — f grein þessari er reynt að gera saman- burð á kaupi Dagsbrúnarmanna og kaupgjaldi verkamanna annars- staðar íjandinu í því skyni, að svo sýnist sem verkamenn í Reykjavík og Hafnarfirði eigi við lélegust launakjör að búa. Til þessa saman- burðar tjaldar Jón sérstökum kauptöxtum, er gilda um skipa og kolavinnu á nokkrum stöðum úti á landi, en forðast að nefna það, hvað kaupið á þessum sömu stöðum er í almennri vinnu. Virðist því til- gangurinn með grein þessari ekki vera sá, að koma af stað heilbrigðri keppni milli verkalýðsfélaganna um bætt launakjör meðlima þeirra, heldur að kasta rýrð á Dagsbrún og vekja úlfúð og ósætti meðal verkamanna í Reykjavík, og til þess eru notaðar falskar forsendur, eins og skal sýnt fram á hér. Á nær öll- um þeim stöðum, þar sem sérstak- ur taxti gildir um skipavinnu, er skipavinnan svo hverfandi lítil, að þær tekjur, sem verkamenn hafa af henni hafa engin veruleg áhrif á afkomu þeirra. Víða er nær eng- in önnur skipavinna en sú, sem bundin er við afgreiðslu strand- ferðaskipanna, en á flestum höfn- um úti á landi tekur afgreiðsla þeirra ekki lengri tíma en eina til fjórar klukkustundir í hvert sinn. Og þar sem skipin koma á þessar hafnir í mesta lagi tvisvar sinnum á mánuði, geta menn gert sér það DAGSBRÚN ljóst, að tekjur verkamanna af skipavinnunni eru ekki það miklar að ástæða sé til þess fyrir starfs- mann Alþýðusambandsins að guma af þeim í opinberu blaði. Þessi sérstaki kauptaxti í skipa- vinnu, sem verkamenn hafa fengið viðurkenndan á ýmsum stöðum á landinu, byggist ekki á því, að af- greiðsla skipa, er leggjast að bryggjum sé erfiðari eða áhættu- meiri en önnur venjuleg vinna, heldur hinu, að hún er stopulli eins og sjá má af því, að í flestum kaup- túnum tryggir hún, þegar best læt- ur örfáum verkamönnum aðeins nokkurra klukkustunda vinnu á mánuði. Þrátt fyrir hærra kaup, er skipa- vinnan heldur hvergi eftirsótt, þeg- ar verkamenn hafa öðrum stöðugri verkefnum að sinna. Þessu til sönn- unar má benda á það, að síðan at- vinna jókst í landinu hefir viða verið örðugleikum bundið, að fá verkamenn í vinnu við afgreiðslu strandferðaskipanna. — Hjer í Reykjavík horfir þetta öðru vísi við. Hjer hafa nokkrir verkamenn haft að jafnaði tiltöluléga stöðuga atvinnu hjá hinum stærri skipaaf- greiðslum. Það hefir t. d. jafnan verið álitið svo, að verkamenn hjá afgreiðslu Eimskipafélags ísiands hér hafi haft meiri tekjur að jafn- aði en aðrir daglaunamenn í bæn- um, enda hefir vinna hjá Eimskip verið eftirsótt, þótt kaupið væri eldci hærra en við aðra vinnu. Og ekki hefir borið á því, að félagar Jóns Sigurðssonar hafi nokkurn- 13

x

Dagsbrún

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagsbrún
https://timarit.is/publication/935

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.