Bændablaðið - 13.01.2004, Blaðsíða 5

Bændablaðið - 13.01.2004, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 13. janúar 2004 5 Á uppskeruhátíð ferðaþjónustu- bænda greindi Marteinn Njáls- son, formaður félagsins frá verkefni sem hann kallaði Hag- nýting á upplýsingatækni. Hann sagði að Félag ferðaþjónustu- bænda væri komið í samstarf við Upplýsingatækni í dreifbýli (UD) sem er átaksverkefni á veg- um landbúnaðarráðuneytisins. Markmiðið með UD er að efla tölvunotkun og upplýsingatækni í dreifbýli og þá sérstaklega hjá bændum. Marteinn greindi frá því að til væri áætlun innan ESB sem heitir Norðurslóðaáætlun. Fyrir einu ári kom fyrirspurn um hvort Ís- lendingar vildu taka þátt í fjöl- þjóða verkefni tengt upplýsinga- tækni í dreifbýli. Spurningunni var þá beint til UD sem síðan sótti um aðild að þessu verkefni í samráði við Félag ferðaþjónustubænda en ferðaþjónustubændur falla vel að þessu verkefni. Umsókn UD var afgreidd jákvætt í sumar og hófst vinna við verkefnið nú í haust Til þessa verkefnis kemur styrkur frá ESB en hluti af kostnaði verður fjármagnaður innanlands. Alls hljóðar verkefnið upp á um 140þús evrur sem svarar til um 12 milljónum íslenskra króna. Um 35 þúsund evrur eiga að fara í að smíða hugbúnaðarlausn sem á að efla notkun íslenskra ferðaþjónustu- bænda á upplýsingatækni. Norðurslóðasjóðinn á að nota til að auka vægi jaðarbyggða í Evrópu og tryggja hagsæla sjálf- bæra þróun byggða á norðlægum slóðum. Marteinn telur að íslenskir ferðaþjónustubændur falli vel inn í þetta verkefni sem heitir RUBIES en það er snýst um gerð viðskipta- og upplýsingakerfa fyrir dreifbýli. Markmið verk- efnisins er að auka notkun á tölvu- og nettækni á norðlægum slóðum í Evrópu. Norðlægar slóðir, sam- kvæmt skilgreiningu ESB, eru N- Finnland, N-Svíþjóð, N-Noregur, Ísland og Skotland. Verkefnið er unnið samhliða í þessum löndum nema í Noregi sem dró sig út úr því. Í byrjun október gerði Félag ferðaþjónustubænda samning við UD um könnun á tölvu- og netnotkun félaga í FFB og kanna viðhorf til rafrænna viðskipta en það er forsenda fyrir því að taka þátt í verkefninu að bændur séu tilbúnir í rafræn viðskipti. Samningurinn veitir félögum í FFB aðgang að námskeiðum sem UD gengst fyrir og er það tilbúið til að útbúa sérstakt námskeið fyrir félaga í Félagi ferðaþjónustu- bænda. Einnig mun Landsíminn veita ferðaþjónustubændum tilboð á ýmsum tæknilausnum og þá sérstaklega tengingum inn á Internetið. Loks inniheldur samningurinn undirbúning að þarfagreiningu á hugbúnaði sem myndi virka sem upplýsinga-, bókunar- og sölugátt á netinu. Ef fyrrnefnd könnun meðal ferðaþjónustubænda reynist já- kvæð þá mun hefjast smíði á bókunarkerfi á Internetinu sem myndi halda utan um bókunarleyfi ferðaþjónustubænda. Ætlunin er að gera viðskiptin rafrænni og vinna meira á vefnum og munu allir gistiaðilarnir hafa aðgang að kerfinu sem og Ferðaþjónusta bænda hf. Markmiðið með því að setja kerfið út á netið er að gera upplýsingagjöf sjálfvirkari, gera bókunarferlið styttra og hraðvirkara og að einfalda yfirsýn yfir óseldar gistinætur. Í framhaldi af þessu þriggja ára verkefni er ætlunin að taka niðurstöðurnar sem fást og yfirfæra þær yfir á aðrar búgreinar íslensks landbúnaðar. Frekari upplýsingar um mál- efni Félags ferðaþjónustubænda má finna á www.sveit.is Hagnýting á upplýsingatækni Bændasamtök Íslands bjóða nú upp á þá þjónustu fyrir bændur að geyma öryggisafrit af gögn- um sem tengjast fagforritum frá BÍ. Nauðsynlegt er að taka öryggisafrit af gögnum reglulega og geyma á öruggum stað. Ýmsum aðferðum er hægt að beita, t.d. brenna á geisladisk eða geyma á öðrum hörðum diski. Þjónusta BÍ felst í að taka á móti skrám í tölvupósti og geyma í öruggu umhverfi gegn vægu gjaldi. Þeir sem hafa áhuga á að nýta sér þessa þjónustu geta sent öryggisafritin sem viðhengi á net- fangið afrit@bondi.is með upp- lýsingum um nafn, kennitölu, heimilisfang og hvaða forriti öryggisafritið tilheyrir. Farið er með þessi afrit sem trúnaðarmál og verða ekki afhent öðrum nema með skriflegu leyfi eiganda. Gjald er tekið fyrir afrit af hverju forriti fyrir sig og er gjaldið innheimt árlega. Verð er eftir- farandi: Agrosoft: 1.250 kr. m/vsk CFC: 1.250 kr. m/vsk dkBúbót: 1.250 kr. m/vsk Fjárvís: 623 kr. m/vsk Ískýr: 623 kr. m/vsk NPK: 623 kr. m/vsk Gjaldið er þó aldrei hærra en kr. 2.500 m/vsk fyrir geymslu á afritum óháð fjölda þeirra, nema ef um mikið magn sé að ræða (meira en 10 Mb). Geymsla á öryggisafritum fyrir bændur Bændablaðið kemur næst út 27. janúar Nýjar rannsóknir sýna að sérstaða íslensku kúamjólkurinnar er meiri en áður var talið. Í ljós hefur komið að bæði fitu- og próteinsam- setning er önnur en í ná- grannalöndunum og mjólkin er að mörgu leyti heilsusamlegri. Árangur rannsókna á þessu sviði hefur farið fram úr væntingum. Rannsóknirnar eru gerðar að frumkvæði rannsóknarstofu í næringarfræði við Háskóla Ís- lands og Landspítala-háskóla- sjúkrahús og fjármagnaðar á fjár- lögum síðustu þrjú ár. Mikilvægt er að halda rannsóknun- um áfram þar sem þær snerta heilsufar al- mennings. Mjólk er meðal annars aðalfæða lítilla barna víðs vegar í heiminum. Niðurstöðurnar birtast í bókinni "Sér- staða íslensku kúa- mjólkurinnar - tengsl við heilsu og fram- tíðarmöguleikar" sem kom út nýlega og er gefin er út af rannsóknarstofu í næringarfræði en höfundar eru dr. Inga Þórsdóttir, dr. Ingibjörg Gunnarsdóttir og dr. Bryndís Eva Birgisdóttir. Sérstaða íslensku mjólkurinnar Þórður Þorgeirsson fluttur að Jaðri Hinn landsþekkti tamningamaður Þórður Þorgeirsson, sem oft hefur verið nefndur "konungur kynbótahrossanna", hefur flutt starfsemi sína um set og gerir nú út frá Jaðri í Hrunamannahreppi. Á Jaðri búa Kristbjörg Kristinsdóttir og Agnar R. Róbertsson ásamt sonum sínum en þau fluttu þangað úr Reykjavík fyrir um tveimur árum. Mikil og góð aðstaða hefur verið byggð upp á Jaðri undanfarna mánuði, innréttað hefur verið hesthús fyrir 60 hesta auk þess sem þar er góð inniaðstaða til tamninga og nóg rými til allra átta fyrir útreiðar. Að sögn Kristbjargar eru þau Agnar mjög ánægð með að hafa fengið Þórð til sín og segir hún hesthúsið smám saman að fyllast af tamningar- og þjálfunarhrossum. Sjálfur sagði Þórður í viðtali við Bændablaðið sl. sumar að honum líkað hvergi betur en í sveitinni og hann er því vel settur í sveitasælunni að Jaðri. Hreppamenn ættu að vera ánægðir með fenginn og mega hestamenn væntanlega eiga von á að sjá fjölda farsælla kynbótahrossa úr Hreppunum undir Þórði á komandi landsmótsári. HGG

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.