Bændablaðið - 13.01.2004, Qupperneq 6

Bændablaðið - 13.01.2004, Qupperneq 6
6 Þriðjudagur 13. janúar 2004 Upplag: 10.500 eintök Íslandspóstur annast dreifingu blaðsins að mestu leyti. ISSN 1025-5621 Bændablaðið Málgagn bænda og landsbyggðar Bændablaðið kemur út hálfsmánaðarlega. Því er dreift til allra bænda landsins og fjölmargra annarra er tengjast landbúnaði. Bændablaðinu er dreift ókeypis til þeirra er stunda búskap en þéttbýlisbúar geta gerst áskrifendur að blaðinu. Árgangurinn kostar kr. 5.200 en sjötugir og eldri greiða kr. 2.250. Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími: 563 0300 - Fax: 552 3855 - Kt: 631294-2279 Ritstjóri: Áskell Þórisson (ábm.) Auglýsingastjóri: Eiríkur Helgason, blaðamaður: Sigurdór Sigurdórsson Netfang blaðsins er bbl@bondi.is Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Næstu blöð! janúar 27. mars 9. 23. febrúar 10. 24. Frestur til að panta stærri auglýsingar er á hádegi miðvikudag fyrir útkomu. Smáaug- lýsingar þurfa að að berast í síðasta lagi fyrir fimmtudag fyrir útkomu. Bréf kansellíisins um tilhögun á kirkjuhurðum 1828 28. október Hinn 7. þ.m. hefir Hans hátign allramildilegast þóknast að úrskurða, að þegar kirkjur eru byggðar að nýju, þá skuli öllum hurðum þannig hagað, að þeim verði lokið upp að innan og gangi út. Ofangreint er tekið af vef Brunamálastofnunar en þar á bæ eru greinilega áhugamenn um sögu fyrri tíma. Nýtt skipulag almannavarna á Austfjörðum Tekið hefur verið upp breytt skipulag almannavarna á Austfjörðum þ.e. frá Fjarðarbyggð suður að Djúpavogi. Markmiðið með þessum breytingum er að einfalda það kerfi sem fyrir var. Í almannavarnarnefndinni munu eiga sæti bæjar- og sveitarstjórar og lögreglustjórinn á Eskifirði. Með nefndinni starfar aðgerðastjórn viðbragðsaðila en hana skipa fulltrúar lögreglustjóra, slökkviliðs, heilbrigðisstofnana, tæknideildar, svæðisstjórnar, björgunarsveita og deildar Rauða kross Íslands. Þá verða vettvangsstjórnir í hverju sveitarfélagi en hana skipa lögregla, slökkvilið, tæknideild (áhaldahús) björgunarsveit og sveitarstjóri. Umhverfisverðlaun í Skaftárhreppi afhent á Þorláksmessu Veittar voru viðurkenningar fyrir snyrtilegasta umhverfi sveitabæjar annars vegar og snyrtilegustu lóðina hins vegar. Óskað var eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna í Skaftárhreppi fyrir árið 2003 og hlutu verðlaunahafar afgerandi kosningu. Kristín Lárusdóttir og Guðbrandur Magnússon á Syðri-Fljótum í Meðallandi hlutu viðurkenningu fyrir snyrtilegasta umhverfi sveitabæjar. Þau hafa lyft grettistaki í fegrun á umhverfi Syðri-Fljóta eftir að þau hófu þar búskap og leynir sér ekki þegar ekið er framhjá Syðri- Fljótum hversu vel og snyrtilega er gengið um. Jóhanna Friðriksdóttir og Ragnar Pálson, Skerjavöllum 4 á Kirkjubæjarklaustri, hlutu viðurkenningu fyrir snyrtilegustu lóðina í Skaftárhreppi. Þau hafa í fjölda ára átt fallegan og vel hirtan garð og eru mjög vel að viðurkenningunni komin. Þetta er í fysta sinn sem umhverfisverðlaun eru veitt í Skaftárhreppi en tilgangur þeirra er m.a. að hvetja íbúana til að ganga snyrtilega um umhverfi sitt og vekja athygli á því sem vel er gert í þeim efnum. Deilur um frjálsa eða ekki frjálsa verslun eiga sér langa sögu. Þær standa um það hver eigi að fá, hver eigi ekki að fá og hver eigi að borga. Með öðrum orðum þá standa deilurnar um það hver eigi að ráða, þ.e. um völd. Þetta segir Andreas Skartveit í norska blaðinu Bondevennen í áramótablaði þess og hann heldur áfram: Sígilt deiluefni er tollur á innflutning korns. Á að leggja toll á korn og hversu hár á hann að vera? Bændur í hverju landi vilja leggja toll á korninnflutning til að hækka verð á eigin framleiðslu. Aðrir þjóðfélagsþegnar vilja geta keypt ódýrt brauð. Þarna verða yfirvöld að taka af skarið, hvað sem kenningasmiðir, eins og Adam Smith og Karl Marx, segja. Ákvörðun sem allir eru ánægðir með er ekki til. Nóg er af trúboðum, oft á góðum launum, sem vilja fá okkur til að trúa því að algjört viðskiptafrelsi sé öllum fyrir bestu, beinlínis leiðin til frelsunar. Það eru haldnar fjölmennar ráðstefnur um efnið. En þar rísa upp margir villutrúarmenn, bæði innan og utan ráðstefnusalanna, þannig að ekkert samkomulag næst, alveg eins og á kirkjuþingum í gamla daga og sagan geymir margar frásagnir um. Vandinn er sá að trúboðarnir, svo að ekki sé sagt predikararnir, eru ósannfærandi og með vafasama fortíð. Vilji menn komast til botns í málinu verður að leita að því hvar völdin liggja. Fullt viðskiptafrelsi er heróp og hernaðaráætlun valdsins. Og þá kemur hræsnin í ljós. Það trúir enginn á fullt viðskiptafrelsi, boðskapurinn er tóm látalæti og hræsni. Það sem upp úr stendur er að hver og einn vill viðskiptafrelsi þar sem hann stendur sterkur en vernd þar sem hann stendur veikur. Hin ríku iðnríki boða frjálsa verslun en eru á móti frjálsri verslun með matvæli og fatnað. Frjáls verslun myndi leggja í rúst fataiðnað þeirra og þróunarlönd myndu skaða bændur í iðnríkjunum. Mörg þróunarlönd vilja vernda iðnað sinn eins og Vesturlönd gerðu þegar þau byggðu upp iðnframleiðslu sína, en það fá þau ekki. Svo vilja þau flytja út matvæli og fatnað. Það mega þau heldur ekki, þá mæta þau tollmúrum okkar. Bandaríkin, sterkasta hagkerfið í heimi, er fylgjandi fríverslun, einnig með matvæli þegar um er að ræða að selja bandarísk matvæli til Evrópu. En þau eru á móti evrópskum mat og öðrum mat í Bandaríkjunum. Hann ógnar bandarískum landbúnaði. Bandaríkin eru fylgjandi frelsi í viðskiptum með iðnaðarvörur en þegar bandarískur stáliðnaður lenti í vandræðum brugðust þau hart við og settu toll á innflutt stál. Við styðjum fullt viðskiptafrelsi með fisk á sama tíma og við fylgjum verndarstefnu gagnvart búvörum. Stjórnarerindrekar okkar geta þurft að tala fyrir þessum tveimur sjónarmiðum á sama fundinum. Iðnbyltingin hófst í Englandi og náði þar forskoti. Þá boðuðu Englendingar frjáls viðskipti. Þjóðir á meginlandi Evrópu og Bandaríkin voru þá á móti frjálsri verslun. Þessi lönd vildu byggja upp iðnað sinn í friði og upphófust þá mikil átök. Þegar Rússland seint og um síðir hugðist iðnvæðast lokaði ríkið landamærum sínum áratugum saman. Fríverslunartrúboð er sérstakt að því leyti að fagnaðarboðarnir trúa ekki einu sinni sjálfir sínum eigin boðskap. Þeir reyna að dulbúa valdið í fagran búning, fullan af hugmyndum um réttlæti og algild sjónarmið. Það er ekkert nýtt, sagan er full af slíkum málflutningi, valdið hefur alltaf hagað sér þannig. Hugmyndin um að frjáls verslun muni frelsa heiminn er lygi sem er svo stór að hún er orðin sönn. Slíkt hefur komið fyrir áður. Því er það spurningin hvenær drengurinn í ævintýrinu um nýju fötin keisarans kemur og segir: Hann er ber. Ætla má að næst verði hann svartur./ME Frjáls verslun

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.