Bændablaðið - 13.01.2004, Side 10

Bændablaðið - 13.01.2004, Side 10
10 Þriðjudagur 13. janúar 2004 Manneldisráð birti snemma á árinu 2003 fyrstu niðurstöður úr um- fangsmikilli könnun á mat- aræði landsmanna en hliðstæð rannsókn hefur ekki farið fram frá árinu 1990. Alls tóku 1366 manns á aldrinum 15-80 ára þátt í könnuninni og var svarhlutfall 70,6%. Könnunin var gerð í samvinnu við Fé- lagsvísindastofnun Háskóla Íslands, framkvæmd og undirbúningur var í höndum Manneldisráðs en húsnæði og aðstaða var fengin hjá Félagsvísinda- stofnun. Könnunin fór fram í tveimur áföngum, febrúar til apríl og ágúst til nóvember árið 2002. Helstu niðurstöður lands- könnunarinnar voru: ·Í stórum dráttum hefur mataræði Íslendinga færst nær manneldismarkmiðum: Fitan hefur minnkað og grænmeti og ávextir aukist, þótt enn sé langt í land að markmiðinu um 500 grömm á dag sé náð. ·Dæmi um neikvæða þróun er hins vegar aukin sykurneysla og er neysla gosdrykkja gífurleg, einkum meðal ungra stráka, sem drekka að meðaltali tæpan lítra af gosdrykkjum á dag. Sykurneysla þeirra er jafnframt óheyrilega mikil eða 143 grömm af viðbættum sykri á dag. ·Stúlkur drekka minna af gosi og meira af vatni en strákar og velja fituminni vörur. Mjólkurneysla þeirra er hins vegar lítil, fiskneyslan er hverfandi og næringarefni í fæði bera þess merki: Kalk, D-vítamín og joð eru dæmi um nauðsynleg efni sem eru undir ráðleggingum í fæði stúlkna. ·Fiskneysla hefur minnkað um 45% frá 1990 og er nú litlu meiri en gerist og gengur í flestum nágrannalöndum ·Fólk á höfuðborgarsvæðinu borðar fituminna fæði og er grennra en fólk í þéttbýlisstöðum eða dreifbýli. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni: www.manneldi.is Landskönnun á mataræði 2002 Gífurleg gosdrykkja meðal ungra stráka Á uppskeruhátíð Ferðaþjónustu bænda sem haldin var dagana 20. og 21. nóvember sl. flutti Björn S. Lárusson ræðu og skýrði frá því að hann væri að hefja vinnu við mastersritgerð við Viðskiptaháskólann í Bif- röst. Þar ætlar hann að fjalla um umfang í rekstri Ferðaþjónustu bænda. Björn nam ferða- málafræði í Noregi og var fyrsti Íslendingurinn sem lauk námi í þeim fræðum en hefur auk þess lokið námi í markaðs- og viðskiptafræðum. Hann kallar ritgerð sína ,,Ferð til fjár." Verkefnið mun snúast um rannsókn á umfangi og rekstri í Ferðaþjónustu bænda og er undan- fari þess skýrsla sem landbúnaðarráðherra lét gera um sóknarfæri til sveita sem kom út í febrúar 2002. Hann sagði verk- efnið umfangsmikið og því munu Vífill Karlsson hagfræðingur og Þorvaldur Jónsson rekstrarfræð- ingur vinna með Birni að því. Björn sagði að það sem skoðað yrði væri hver sé hlutdeild Ferða- þjónustu bænda í ferðaþjónustunni í landinu. Hvaða þættir skili árangri, hvers vegna og hvað er það og ekki síður hvaða þættir gangi miður og sömuleiðis hvers vegna og hvað það er. Síðan verður skoðað sérstaklega hlutverk Ferðaþjónustu bænda í viðhaldi byggða og byggðamynstrinu hér á landi og hvernig megi bæta þjónustuna. Markmiðið væri að finna út þá þætti sem fara úrskeiðis og valda rekstrarerfiðleikum þótt segja megi að flestum hafi gengið vel í FB. Þetta verður unnið í samstarfi við Ferðaþjónustu bænda og í samráði við land- búnaðarráðuneytið. Send verður út spurningakönn- un til allra ferðaþjónustubænda. Spurt verður um umfang rekstursins, markaðsmálin og innri og ytri skilyrði. Farið verður með allar upplýsingar sem trúnaðarmál. Einnig verður gerð spurninga- könnun meðal viðskiptavina. Spurt verður í Leifsstöð á Kefla- víkurflugvelli og við tvær brott- farir Norrænu á Seyðisfirði næst sumar. Björn sagði að þeir vænti þess að fá niðurstöður um umfang FB í tölum, þ.e. hver sé styrkleiki og veikleiki í rekstri. Hugsanlega bætt skipulag er þörf krefur, betri samskipti, þarfir viðskiptavinanna, óskir bænda og vitneskja sam- félagsins um Ferðaþjónustu bænda. Rannsókn á umfangi og rekstri í Ferða- þjónustu bænda Grunnskólinn í Tjarnarlundi með glæsilegt skólablað Nemendur Gunnskólans í Tjarnarlundi hafa gefið út skólablað sem heitir Saurbæjarblaðið og er það í þriðja sinn sem nemendur gefa það út. Blaðið er hið glæsilegasta í útliti og fallega myndskreytt. Í blaðinu eru nokkur viðtöl, meðal annars við Sveppa og söngkonuna Siggu Beinteins. Saga skólans er rakin og birtur kafli úr bókinni um Steinólf í Fagradal. Ferðasaga nemenda til Danmerkur og hestaferð innanlands og margt fleira efni er í þessu ágæta blaði. Ferðaþjónusta bænda Á Alþingi hefur Önundur S. Björnsson lagt fram fyrirspurn til landbúnaðarráðherra um ferðaþjónustu bænda. Önundur spyr hversu margir bændur sinna ferða- þjónustu að hluta eða öllu leyti og hver sé staða þeirra og hverjir framtíðarmöguleikar greinarinnar séu að mati ráð- herra. Í ágústmánuði árið 2001 var sett ný reglugerð um neyslu- vatn. Í henni er kafli um eftirlit heilbrigðisyfirvalda á neyslu- vatni matvælaframleiðenda en þar undir falla mjólkurfram- leiðendur og ferðaþjónustu- bændur sem selja ferða- mönnum mat, t.d. morgunverð. Ekki er ólíklegt að aðrir bændur (kjötframleiðendur) komi síðar til með að falla undir svipaða reglugerð. Umhverfisstofnun annast reglugerðina. Heilbrigðisfulltrúar taka vatnsveiturnar út og ef eitthvað er athugavert við vatnið er bændum greint frá hvað sé að, þeim gert að bæta úr því og fá til þess einhvern frest. Síðan verður um reglubundið eftirlit með vatnsveitunum að ræða. Talað var um að eftir fimm ár frá útgáfu reglugerðarinnar yrði búið að koma öllum vatnsveitum þessara bænda í viðunandi horf. Margir bændur sem þurfa að gera bragarbót á vatnsbólum sínum leita til Óttars Geirsson um ráðgjöf en hann er ráðunautur Bændasamtakanna um vatns- veitur. Hann segir að ástand veitnanna sé mjög mismunandi. Á sumum stöðum þurfi ósköp lítið að gera til þess að veitan komist í gott stand, kannski er bara brotinn hlemmur á brunnin- um þannig að yfirborðsvatn komist í hann. Á öðrum stöðum er svo mun meira að jafnvel svo mikið að gera verður alveg nýja veitu. Óttar segir að það geti því kostað frá nokkur þúsund krón- um og upp í nokkur hundruð þúsund að koma vatnveitunum í viðunandi horf. ,,Til að sýna fram á hversu viðkvæmur mælikvarði sýnataka getur verið á gæði vatnsbóla þá tók heilbrigðisfulltrúi á Norður- landi vestra sýni úr vatnsbólum nokkurra bæja í tveimur dölum á svæðinu og litu öll vatnsbólin svipað út. Þegar farið var að rannsaka sýnishornin kom í ljós að þau voru svo til öll í lagi í öðrum dalnum en stór hluti vatnssýna úr hinum dalnum var í ólagi. Þá kom það fram að þegar sýni voru tekin í dalnum þar sem allt var í lagi hafði lengi verið þurrkur en í hinum hafði verið rigningartíð og yfirborðsvatn komist í brunnana en í hinum dalnum var ekkert yfirborðsvatn til að renna í brunnana þegar sýni voru tekin," segir Óttar. Hann segir að allmikið hafi verið að gera hjá sér við ráðgjöf eftir að reglugerðin var sett. Sem fyrr segir er það afar misjafnt hve mikið þarf að gera til að koma hlutunum í lagt, oft hreint smá- ræði en líka dæmi um hið gagn- stæða. Úttekt á vatnsbólum mjólkur- og ferða- þjónustubænda Fræðslunet Suðurlands Kynningar- vika vísinda og rannsókna á Suðurlandi Fræðslunet Suðurlands hyggst efna til kynningarviku vísinda og rannsókna á Suðurlandi í samvinnu við þá aðila sem þar stunda rann- sóknarstörf. Tilgangur vikunnar er að kynna fyrir almenningi hverjir stundi rannsóknir á Suðurlandi og um hvers konar rannsóknir sé að ræða, hvert umfangið sé og þýðing fyrir sunnlenskt samfélag. Gert er ráð fyrir að vikan verði 22. - 26. mars 2004. Skipu- lag vikunnar verður með þeim hætti að Fræðslunet Suðurlands úthlutar hverjum rann- sóknaraðila einum sérstökum kynningardegi og safnar saman upplýsingum um hvernig hver og einn hefur í hyggju að kynna rannsóknarstarfsemi sína, s.s. með opnu húsi, sýningum, kynningum í skólum, greinum í héraðsblöðum o.fl. Fræðslunet Suðurlands mun beita sér fyrir því að vikan fái umfjöllun í sunnlenskum fjöl- miðlum og í vikunni á undan, þann 17. mars, verður gefinn út sérstakur "kálfur" með Sunnlenska fréttablaðinu þar sem þátttakendum gefst kostur á að fjalla um sitt svið jafnframt því sem vikan verður auglýst. Lögð verður áhersla á að hér er um einstakan viðburð að ræða þar sem allir aðilar á sviði vísinda og rannsókna standi saman að kynningu hver á sínu fræðasviði. Vikunni lýkur svo með öflugu málþingi sem verður öll- um opið. Þar verður fjallað um stöðu menntunar og rannsókna á Suðurlandi, hver staðan sé og hvert skuli stefna. Þess er vænst að allir þeir sem koma að rannsóknar- starfsemi af einhverju tagi taki þátt í vikunni þannig að sem allra best komi í ljós hver staðan í vísindum og rannsóknum á Suðurlandi er og hvaða rannsóknartækifæri séu í augsýn.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.