Bændablaðið - 13.01.2004, Síða 12

Bændablaðið - 13.01.2004, Síða 12
12 Þriðjudagur 13. janúar 2004 Vextir og verðtrygging Vextir af útlánum sjóðsins eru breytanlegir og eru nú: Jarðakaupalán: 3,90 eða 6,95%. Bústofnskaupalán: 4,90%. Vélakaupalán: 6,95%. Framkvæmdalán: 3,90 eða 6,95%. Skuldbreytingalán: 7,10-7,40%. Önnur lán: Mismunandi vextir, oftast 6,95%. Gengistryggð lán. Breytilegir vextir. Skilyrði fyrir lánveitingu á lægri vöxtunum er að búnaðargjaldsskyld starfsemi sé stunduð á viðkomandi jörð. Lánasjóðnum er heimilt að breyta vaxtakjörum allra lána er bera niðurgreidda vexti í vaxtakjör lána sem bera óniðurgreidda vexti, nú 6,95%, falli jörð úr landbúnaðarnotum eða dregið verði verulega úr búnaðargjaldsskyldri starfsemi, þannig að árleg búnaðargjaldsskyld velta verði minni en kr. 1.000.000. Þessi upphæð reiknaðs búnaðargjalds er endurskoðuð árlega. Öll ný lán í íslenskum krónum eru verðtryggð með vísitölu neysluverðs. Öll ný lán í erlendri mynt eru fjölmyntalán, gengistryggð og taka mánaðarlegum vaxtabreytingum m.v. LIBOR vexti. Lánshlutfall og lágmarkslán Lánshlutfall er að hámarki 65% af metnum kostnaði nema annað sé tekið fram. Þegar um er að ræða lán til rafstöðva og afurðastöðva er lánshlutfallið 50%. Ekki eru veitt lægri lán en kr. 500.000. Gjalddagar Gjalddagar lána eru tólf á ári nema lántakandi óski eftir að þeir verði færri og lántakendur geta óskað eftir að jarðakaupa- og framkvæmdalán séu afborgunarlaus fyrstu tvö árin eftir lántöku. Vexti þarf þó að greiða á gjalddögum. Lántökukostnaður Lántökugjald: 1% af lánsupphæð. Stimpilgjald: 1,5% af lánsupphæð. Lánstími Jarðakaupalán. Jarðakaupalán á lægri vöxtunum eru til allt að 40 ára, önnur jarðakaupalán eru lengst til 25 ára. Bústofnskaupalán. Lánstími 10 ár. Vélalán. Lánstími 10 ár. Framkvæmdalán. Almennt er lánstími framkvæmdalána vegna nýbygginga allt að 30 ár, vegna stækkunar allt að 25 ár og vegna endurbygginga allt að 20 ár. Lánstími framkvæmdalána á 6,95% vöxtum er lengst 25 ár. Lánstími vegna búnaðar er allt að 12 ár. Skuldbreytingalán. Lánstími 15 ár. Hitaveitulán. Lánstími 20 ár. Rafstöðvalán. Lánstími 40 ár. Önnur lán. Lánstími er breytilegur, en oft 20 ár. Gengistryggð lán. Lánstími er að hámarki 10 ár. Heimilt er að greiða upp lán hvenær sem er á lánstímanum án sérstaks aukakostnaðar. Lánasjóðurinn áskilur sér rétt til að takmarka að einhverju eða öllu leyti lánveitingar til einstakra búgreina meti hann það nauðsynlegt með tilliti til markaðsaðstæðna eða annarra aðstæðna í viðkomandi búgrein eða búgreinum. Lánaflokkar 1. Lán til jarðakaupa Lánasjóðurinn veitir lán til kaupa á jörðum. Sjóðurinn gerir að jafnaði kröfu um að á viðkomandi jörð sé stundaður búrekstur í atvinnuskyni og að á henni sé föst búseta. Þó má lána til jarðakaupa án þess að þessum skilyrðum sé fullnægt, svo sem ef um er að ræða sameiningu jarða í þeim tilgangi að bæta búskaparskilyrði. Ekki er lánað umfram 65% af virðingarverði jarðar og aldrei umfram kaupverð hennar skv. kaupsamningi. Æskilegt er að í kaupsamningi sé kaupverð sundurliðað þannig að fram komi kaupverð jarðar, íbúðarhúss, bústofns og véla. Þegar gerður er samningur um kaup á jörð í eigu hlutafélags (keyptur hlutur í félaginu) þarf að koma fram í kaupsamningi hverjar eru eignir félagsins sem verið er að kaupa. Sjóðurinn veitir ekki jarðakaupalán þegar um er að ræða viðskipti einkahlutafélags og eigenda þess eða innbyrðis viðskipti hjóna eða sambýlisfólks. Þegar um er að ræða kaup á jörð með búnaðargjaldsskylda starfsemi gildir eftirfarandi viðmiðun sem meginregla varðandi lán á 3,90% vöxtum: Jarðakaupalán á 3,90% vöxtum er aðeins veitt til kaupa á jörðum með árlega veltu yfir kr. 1.500.000. Lánað er kr. 10,700 á hverjar kr. 10.000 af búnaðargjaldsskyldri veltu. Hámarkslán á 3,90% vöxtum er kr. 10.000.000. Heimilt er að veita viðbótarlán á 6,95% vöxtum allt að 15% af kaupverði, þó aldrei hærra en kr. 6.000.000. Lán til kaupa á jörð þar sem er engin eða óveruleg búnaðargjaldsskyld framleiðsla. Eftirfarandi viðmiðun er meginregla: Lánað er sem svarar veltu x 1,3 eða 35% af kaupverði eftir því hvort er hærra, þó aldrei hærra en kr. 16.000.000. 2. Lán til bústofnskaupa Lánasjóðurinn veitir frumbýlingum sem hófu eða hefja búskap á árunum 2002, 2003 eða 2004 lán til kaupa á bústofni. Rétt til bústofnskaupaláns eiga einnig þeir sem eru að taka upp sauðfjárbúskap að nýju eftir skipu- lagðan niðurskurð vegna sauð- fjársjúkdóma og bændur sem hafa hætt búskap í a.m.k. 5 ár, enda hafi eldra bústofnskaupalán verið greitt upp eða yfirtekið af öðrum ábúanda. Ef búskap er hætt, bústofninn seldur eða honum fargað, fellur lánið allt í gjalddaga, en kaupanda bústofnsins er þó heimilt að yfirtaka lánið. Ekki er lánað til stækkunar bús umfram greiðslumark í nautgripa- og sauð- fjárrækt. Lánað er skv. skattmati á hvern grip. Veitt eru lán til kaupa á allt að 30 kúm eða kelfdum kvígum eða 300 ám/lömbum eða 40 gyltum eða 3.400 varphænum eða 600 minka- læðum eða 150 refalæðum. 3. Lán til vélakaupa Lánasjóðurinn veitir lán til kaupa á búvélum sem eru nýskráðar eða keyptar nýjar á árunum 2002, 2003 eða 2004 . Með umsókn þarf að fylgja afrit sölureiknings, sem staðfest er með áritun söluaðila. Heimilt er að lána nýjum ábúendum 65% lán til kaupa á búvélum og tækjum, óháð aldri hins keypta. Vextir 6,95%. Einnig er heimilt að veita lán með veði í skráningarskyldri vél, t.d. til félagslegra verkefna bænda. Lánstími allt að 8 ár. Vextir 7,95%. 4. Framkvæmdalán Lánasjóðurinn veitir lán til nýbygg- inga, gagngerðra endurbóta og breyt- inga á útihúsum og kaupa á búnaði. Við lánveitingar til endurbóta og endurnýjunar er miðað við að um sé að ræða verulegar og varanlegar endurbætur, en sjóðurinn lánar ekki til smávægilegra viðgerða eða venjulegs viðhalds. Framkvæmdalán á lægri vöxtunum geta aldrei numið hærri upphæð en 25 millj. kr. á hverri jörð. Hámarksupphæð er breytileg eftir jörðum og búgreinum. Lánað er til eftirfarandi bygginga og búnaðar: Nautgriparækt. Lánað til byggingar fjósa, mjólkurhúsa, mjaltaaðstöðu og haughúsa. Einnig kaupa á fóðrunarkerfum, mjaltakerfum og mjólkurtönkum. Sauðfjárrækt. Lánað til byggingar fjárhúsa og áburðarkjallara. Hámarksdýpt kjallara í mati til láns er 150 cm. Lánasjóður landbúnaðarins Reglur Lánasjóðs landbúnaðarins um lánveitingar árið 2004 Gilda frá 1. janúar 2004 Lánasjóður landbúnaðarins er þjónustustofnun fyrir landbúnaðinn og starfar samkvæmt lögum nr. 68/1997, með síðari breytingum. Hlutverk sjóðsins er að tryggja landbúnaðinum aðgang að lánsfé til fjárfestinga á hagstæðum kjörum og stuðla þannig að æskilegri þróun atvinnuvegarins. Sjóðurinn veitir lán til bænda og afurða- og þjónustustofnana landbúnaðarins með veði í fasteignum, en við ákvörðun útlána er einnig tekið mið af rekstrarforsendum umsækjanda og hverjar rekstrarforsendur eru í viðkomandi búgrein. Samkvæmt lögum mega ekki hvíla veðskuldir á þeirri eign sem veðsetja á til annarra en Lánasjóðsins eða annarra opinberra sjóða á undan þeim veðrétti sem sjóðurinn fær. Veð sjóðsins í jörð ná til allra gagna og gæða jarðarinnar, þ.m.t. framleiðsluréttar.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.