Bændablaðið - 13.01.2004, Qupperneq 12
12 Þriðjudagur 13. janúar 2004
Vextir og verðtrygging
Vextir af útlánum sjóðsins eru
breytanlegir og eru nú:
Jarðakaupalán: 3,90 eða 6,95%.
Bústofnskaupalán: 4,90%.
Vélakaupalán: 6,95%.
Framkvæmdalán: 3,90 eða
6,95%.
Skuldbreytingalán: 7,10-7,40%.
Önnur lán: Mismunandi vextir,
oftast 6,95%.
Gengistryggð lán. Breytilegir
vextir.
Skilyrði fyrir lánveitingu á lægri
vöxtunum er að búnaðargjaldsskyld
starfsemi sé stunduð á viðkomandi
jörð. Lánasjóðnum er heimilt að
breyta vaxtakjörum allra lána er bera
niðurgreidda vexti í vaxtakjör lána
sem bera óniðurgreidda vexti, nú
6,95%, falli jörð úr landbúnaðarnotum
eða dregið verði verulega úr
búnaðargjaldsskyldri starfsemi,
þannig að árleg búnaðargjaldsskyld
velta verði minni en kr. 1.000.000.
Þessi upphæð reiknaðs búnaðargjalds
er endurskoðuð árlega. Öll ný lán í
íslenskum krónum eru verðtryggð
með vísitölu neysluverðs. Öll ný lán í
erlendri mynt eru fjölmyntalán,
gengistryggð og taka mánaðarlegum
vaxtabreytingum m.v. LIBOR vexti.
Lánshlutfall og lágmarkslán
Lánshlutfall er að hámarki 65% af
metnum kostnaði nema annað sé tekið
fram. Þegar um er að ræða lán til
rafstöðva og afurðastöðva er
lánshlutfallið 50%. Ekki eru veitt
lægri lán en kr. 500.000.
Gjalddagar
Gjalddagar lána eru tólf á ári nema
lántakandi óski eftir að þeir verði
færri og lántakendur geta óskað eftir
að jarðakaupa- og framkvæmdalán
séu afborgunarlaus fyrstu tvö árin eftir
lántöku. Vexti þarf þó að greiða á
gjalddögum.
Lántökukostnaður
Lántökugjald: 1% af lánsupphæð.
Stimpilgjald: 1,5% af lánsupphæð.
Lánstími
Jarðakaupalán. Jarðakaupalán á
lægri vöxtunum eru til allt að 40 ára,
önnur jarðakaupalán eru lengst til 25
ára.
Bústofnskaupalán. Lánstími 10
ár.
Vélalán. Lánstími 10 ár.
Framkvæmdalán. Almennt er
lánstími framkvæmdalána vegna
nýbygginga allt að 30 ár, vegna
stækkunar allt að 25 ár og vegna
endurbygginga allt að 20 ár. Lánstími
framkvæmdalána á 6,95% vöxtum er
lengst 25 ár. Lánstími vegna búnaðar
er allt að 12 ár.
Skuldbreytingalán. Lánstími 15
ár.
Hitaveitulán. Lánstími 20 ár.
Rafstöðvalán. Lánstími 40 ár.
Önnur lán. Lánstími er
breytilegur, en oft 20 ár.
Gengistryggð lán. Lánstími er að
hámarki 10 ár.
Heimilt er að greiða upp lán hvenær
sem er á lánstímanum án sérstaks
aukakostnaðar.
Lánasjóðurinn áskilur sér rétt til að
takmarka að einhverju eða öllu leyti
lánveitingar til einstakra búgreina
meti hann það nauðsynlegt með tilliti
til markaðsaðstæðna eða annarra
aðstæðna í viðkomandi búgrein eða
búgreinum.
Lánaflokkar
1. Lán til jarðakaupa
Lánasjóðurinn veitir lán til kaupa á
jörðum. Sjóðurinn gerir að jafnaði
kröfu um að á viðkomandi jörð sé
stundaður búrekstur í atvinnuskyni og
að á henni sé föst búseta. Þó má lána
til jarðakaupa án þess að þessum
skilyrðum sé fullnægt, svo sem ef um
er að ræða sameiningu jarða í þeim
tilgangi að bæta búskaparskilyrði.
Ekki er lánað umfram 65% af
virðingarverði jarðar og aldrei
umfram kaupverð hennar skv.
kaupsamningi. Æskilegt er að í
kaupsamningi sé kaupverð
sundurliðað þannig að fram komi
kaupverð jarðar, íbúðarhúss, bústofns
og véla. Þegar gerður er samningur
um kaup á jörð í eigu hlutafélags
(keyptur hlutur í félaginu) þarf að
koma fram í kaupsamningi hverjar eru
eignir félagsins sem verið er að kaupa.
Sjóðurinn veitir ekki jarðakaupalán
þegar um er að ræða viðskipti
einkahlutafélags og eigenda þess eða
innbyrðis viðskipti hjóna eða
sambýlisfólks.
Þegar um er að ræða kaup á jörð með
búnaðargjaldsskylda starfsemi gildir
eftirfarandi viðmiðun sem
meginregla varðandi lán á 3,90%
vöxtum: Jarðakaupalán á 3,90%
vöxtum er aðeins veitt til kaupa á
jörðum með árlega veltu yfir kr.
1.500.000. Lánað er kr. 10,700 á
hverjar kr. 10.000 af
búnaðargjaldsskyldri veltu.
Hámarkslán á 3,90% vöxtum er kr.
10.000.000.
Heimilt er að veita viðbótarlán á
6,95% vöxtum allt að 15% af
kaupverði, þó aldrei hærra en kr.
6.000.000.
Lán til kaupa á jörð þar sem er engin
eða óveruleg búnaðargjaldsskyld
framleiðsla. Eftirfarandi viðmiðun er
meginregla: Lánað er sem svarar
veltu x 1,3 eða 35% af kaupverði eftir
því hvort er hærra, þó aldrei hærra en
kr. 16.000.000.
2. Lán til bústofnskaupa
Lánasjóðurinn veitir frumbýlingum
sem hófu eða hefja búskap á árunum
2002, 2003 eða 2004 lán til kaupa á
bústofni. Rétt til bústofnskaupaláns
eiga einnig þeir sem eru að taka upp
sauðfjárbúskap að nýju eftir skipu-
lagðan niðurskurð vegna sauð-
fjársjúkdóma og bændur sem hafa
hætt búskap í a.m.k. 5 ár, enda hafi
eldra bústofnskaupalán verið greitt
upp eða yfirtekið af öðrum ábúanda.
Ef búskap er hætt, bústofninn seldur
eða honum fargað, fellur lánið allt í
gjalddaga, en kaupanda bústofnsins er
þó heimilt að yfirtaka lánið. Ekki er
lánað til stækkunar bús umfram
greiðslumark í nautgripa- og sauð-
fjárrækt. Lánað er skv. skattmati á
hvern grip.
Veitt eru lán til kaupa á allt að 30
kúm eða kelfdum kvígum eða 300
ám/lömbum eða 40 gyltum eða
3.400 varphænum eða 600 minka-
læðum eða 150 refalæðum.
3. Lán til vélakaupa
Lánasjóðurinn veitir lán til kaupa á
búvélum sem eru nýskráðar eða
keyptar nýjar á árunum 2002, 2003
eða 2004 . Með umsókn þarf að
fylgja afrit sölureiknings, sem staðfest
er með áritun söluaðila.
Heimilt er að lána nýjum ábúendum 65% lán
til kaupa á búvélum og tækjum, óháð aldri
hins keypta. Vextir 6,95%. Einnig er heimilt
að veita lán með veði í skráningarskyldri vél,
t.d. til félagslegra verkefna bænda. Lánstími
allt að 8 ár. Vextir 7,95%.
4. Framkvæmdalán
Lánasjóðurinn veitir lán til nýbygg-
inga, gagngerðra endurbóta og breyt-
inga á útihúsum og kaupa á búnaði.
Við lánveitingar til endurbóta og
endurnýjunar er miðað við að um sé
að ræða verulegar og varanlegar
endurbætur, en sjóðurinn lánar ekki til
smávægilegra viðgerða eða venjulegs
viðhalds.
Framkvæmdalán á lægri vöxtunum
geta aldrei numið hærri upphæð en 25
millj. kr. á hverri jörð.
Hámarksupphæð er breytileg eftir
jörðum og búgreinum.
Lánað er til eftirfarandi bygginga og
búnaðar:
Nautgriparækt. Lánað til
byggingar fjósa, mjólkurhúsa,
mjaltaaðstöðu og haughúsa.
Einnig kaupa á fóðrunarkerfum,
mjaltakerfum og mjólkurtönkum.
Sauðfjárrækt. Lánað til byggingar
fjárhúsa og áburðarkjallara.
Hámarksdýpt kjallara í mati til láns
er 150 cm.
Lánasjóður
landbúnaðarins
Reglur Lánasjóðs
landbúnaðarins um
lánveitingar árið 2004
Gilda frá 1. janúar 2004
Lánasjóður landbúnaðarins er þjónustustofnun fyrir landbúnaðinn og
starfar samkvæmt lögum nr. 68/1997, með síðari breytingum. Hlutverk
sjóðsins er að tryggja landbúnaðinum aðgang að lánsfé til fjárfestinga á
hagstæðum kjörum og stuðla þannig að æskilegri þróun atvinnuvegarins.
Sjóðurinn veitir lán til bænda og afurða- og þjónustustofnana
landbúnaðarins með veði í fasteignum, en við ákvörðun útlána er einnig
tekið mið af rekstrarforsendum umsækjanda og hverjar rekstrarforsendur
eru í viðkomandi búgrein. Samkvæmt lögum mega ekki hvíla veðskuldir á
þeirri eign sem veðsetja á til annarra en Lánasjóðsins eða annarra
opinberra sjóða á undan þeim veðrétti sem sjóðurinn fær.
Veð sjóðsins í jörð ná til allra gagna og gæða jarðarinnar, þ.m.t.
framleiðsluréttar.