Bændablaðið - 13.01.2004, Page 13
Þriðjudagur 13. janúar 2004 13
Svínarækt. Lánað til byggingar
svínahúsa, haughúsa, innréttinga
og fóðrunarkerfa.
Alifuglarækt. Lánað til byggingar
alifuglahúsa með tilheyrandi
búnaði að mati sjóðsins.
Hrossarækt. Lánað til byggingar
hesthúsa og áburðarkjallara.
Einnig til byggingar reiðskemma
með tilheyrandi aðstöðu að mati
sjóðsins. Hámarkslán vegna
reiðskemma er kr. 5.000.000.
Garðyrkja. Lánað til byggingar
gróðurhúsa og
garðávaxtageymslna,
pökkunaraðstöðu og tæknibúnaðar.
Loðdýrarækt. Lánað til byggingar
loðdýraskála, búra og tilheyrandi
aðstöðu að mati sjóðsins.
Lánshlutfall vegna kaupa á búrum
allt að 50% af matsverði.
Eingöngu er lánað til kaupa á
nýjum búrum.
Hlöður. Lánað til byggingar hlaða,
fóðurgeyma fyrir laust fóður og
korn, þurrkunarbúnaðar fyrir korn
og annars búnaðar í hlöður.
Lánshlutfall vegna kaupa á
tæknibúnaði allt að 50%.
Vélageymslur. Lánað til
byggingar vélageymslna.
5. Lán til skuldbreytinga
Lánasjóðurinn veitir lán til
skuldbreytinga á lausaskuldum bænda
sem tengjast búrekstrinum. Með
lausaskuldum er átt við
viðskiptaskuldir og veðskuldir með
upphaflegan lánstíma skemmri en 5
ár.
Lán til endurfjármögnunar.
Lánað til endurfjármögnunar á
föstum lánum og lausaskuldum
bænda sem tengjast búrekstrinum
með það að markmiði að bæta
greiðslustöðu þeirra. Með umsókn
um endurfjármögnunarlán skal
fylgja tæmandi listi yfir skuldir
umsækjanda og afrit af
greiðsluseðlum eða staðfesting
lánadrottins. Með
endurfjármögnunarláni er í
samvinnu við lánastofnanir og aðra
lánadrottna reynt að tryggja að
heildarlausn fáist á fjármálum
umsækjanda. Skilyrði er að lántaki
hafi viðunandi rekstrarforsendur
eftir endurfjármögnun. Hámarkslán
kr. 6.000.000. Vextir 7,10%.
Lán til skuldbreytingar
afborgana. Lánað til
skuldbreytingar gjaldfallinna
afborgana í fast lán. Skilyrði fyrir
lánveitingu er að gjaldfallnir vextir,
dráttarvextir og annar kostnaður sé
greiddur. Að jafnaði skal ekki veita
hverjum lánþega slíkt lán oftar en
einu sinni. Vextir 7,40%.
6. Önnur lán
Lánasjóðurinn veitir lán til ýmis konar
framkvæmda og atvinnustarfsemi í
sveitum sem tengjast landbúnaði.
Lán til fjárrétta og
leitarmannahúsa. Lánað til
byggingar fjárrétta,
leitarmannahúsa og tilheyrandi
aðstöðu að mati sjóðsins.
Lán til fiskiræktar í ám og
vötnum. Lánað til byggingar
veiðihúsa og annarra mannvirkja í
eigu félagssamtaka bænda.
Hlunnindi. Lánað til bygginga og
búnaðar til nýtingar á hlunnindum,
s.s. byggingar dúnhreinsunarhúsa
og kaupa á dúnhreinsunarvélum.
Vatns- og hitaveituframkvæmdir.
Lánað til framkvæmda frá
stofnæð/lind/holu að húsi, þ.m.t.
hvers konar lagnir, dælur, dæluhús
og nauðsynlegur búnaður í þeim.
Ekki er lánað til borunar á
vinnsluholum, né búnaðar í þeim,
og ekki er lánað vegna kostnaðar
sem kann að hljótast af inntaki eða
breytinga sem kunna að vera gerðar
innanhúss.
Rafstöðvar í sveitum. Lánað til
byggingar heimarafstöðva og
markaðsrafstöðva, þ.m.t. gerð
vatnsmiðlunar, stöðvarhúss og
búnaðar. Skilyrði fyrir lánveitingu
er að fyrir liggi frumathugun og
faglegt mat á virkjunarkostinum
sem staðfest er af viðurkenndum
sérfræðingum, að gert hafi verið
arðsemismat af aðila sem
Lánasjóðurinn viðurkennir, að
gerður hafi verið samningur til
a.m.k. 10 ára um sölu raforkunnar
og að allra tilskilinna leyfa til
framkvæmdanna hafi verið aflað.
Lánshlutfall allt að 50% af
matsverði framkvæmda.
7. Til afurðastöðva og
þjónustustofnana við
landbúnað
Lánasjóðurinn veitir lán til kaupa,
byggingar eða varanlegra endurbóta
afurðastöðva, þ.e. mjólkurstöðva,
sláturhúsa, kjötfrystihúsa,
kjötvinnslustöðva og birgðageymslna
fyrir jarðávexti og grænmeti. Einnig
veitir sjóðurinn lán til byggingar
ýmissa þjónustustofnana við
landbúnað, s.s. sæðingastöðva,
dýraspítala, kynbótastöðva og
búnaðarsambanda.
Lánað er til byggingar húss,
frárennslis-, vatns- og raflagna,
loftræstingar, hitakerfis, fastra
innréttinga og færibanda, undirstaða
véla, véla og vélbúnaðar, frágangs á
umhverfi, teikninga og eftirlits.
Lánshlutfall er allt að 50% af
matsverði lánshæfra framkvæmda,
lánstími allt að 20 ár. Vextir 6,95%
eða eftir ákvörðun sjóðsstjórnar
hverju sinni.
Annað
Sala greiðslumarks
Áður en greiðslumark er selt eða flutt
af jörð verður að afla skriflegrar
heimildar Lánasjóðsins, sbr. reglugerð
nr. 363/1996 og lög um samningsveð,
hvíli lán frá sjóðnum á viðkomandi
jörð. Sjóðurinn setur sem skilyrði
fyrir samþykki sínu að öll lán séu í
skilum eða tryggt að við söluna verði
þeim komið í full skil. Ennfremur er
veðmat jarðarinnar endurmetið og
áhvílandi lán hjá sjóðnum og á
veðréttum á undan, verða að rúmast
innan 65% af nýju mati jarðarinnar.
Um heimild til sölu greiðslumarks
verður að sækja skriflega og beiðni
þarf að fylgja veðbókarvottorð.
Lán flutt milli jarða
Lánasjóðurinn hefur heimilað að lán
séu flutt með greiðslumarki milli
jarða. Skilyrði fyrir því að slíkt sé
heimilað er að öll lán hjá sjóðnum á
báðum jörðum séu í skilum og að
fullnægjandi veð sé í þeirri jörð sem
greiðslumarkið er flutt á. Við slíka
flutninga eru vextir á niðurgreiddum
lánum hækkaðir í 6,05% og lánstími
styttur í 12 ár eftir því sem við á.
Skriflegri beiðni um lánaflutning þarf
að fylgja veðbókarvottorð þeirrar
jarðar sem lán flyst á.
Veðbandslausnir
Lánasjóðurinn getur heimilað
veðbandslausn á jörðum eða
jarðarhlutum. Sjóðurinn setur sem
skilyrði fyrir samþykki sínu að öll lán
séu í skilum. Lóðir undir íbúðarhús
jarðar og öll aðal útihús eru að jafnaði
ekki leystar úr veðböndum, en ef um
er að ræða lóð undir nýtt íbúðarhús
eða ef á jörðinni eru tvö íbúðarhús,
getur komið til greina að leysa þessar
eignir úr veðböndum. Við
veðbandslausn er veðmat jarðarinnar
endurmetið og áhvílandi lán hjá
sjóðnum og á veðréttum á undan
verða að rúmast innan 65% af nýju
mati jarðarinnar.
Eigandi þeirrar eignar, sem lán munu
áfram hvíla á, verður að sækja
skriflega um veðbandslausn. Þó getur
eigandi jarðar, jarðarhluta eða lóðar
sótt um veðbandslausn geti hann, t.d.
með kaupsamningi, sýnt fram á að
lánshafi hafi samþykkt
veðbandslausnina. Með beiðni um
veðbandslausn þarf að fylgja
veðbókarvottorð og uppdráttur eða
nákvæm lýsing á þeirri eign sem leysa
á úr veðböndum. Ennfremur
kaupsamningur, stofnskjal eða annað
sem skýrir ástæðu óskar um
veðbandslausn og afrit síðustu
gjaldseðla vegna áhvílandi veðlána.
Lánaflokkur Lánað Vextir Veð Láns- Láns- Afb.
vegna tími hlutfall frestur
Jarðakaupalán Jarðakaup 3,90% Í jörð 40 ár 65% Já
Jarðakaupalán Jarðakaup 6,95% Í jörð 25 ár 65% Já
Bústofnsk.lán Bústofnskaup 4,90% Í jörð 10 ár Sjá lánareglur Nei
Vélakaupalán Skráðar vélar 6,95% Í jörð 10 ár 65% Nei
Vélakaupalán Óskráðar vélar 6,95% Í jörð 10 ár 65% Nei
Framkvæmdalán Fjós 3,90-6,95% Í jörð 20-30 ár 65% Já
Framkvæmdalán Búnaður í fjós 3,90-6,95% Í jörð 12 ár 65% Nei
Framkvæmdalán Fjárhús 3,90-6,95% Í jörð 20-30 ár 65% Já
Framkvæmdalán Búnaður í fjárhús 3,90-6,95% Í jörð 12 ár 65% Nei
Framkvæmdalán Svínahús 3,90-6,95% Í jörð 20-30 ár 65% Já
Framkvæmdalán Bún. í svínahús 3,90-6,95% Í jörð 12 ár 65% Nei
Framkvæmdalán Alifuglahús 3,90-6,95% Í jörð 20-30 ár 65% Já
Framkvæmdalán Bún. í alif.hús 3,90-6,95% Í jörð 12 ár 65% Nei
Framkvæmdalán Hesthús 3,90-6,95% Í jörð 20-30 ár 65% Já
Framkvæmdalán Reiðskemmur 6,95% Í jörð 25 ár 65% Nei
Framkvæmdalán Gróðurhús 3,90-6,95% Í jörð 20-30 ár 65% Já
Framkvæmdalán Bún. í gróðurhús 3,90-6,95% Í jörð 12 ár 65% Nei
Framkvæmdalán Garðáv.geymslur 3,90-6,95% Í jörð 20-30 ár 65% Já
Framkvæmdalán Bún. í garðáv.g. 3,90-6,95% Í jörð 12 ár 65% Nei
Framkvæmdalán Loðdýrahús 3,90-6,95% Í jörð 20-30 ár 65% Já
Framkvæmdalán Bún. í loðd.hús 3,90-6,95% Í jörð 12 ár 65% Nei
Framkvæmdalán Loðdýrabúr 3,90-6,95% Í jörð 12 ár 50% Nei
Framkvæmdalán Hlöður 3,90-6,95% Í jörð 25-30 ár 65% Já
Framkvæmdalán Búnaður í hlöður 3,90-6,95% Í jörð 12 ár 50% Nei
Skuldbr.lán Endurfjármögnun 7,10% Í jörð 15 ár Sjá lánareglur Nei
Skuldbr.lán Sk.br. höfuðstóls 7,50% Í jörð 15 ár Sjá lánareglur Nei
Önnur lán Leitarm.hús og fjárréttir 6,95% Sv.sj. 15-20 ár 65% Nei
Önnur lán Veiðihús 6,95% Fasteign 15-20 ár 65% Nei
Önnur lán Veituframkvæmdir 6,95% Í jörð 20 ár 50% Nei
Önnur lán Rafstöðvar 6,95% Í jörð 40 ár 50% Nei
Afurðastöðvar Afurðastöðvar 6,95% Fasteign 20 ár 50% Nei
Gengistryggð lán Ýmis lán Breytilegir Fasteign 10 ár Hámark 65% Nei
Lánasjóður landbúnaðarins
Lánatafla 2004
Yfirlit yfir helstu lánaflokka og lánskjör
Öll ný lán eru verðtryggð miðað við vísitölu neysluverðs, nema gengistryggð lán,
Í gildi frá 1. janúar 2004
sem eru tryggð miðað við ákveðna myntkörfu.
Lántökukostnaður er samtals 2,5% (stimpilgjald 1,5% og lántökukostnaður 1,0%).
Þar við bætist þinglýsingarkostnaður kr. 1.200 fyrir hvert lán.
Gjalddagar eru 12 á ári nema óskað sé eftir færri gjalddögum.
Lánstími framkvæmdalána er almennt 30 ár vegna nýbygginga,
25 ár vegna viðbygginga og 20 ár vegna endurbóta.
Nánari upplýsingar er að finna í lánareglunum á vefsíðu Lánasjóðsins, www.llb.is,
eða með því að hafa samband við skrifstofu sjóðsins, sími: 480 6000, fax: 480 6001, netfang: llb@llb.is