Bændablaðið - 13.01.2004, Qupperneq 13

Bændablaðið - 13.01.2004, Qupperneq 13
Þriðjudagur 13. janúar 2004 13 Svínarækt. Lánað til byggingar svínahúsa, haughúsa, innréttinga og fóðrunarkerfa. Alifuglarækt. Lánað til byggingar alifuglahúsa með tilheyrandi búnaði að mati sjóðsins. Hrossarækt. Lánað til byggingar hesthúsa og áburðarkjallara. Einnig til byggingar reiðskemma með tilheyrandi aðstöðu að mati sjóðsins. Hámarkslán vegna reiðskemma er kr. 5.000.000. Garðyrkja. Lánað til byggingar gróðurhúsa og garðávaxtageymslna, pökkunaraðstöðu og tæknibúnaðar. Loðdýrarækt. Lánað til byggingar loðdýraskála, búra og tilheyrandi aðstöðu að mati sjóðsins. Lánshlutfall vegna kaupa á búrum allt að 50% af matsverði. Eingöngu er lánað til kaupa á nýjum búrum. Hlöður. Lánað til byggingar hlaða, fóðurgeyma fyrir laust fóður og korn, þurrkunarbúnaðar fyrir korn og annars búnaðar í hlöður. Lánshlutfall vegna kaupa á tæknibúnaði allt að 50%. Vélageymslur. Lánað til byggingar vélageymslna. 5. Lán til skuldbreytinga Lánasjóðurinn veitir lán til skuldbreytinga á lausaskuldum bænda sem tengjast búrekstrinum. Með lausaskuldum er átt við viðskiptaskuldir og veðskuldir með upphaflegan lánstíma skemmri en 5 ár. Lán til endurfjármögnunar. Lánað til endurfjármögnunar á föstum lánum og lausaskuldum bænda sem tengjast búrekstrinum með það að markmiði að bæta greiðslustöðu þeirra. Með umsókn um endurfjármögnunarlán skal fylgja tæmandi listi yfir skuldir umsækjanda og afrit af greiðsluseðlum eða staðfesting lánadrottins. Með endurfjármögnunarláni er í samvinnu við lánastofnanir og aðra lánadrottna reynt að tryggja að heildarlausn fáist á fjármálum umsækjanda. Skilyrði er að lántaki hafi viðunandi rekstrarforsendur eftir endurfjármögnun. Hámarkslán kr. 6.000.000. Vextir 7,10%. Lán til skuldbreytingar afborgana. Lánað til skuldbreytingar gjaldfallinna afborgana í fast lán. Skilyrði fyrir lánveitingu er að gjaldfallnir vextir, dráttarvextir og annar kostnaður sé greiddur. Að jafnaði skal ekki veita hverjum lánþega slíkt lán oftar en einu sinni. Vextir 7,40%. 6. Önnur lán Lánasjóðurinn veitir lán til ýmis konar framkvæmda og atvinnustarfsemi í sveitum sem tengjast landbúnaði. Lán til fjárrétta og leitarmannahúsa. Lánað til byggingar fjárrétta, leitarmannahúsa og tilheyrandi aðstöðu að mati sjóðsins. Lán til fiskiræktar í ám og vötnum. Lánað til byggingar veiðihúsa og annarra mannvirkja í eigu félagssamtaka bænda. Hlunnindi. Lánað til bygginga og búnaðar til nýtingar á hlunnindum, s.s. byggingar dúnhreinsunarhúsa og kaupa á dúnhreinsunarvélum. Vatns- og hitaveituframkvæmdir. Lánað til framkvæmda frá stofnæð/lind/holu að húsi, þ.m.t. hvers konar lagnir, dælur, dæluhús og nauðsynlegur búnaður í þeim. Ekki er lánað til borunar á vinnsluholum, né búnaðar í þeim, og ekki er lánað vegna kostnaðar sem kann að hljótast af inntaki eða breytinga sem kunna að vera gerðar innanhúss. Rafstöðvar í sveitum. Lánað til byggingar heimarafstöðva og markaðsrafstöðva, þ.m.t. gerð vatnsmiðlunar, stöðvarhúss og búnaðar. Skilyrði fyrir lánveitingu er að fyrir liggi frumathugun og faglegt mat á virkjunarkostinum sem staðfest er af viðurkenndum sérfræðingum, að gert hafi verið arðsemismat af aðila sem Lánasjóðurinn viðurkennir, að gerður hafi verið samningur til a.m.k. 10 ára um sölu raforkunnar og að allra tilskilinna leyfa til framkvæmdanna hafi verið aflað. Lánshlutfall allt að 50% af matsverði framkvæmda. 7. Til afurðastöðva og þjónustustofnana við landbúnað Lánasjóðurinn veitir lán til kaupa, byggingar eða varanlegra endurbóta afurðastöðva, þ.e. mjólkurstöðva, sláturhúsa, kjötfrystihúsa, kjötvinnslustöðva og birgðageymslna fyrir jarðávexti og grænmeti. Einnig veitir sjóðurinn lán til byggingar ýmissa þjónustustofnana við landbúnað, s.s. sæðingastöðva, dýraspítala, kynbótastöðva og búnaðarsambanda. Lánað er til byggingar húss, frárennslis-, vatns- og raflagna, loftræstingar, hitakerfis, fastra innréttinga og færibanda, undirstaða véla, véla og vélbúnaðar, frágangs á umhverfi, teikninga og eftirlits. Lánshlutfall er allt að 50% af matsverði lánshæfra framkvæmda, lánstími allt að 20 ár. Vextir 6,95% eða eftir ákvörðun sjóðsstjórnar hverju sinni. Annað Sala greiðslumarks Áður en greiðslumark er selt eða flutt af jörð verður að afla skriflegrar heimildar Lánasjóðsins, sbr. reglugerð nr. 363/1996 og lög um samningsveð, hvíli lán frá sjóðnum á viðkomandi jörð. Sjóðurinn setur sem skilyrði fyrir samþykki sínu að öll lán séu í skilum eða tryggt að við söluna verði þeim komið í full skil. Ennfremur er veðmat jarðarinnar endurmetið og áhvílandi lán hjá sjóðnum og á veðréttum á undan, verða að rúmast innan 65% af nýju mati jarðarinnar. Um heimild til sölu greiðslumarks verður að sækja skriflega og beiðni þarf að fylgja veðbókarvottorð. Lán flutt milli jarða Lánasjóðurinn hefur heimilað að lán séu flutt með greiðslumarki milli jarða. Skilyrði fyrir því að slíkt sé heimilað er að öll lán hjá sjóðnum á báðum jörðum séu í skilum og að fullnægjandi veð sé í þeirri jörð sem greiðslumarkið er flutt á. Við slíka flutninga eru vextir á niðurgreiddum lánum hækkaðir í 6,05% og lánstími styttur í 12 ár eftir því sem við á. Skriflegri beiðni um lánaflutning þarf að fylgja veðbókarvottorð þeirrar jarðar sem lán flyst á. Veðbandslausnir Lánasjóðurinn getur heimilað veðbandslausn á jörðum eða jarðarhlutum. Sjóðurinn setur sem skilyrði fyrir samþykki sínu að öll lán séu í skilum. Lóðir undir íbúðarhús jarðar og öll aðal útihús eru að jafnaði ekki leystar úr veðböndum, en ef um er að ræða lóð undir nýtt íbúðarhús eða ef á jörðinni eru tvö íbúðarhús, getur komið til greina að leysa þessar eignir úr veðböndum. Við veðbandslausn er veðmat jarðarinnar endurmetið og áhvílandi lán hjá sjóðnum og á veðréttum á undan verða að rúmast innan 65% af nýju mati jarðarinnar. Eigandi þeirrar eignar, sem lán munu áfram hvíla á, verður að sækja skriflega um veðbandslausn. Þó getur eigandi jarðar, jarðarhluta eða lóðar sótt um veðbandslausn geti hann, t.d. með kaupsamningi, sýnt fram á að lánshafi hafi samþykkt veðbandslausnina. Með beiðni um veðbandslausn þarf að fylgja veðbókarvottorð og uppdráttur eða nákvæm lýsing á þeirri eign sem leysa á úr veðböndum. Ennfremur kaupsamningur, stofnskjal eða annað sem skýrir ástæðu óskar um veðbandslausn og afrit síðustu gjaldseðla vegna áhvílandi veðlána. Lánaflokkur Lánað Vextir Veð Láns- Láns- Afb. vegna tími hlutfall frestur Jarðakaupalán Jarðakaup 3,90% Í jörð 40 ár 65% Já Jarðakaupalán Jarðakaup 6,95% Í jörð 25 ár 65% Já Bústofnsk.lán Bústofnskaup 4,90% Í jörð 10 ár Sjá lánareglur Nei Vélakaupalán Skráðar vélar 6,95% Í jörð 10 ár 65% Nei Vélakaupalán Óskráðar vélar 6,95% Í jörð 10 ár 65% Nei Framkvæmdalán Fjós 3,90-6,95% Í jörð 20-30 ár 65% Já Framkvæmdalán Búnaður í fjós 3,90-6,95% Í jörð 12 ár 65% Nei Framkvæmdalán Fjárhús 3,90-6,95% Í jörð 20-30 ár 65% Já Framkvæmdalán Búnaður í fjárhús 3,90-6,95% Í jörð 12 ár 65% Nei Framkvæmdalán Svínahús 3,90-6,95% Í jörð 20-30 ár 65% Já Framkvæmdalán Bún. í svínahús 3,90-6,95% Í jörð 12 ár 65% Nei Framkvæmdalán Alifuglahús 3,90-6,95% Í jörð 20-30 ár 65% Já Framkvæmdalán Bún. í alif.hús 3,90-6,95% Í jörð 12 ár 65% Nei Framkvæmdalán Hesthús 3,90-6,95% Í jörð 20-30 ár 65% Já Framkvæmdalán Reiðskemmur 6,95% Í jörð 25 ár 65% Nei Framkvæmdalán Gróðurhús 3,90-6,95% Í jörð 20-30 ár 65% Já Framkvæmdalán Bún. í gróðurhús 3,90-6,95% Í jörð 12 ár 65% Nei Framkvæmdalán Garðáv.geymslur 3,90-6,95% Í jörð 20-30 ár 65% Já Framkvæmdalán Bún. í garðáv.g. 3,90-6,95% Í jörð 12 ár 65% Nei Framkvæmdalán Loðdýrahús 3,90-6,95% Í jörð 20-30 ár 65% Já Framkvæmdalán Bún. í loðd.hús 3,90-6,95% Í jörð 12 ár 65% Nei Framkvæmdalán Loðdýrabúr 3,90-6,95% Í jörð 12 ár 50% Nei Framkvæmdalán Hlöður 3,90-6,95% Í jörð 25-30 ár 65% Já Framkvæmdalán Búnaður í hlöður 3,90-6,95% Í jörð 12 ár 50% Nei Skuldbr.lán Endurfjármögnun 7,10% Í jörð 15 ár Sjá lánareglur Nei Skuldbr.lán Sk.br. höfuðstóls 7,50% Í jörð 15 ár Sjá lánareglur Nei Önnur lán Leitarm.hús og fjárréttir 6,95% Sv.sj. 15-20 ár 65% Nei Önnur lán Veiðihús 6,95% Fasteign 15-20 ár 65% Nei Önnur lán Veituframkvæmdir 6,95% Í jörð 20 ár 50% Nei Önnur lán Rafstöðvar 6,95% Í jörð 40 ár 50% Nei Afurðastöðvar Afurðastöðvar 6,95% Fasteign 20 ár 50% Nei Gengistryggð lán Ýmis lán Breytilegir Fasteign 10 ár Hámark 65% Nei Lánasjóður landbúnaðarins Lánatafla 2004 Yfirlit yfir helstu lánaflokka og lánskjör Öll ný lán eru verðtryggð miðað við vísitölu neysluverðs, nema gengistryggð lán, Í gildi frá 1. janúar 2004 sem eru tryggð miðað við ákveðna myntkörfu. Lántökukostnaður er samtals 2,5% (stimpilgjald 1,5% og lántökukostnaður 1,0%). Þar við bætist þinglýsingarkostnaður kr. 1.200 fyrir hvert lán. Gjalddagar eru 12 á ári nema óskað sé eftir færri gjalddögum. Lánstími framkvæmdalána er almennt 30 ár vegna nýbygginga, 25 ár vegna viðbygginga og 20 ár vegna endurbóta. Nánari upplýsingar er að finna í lánareglunum á vefsíðu Lánasjóðsins, www.llb.is, eða með því að hafa samband við skrifstofu sjóðsins, sími: 480 6000, fax: 480 6001, netfang: llb@llb.is

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.