Bændablaðið - 13.01.2004, Blaðsíða 20

Bændablaðið - 13.01.2004, Blaðsíða 20
20 Þriðjudagur 13. janúar 2004 Athygli vekur að bókin er rituð af mikilli tilfinningu fyrir íslenskum mat. Jafnvel má ganga svo langt að segja að þjóðerniskennd og ást á íslenskum mat skíni í gegn á síðum bókarinnar! En hvers vegna rita næringarfræðingarnir bók um samlokur? Önnur nefnir að þeim hafi fundist Íslendingar nota einhæft álegg þrátt fyrir að eiga og framleiða fjölmargt sem hæfir vel góðum samlokum. "Hér á landi er mikið um úrvals hráefni sem hægt er að nota ofaná brauð en gleymist oft. Við getum tekið kalt lambakjöt sem dæmi og sömuleiðis fiskinn. Þá megum við ekki gleyma öllum ostunum okkar, grænmetinu, ávöxtunum og eggjunum," sagði Bryndís Eva. "Góð gróf samloka er eitt það besta sem fólk getur fengið sér ef það er svangt." Gott hráefni er undirstaða árangursríkrar matargerðar. "Hér á Íslandi erum við mjög heppin hvað þetta varðar. Víða erlendis ganga menn ekki að svona gæðum vísum," sagði Heiða Björg. Í samtalinu við þær stöllur kom fram að þær teldu eldhúsið ætti að vera miðstöð ánægju og gleði. "Hollur matur er bara venjulegur matur. Það er ekki flókið að útbúa hann og í bókinni eru margar hugmyndir um hvað hægt er að gera, einskonar hugmyndabanki." En er samloka skyndibiti? Já, segir Heiða Björg. " fólk á að grípa það sem til er í kæliskápnum og búa til eitthvað gott." Næringarfræðingarnir vilja - með bókinni - leggja sitt af mörkum til þess að fólk beini mataræðinu í hollari farveg. Þær predika ekki öfgar og segja að allt sé gott í hófi. Bæta við að matur sé meira en næring og orka - matur sé ást og gleði og hafi áhrif á tilfinningar og líðan. "Við verðum að láta okkur varða hvað við borðum, enda berum við ábyrgð á eigin heilsu," sagði Bryndís Eva og Heiða Björg leggur mikinn þunga í lokaorðin: "Hollur matur er bragðgóður. Málið er bara að borða ekki of mikið.“ Meðfylgjandi mynd var tekin í Bókabúð Máls og menningar. Bryndís Eva (t.v.) og Heiða Björg. Á liðnu ári kom út bókin Samlokur - grípandi góðgæti fyrir nautnafólk. Bókina skrifa tveir sérfræðingar í næringu og mat, Bryndís Eva Birgisdóttir og Heiða Björg Hilmisdóttir, en báðar lærðu þær næringarfræði í Svíþjóð. Heiða Björg rekur eldhús og matsali á Landspítalanum en Bryndís Eva vinnur hjá rannsóknarstofu næringarfræði við Háskóla Íslands og Landspítala auk þess sem hún kennir í HÍ. Bókin kostar rétt röskar eitt þúsund krónur og fæst í verslunum Hagkaupa, ýmsum bókabúðum og öðrum verslunum. Á Íslandi geta menn gengið að gæðunum vísum Á dögunum greindi Bændablaðið frá því þegar nýtt skrifstofuhúsnæði var tekið í notkun á Hvanneyri. Húsið er byggt fyrir tilstilli Borgarfjarðarsveitar, en þar eru hinar ýmsu stofnanir og fyrirtæki til húsa sem flest tengjast landbúnaði. Þetta eru: Búnaðarsamtök Vesturlands, Vesturlandsskógar, Landbúnaðarháskólinn, Hagþjónusta Landbúnaðarins, Framleiðnisjóður Landbúnaðarins, Landssamband kúabænda, P.J. byggingar, Héraðssetur Landgræðslu ríkisins og Orkuveita Reykjavíkur. Bændabl. tók meðfylgjandi myndir við opnunina. Við borðið sitja þau Bragi Þór Sigurdórsson, Akranesi, Haukur Þórðarson, starfsmaður Bútæknideildar Rala, Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, nemendi LBH og Sveinn Ingólfsson, verkfræðingur, Akranesi. Á myndinni til hliðar eru bræðurnir Sveinn og Guðmundur Bjarnasynir frá Brennistöðum. Erlendir ráðunautar í grænmetis- og kartöflurækt Á síðasta ári voru fengnir erlendir ráðunautar til að leiðbeina kartöflu- og grænmetisframleiðendum. Nú á nýju ári bætist við í hópinn norskur ráðunautur í útiræktuðu grænmeti, Kari Aarekol, en hún starfar hjá Jæren Forsöksring í Særheim í Noregi. Kari kemur þann 21. janúar og heimsækir framleiðendur og verður með fræðslufund í Garðyrkjuskólanum þann 23.janúar kl 13. Kari ætlar þar að segja frá útiræktun matjurta í Noregi, fjalla um helstu afbrigði í ræktun og að auki mun hún fjalla sérstaklega um ræktun á íssalati. Þann 27. janúar kemur síðan Jan Boersma, sem kom hingað í tvígang í fyrra, og heimsækir gúrku- og tómatbændur en hann verður að auki með fundi þar sem hann segir frá helstu nýjungum í ræktun þessara tegunda. Fyrstu vikuna í febrúar kemur síðan Chris Verberne paprikuráðunautur og heimsækir og heldur fund með paprikuframleiðendum. Benny Jensen kartöfluráðunautur kemur síðan í heimsókn í vikunni 16. - 20. febrúar. Benny mun heimsækja framleiðendur og halda síðan fund með þeim þar sem farið verður yfir vorverkin s.s. forspírun, jarðvinnslu og áburðargjöf. Einnig mun hann fjalla um illgresiseyðingu og sjúkdóma. Þeir sem hafa áhuga á að Benny eða aðrir ráðunautar fjalli um einhver tiltekin vandamál eru hvattir til að hafa samband við Magnús Á. Ágústsson ráðunaut í síma 899 4178. Glæsilegt hótel í Sælingsdal Húsnæði fyrrum heimavistarskólans að Laugum í Sælingsdal í Dalasýslu hefur sl. þrjú ár verið rekið sem heilsárshótel eða síðan hætt var að kenna að Laugum og skólinn fluttur í Búðardal. Yfir sumarið er rekið þar Edduhótel en yfir veturinn sér fyrirtækið Dalagisting um reksturinn og tekur þá á móti hópum. Matföng koma frá verslun og veitingastað sem rekinn er í Búðardal. Sveinn Gestsson sér um að taka niður pantanir og reksturinn yfir veturinn. Hann sagði að nokkuð væri um það á veturna að kórar kæmu og notuðu tímann til æfing sem og íþróttahópar. Einnig er nokkuð um að hótelið sé notað til fundahalda. Sveinn segir að nýtingin yfir veturinn mætti vera betri og því væri hverjum hópi sem pantar gistingu fagnað. Pöntun- arsíminn á hótelinu er 434-1264. Glæsileg matvöruverslun

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.