Bændablaðið - 13.01.2004, Blaðsíða 23

Bændablaðið - 13.01.2004, Blaðsíða 23
Þriðjudagur 13. janúar 2004 23 Tillaga um að fastráða sálfræðing við heilsu- gæslustöðvarnar á Suðurlandi Á aðalfundi Sambands sunn- lenskra sveitarfélaga, SASS, í nóvember bar Ragnheiður Hergeirsdóttir fram tillögu um að skora á stjórnvöld að tryggja til frambúðar stöðu sálfræðings við heilsugæslustöðvarnar á Suðurlandi. Ragnheiður sagði í samtali við Bbl. að sálfræðingur hefði verið ráðinn frá ári til árs undan- farin ár og því árleg óvissa um framhald ráðningarinnar. Upp- haflega var um tilraunaráðningu að ræða en þessi staða sé afar mikilvæg og því nauðsynlegt að fastráða sálfræðing. Tveir sál- fræðingar hafa skipt starfinu á milli sín undanfarið. Í tillögunni er skorað á þingmenn Suðurkjör- dæmis og Alþingis að setja fjár- magn í uppbyggingu geðheil- brigðisþjónustu á svæði SASS. Umsókn um orlofs- styrk/orlofsdvöl Hér að neðan er að finna umsóknareyðublað um orlofsstyrk eða orlofsdvöl að Hólum sumarið 2004. Gert er ráð fyrir að, auk úthlutunar orlofsvikna að Hólum, verði í ár úthlutað u.þ.b. 70 orlofsstyrkjum til bænda. Upphæð hvers orlofsstyrks verður kr. 28 þúsund miðað við sjö sólarhringa samfellda orlofsdvöl, innanlands en kr. 4 þúsund á sólarhring við styttri dvöl. Vinsamlegast raðaðu í forgangsröð hvort þú óskir frekar úthlutunar orlofsstyrks eða orlofsdvalar að Hólum með því að merkja 1 og 2 í viðkomandi reiti (bara 1 ef einungis annað hvort kemur til greina). Frestur til að skila inn umsóknum rennur út 1. mars 2004. (Athugið að þeir sem fengu úthlutað orlofsstyrk á sl. ári og nýttu ekki þurfa að sækja um að nýju). Orlofsstyrk árið __________ Í Ásborgum árið ________ _________ Að Hólum árið _________________ Undirrituð/Undirritaður sækir hér með um: Orlofsdvöl að Hólum Nafn umsækjanda Kennitala Heimilisfang Símanúmer Undirskrift og dagsetning Póstnúmer og staður Hefur þú fengið úthlutað orlofsdvöl eða orlofsstyrk hjá Bændasamtökunum áður? Ef já, hvar og hvenær fékkstu síðast úthlutað? Hvernig búskap stundar þú? Orlofsstyrk Tímabilið Já Nei Já Nei Já Nei Sendist til Bændasamtaka Íslands, Bændahöllinni v/Hagatorg, 107 Reykjavík, merkt: Orlofsdvöl sumarið 2004 fyrir 1. mars nk. Sumarið 2004 ......... sagan segir að bóndi nokkur hafi óvart gleypt heilt glas af Viagra. Honum er haldið sofandi í mjaltavél. án ábyrgðar Þorrablót? Aðalfundur? Deildarfundur? Sýning? Auglýstu það sem er að gerast í sveitinni í Bændablaðinu. Sendu upplýsingar um atburði á bbl@bondi.is eða notaðu faxið 552 3855. Síminn er 563 0300. VANDA- MÁL? HAUGHÚS - FLEYTIFLÓRAR Stíflast í flórnum? - Ammoníakstækja? - Fúlnar haugurinn? Brennisteinsvetni? Penac-g íblöndunarefni mýkir skítinn og gerir honum kleift að brjóta sig niður á skömmum tíma. Flórarnir stíflast ekki og renna betur til. Skíturinn verður mun betri áburður á túnin. Mikið notað í lífrænni ræktun. Penac-g er jafngott fyrir svína- sem kúaskít. Eitt kíló Penac-g í 100 tonn af skít. Verð kr. 4.200/kg m/VSK. Hringið og fáið upplýsingabækling. Penac-g sent gegn póstkröfu. Lífrænar afurðir ehf. 861-9822. Polaris Sportsman 700 4x4 árg 02 Polaris Big Boss 400 6x6 árg 95 Yamaha Big Bear 400 4x4 árg 02 Yamaha Big Bear 400 4x4 árg 01 Yamaha kodiak 400 4x4 árg 03 Polaris Sportsman 500 4x4 árg 00 Góð Hjól á góðu verði með VSK Plus Gallery ehf - s: 898-2811

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.