blaðið - 06.05.2005, Blaðsíða 38
FUROULBQASTA
ÆVINTÝftl ALHEINh
SINS HBFST MQAR
JQRDIN BNDAR
BYGGÐ A EINNI
VINSÆLUSTU BÓK
ALHEIMSINS EFTIR
DOUGLAS ADAMS
fBIUtó U• IWfHltfH I í- ðHUjyfiTiílt 'l:f3
Jjny? SHi\\á ~ í1!' Éi
NU I BIO!
REYKJAVIK • KEFLAVIK • AKUREYRI
Paris Hilton á enga vini
Paris Hilton hefur sagt frá því að hún eigi aðeins nokkra alvöru vini. Haft var
eftir henni á frumsýningu myndarinnar „The House of Wax“ að hún ætti eigin-
lega enga alvöru vini fyrir utan íjölskylduna og kærastann. Paris sagði að hún
hefði verið mikið úti á lífinu með fólki sem þættist vera vinir hennar en væri í
rauninni alveg sama um hana. Paris sagðist líka vilja stofna fiölskyldu innan
þriggja ára með kærastanum sínum Paris Latsis.
föstudagur 6. maí 2005 I blaðið
------------
Það er sumar í lofti og undanfar-
ið hefur sést til tvíburanna Arn-
ars og Bjarka Gunnlaugssona
spóka sig um á golfvellinum í Mos-
fellsbæ. Á meðan þeir njóta útiver-
unnar hefur sést til fyrrverandi
kærasta þeirra, Helgu Lindar
og Gyðu, á djamminu með ekki
ómyndarlegri mönnum en töffur-
unum úr Vinyl.
íslendingamir halda áfram að
meika það í útlöndum en frétt-
ir herma að nýjasta afurð Jóns
Ólafssonar og Kristjáns sonar
hans, Icelandic Glacier Water, sé
að slá í gegn hjá öllum stjömun-
um í Cannes. Mun íslenskt vatn
flæða þar um í öllum VLP-partíum
sem haldin em og er það fáanlegt
á öllum böram og veitingastöðum
sem þykja hvað flottastir.
Búist er við að næsta tölublað
Mannlífs, sem kemur út eftir
helgi, veki gríðarlega eftirtekt. Þar
er meðal annars að finna stórt við-
tal við Jónínu Benediktsdóttur
þar selfi hún ræðir opinskátt um
líf sitt|og samband við Jóhann-
es í Bónus. Einnig upplýsir hún
hvað varð til þess að margboðuð
bók hennar kom ekki út. &
Elle er ekki með Colin Farreil
Elle MacPherson hefur vísað því á bug að hún og sjarmatröllið Colin Farrell
séu að verða par en fréttir herma að þau hafi fengið sér drykki á hóteli á
Bahama-eyjum.
Hin 42 ára ofurgella hló að þessum fréttum og sagði Farrell fullungan fyrir
sinn smekk. Samkvæmt ITV.com átti Elle að sagst hafa hitt ungan fallegan
írskan strák á Bahama-eyjum. „Greyið, Colin,“ sagði Elle. „Hann hlýtur að vera
í rasli ef fólk heldur að hann sé að púkka upp á 42 ára útbrannið módel.“ s
Clooney biðst afsökunar
Leikarinn George Clooney hefur sent um 300 afsökunarbréf til ná-
granna sinna í ítalska bænum Laglio. Sögusagnir hafa verið uppi um
að Clooney ætli að kaupa einu almenningsströndina í bænum til að
geta fengið frið. Hins vegar segir Clooney að þetta sé algjört rugl og
ætlar nú að bæta fyrir þennan misskilning með því að taka ströndina í
gegn á eigin kostnað.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem leikarinn þarf að skrifa bréf til ná-
granna sinna en hann olli þeim víst miklum óþægindum þegar tökur á
atriðum úr myndinni Ocean’s Twelve fóru fram í þorpinu.
J-Lo fyrsti kvenkyns forseti
Bandaríkjanna
Jennifer Lopez langar til að
verða fyrsti forseti Bandaríkj-
anna en sagðist þó þurfa að inn-
rétta Hvíta húsið upp á nýtt áður
en hún myndi flytja inn. Henni
þykja innréttingarnar víst ekki
vera nógu notalegar og því yröi
það hennar fyrsta verk.
Ekkert brúðkaup hjá
Cameron og Justin
Cameron Diaz hefur þvertekið
fyrir að hún og Justin Timber-
lake ætli að ganga í hjónaband
um helgina.
Því var haldið fram að parið ætl-
aði að ganga upp að altarinu um
helgina í Suður-Frakklandi eftir
að heimildarmaður á Nice Grand
Hotel sagði blaðamönnum að þau
væru búin að bóka allt hótelið fyr-
ir „sérstaka veislu“.
Þrátt fyrir þetta neita talsmenn
Cameron þessu alfarið og segja
þetta helberan uppspuna, enda
séu þau ekki einu sinni trúlofuð.
Justin er víst á leiðinni í aðgerð
eftir að hnúðar fundust í hálsin-
um á honum.
Oprah ræður
hundasálfræðing
Oprah Winfrey hefur ráðið til
sín einn frægasta hundasálfræð-
ing Bandaríkjanna til að hjálpa
Pooch, Cocker-Spaniel tíkinni
sinni. Tíkin, sem Oprah lítur á
sem dóttur sína, á víst við vanda-
mál að stríða en Oprah telur að
það sé sér að kenna.
Cesar Milan, sem gengur undir
nafninu Hundahjálparinn, ætlar
því að mæta í settið hjá Opruh
og reyna að laga þau sálrænu
vandamál sem hundurinn kann
að hafa. m