blaðið - 06.05.2005, Blaðsíða 6

blaðið - 06.05.2005, Blaðsíða 6
föstudagur 6. maí 2005 I blaðið Steingrímur J. Sigfússon: „Það erum því aðallega við í Vinstri-Grænum og þingmenn Frjáisiynda fiokksins sem stöndum vaktina. ” Olund á þingi Steingrímur J. segir sérkennilegt ástand á þingi „Það hefur verið ólundarlegt jdir- bragð á störfum þingmeirihlutans og nú á síðasta sprettinum eru fjögur til fimm frumvörp sem við í stjómarand- stöðunni viljum koma í veg fyrir að fái afgreiðslu,” segir Steingrímur J. Sigfusson, formaður Vinstri-Grænna, um störf þingsins en áætlað er að þeim ljúki fyrir hvítasunnu. Steingrímur nefnir fyrst um- deilt frumvarp um Ríkisútvarpið. „Þetta er gallað frumvarp og það vaeri synd að setja allt upp í loft á nýjan leik í þessum íjölmiðla- málum með því að þvinga fram ótímabæra afgreiðslu þessa frum- varps,” segir hann. „Við í stjórnar- andstöðunni höfum einnig miklar efasemdir um ágæti frumvarps um samkeppnislög sem virðist til þess gert að losna við yfirmenn og setja aðra í starf þeirra, sem er gamalkunnug aðferð. Frumvarp um vatnalög er vitlaust og illa unnið. Hið sama má segja um fjar- skiptalög þar sem sterkar kvaðir eru settar á íjarskiptaaðila um að annast hleranir. Við gerum einnig miklar athugasemdir við frumvarp um mat á umhverfisá- hrifum.” Steingrímur segir sérkennilegt ástand ríkja á þinginu þessa dag- ana: „Það er margt sem virkar truflandi á þingmenn Sjálfstæðis- flokks, í Framsóknarflokknum er hver höndin upp á móti annarri og þingmenn Samfylkingarinnar eru uppteknir af formannskosn- ingu. Það erum því aðallega við í Vinstri-Grænum og þingmenn Fijálslynda flokksins sem stönd- um vaktina.” Framboðin fá ekki upplýsingar Ekki er vitað hversu margir hafa þegar greitt atkvæði í formanns- kjöri Samfylkingarinnar. Að sögn Flosa Eiríkssonar, formanns kjör- stjórnar, eru starfsmenn flokks- ins rétt að hefja merkingar við nöfn þeirra sem kosið hafa og fæst fyrst hugmynd um fjöldann eftir nokkra daga. Aðspurður sagði Flosi að fram- boðin tvö fengju ekki upplýsingar um hveijir hefðu greitt atkvæði, enda samrýmdist það ekki stefnu flokksins um meðferð persónuupp- lýsinga. Össur Skarphéðinsson hefur birt milliuppgjör kosningabaráttu sinnar, þar sem fram kemur að það hafi kostað um 1,3 milljónir króna fram að þessu og standast á endum tekjur og gjöld frarn- boðsins. Aðsögn Ólaf- íu Rafnsdóttur, kosningastjóra Ingibjargar Sól- rúnar Gísla- dóttur, hyggst framboð henn- ar ekki birta milliuppgjör, en mun gera fjármál framboðsins opinber að formanns- kjöri loknu. Alls hafa um tuttugu þúsund manns atkvæðisrétt í kjörinu, sem lýkur 19. maí. Kjöri formanns verður lýst á landsfundi Samfylk- ingarinnar sem haldinn verður í Egilshöll 20.-22. maí. Flosi Eiríksson Frábært úrval fyrir börn og unglinga af flottum baöfatnaði fyrir sumarfríiö Reynir Traustason. Hefur fengið afhent myndbönd sem gerð voru upptæk. Ritstjóri og sýslumaður sættast Mikla athygli vakti þegar Reynir Traustason, rithöfundur og rit- stjóri, var handtekinn á Keflavík- urflugvelli í síðasta mánuði. Hann upplýsti tollverði um að hann væri með hálft gramm af kókaíni í fórum sínum, innpakkað í bók um Stalín og blandað sápu. Reynir var eins og kunnugt er að sækja sér þekkingu og reynslu vegna bókar um fíkniefnaheiminn, sem hann vinnur að fyrir Eddu út- gáfu. Kókaínið var ekki það eina sem gert var upptækt. Tollverðir tóku einnig í vörslu sína mynd- bönd með upptökum vegna heim- ildarmyndar sem Lýður Árnason og Jóakim Rejmisson hafa unnið að ásamt Þórhalli Gunn- arssyni handritshöfundi, samhliða ritun bókarinn- ar. Góð sátt hefur nú tekist á milli Reynis og Jóhanns R. Benedikts- sonar, sýslumanns á Keflavíkurflugvelli, eftir kókaínuppákomuna og mun Reynir greiða sekt vegna uppátækisins. í vikunni hittust þeir sýslumaður á rúmlega tveggja tíma löngum fundi, ásamt Þórhalli Gunnarssyni og Jóakim Rejmissyni. Sýslumaður afhenti þá myndböndin sem nú fara beint í klippingu. „Þetta var góður fundur með sýslu- manni og embætt- ismönnum hans,“ sagðir Reynir í stuttu samtali við Blaðið. „Við skildum sáttir og myndbandsmálinu er lokið.“ Hann segist ekki óttast að verða fram- vegis tekinn í ítarlega líkamsskoðun við heimkomu frá útlöndum. „En það gæti verið heppilegra að ég verði þá með húfu fremur en hattinn," segir hann og hlær. 11------- Vlðskild- um sáttir og mynd- bands- máiinu er lokið. Slysahætta barna eykst í góðæri - fátækari börn í aukinni hættu Alvarleg slys á börnum hafa auk- ist á þessu ári að sögn Herdísar Storgaard, slysavarnafulltrúa barna, en hún telur ástæður auk- innar slysatíðni einkum felast í aukinni þenslu, bjartsýni og aukn- um fjárráðum fólks. „Ég var að vinna á svæfinga- deild Borgarspítalans skattlausa árið 1987 og þá sáum við svipaða hluti. Slys á bömum jukust gríð- arlega þetta ár því það er eins og fólk hafi ekki varann á sér að sama skapi þegar fjárráðin aukast. Árið 1987 var fólk líka í stanslausri vinnu, enda verið að gera brejhingar á skattakerfinu sem gerðu fólki kleift að halda meiru eftir af tekjum sínum. í svona efnahagsuppsveiflu eins og núna verður léttara jdir fólki og það verður kærulausara.” Herdís segir að á undanfórnum misser- um hafi orðið mörg mjög alvarleg slys á bömum, sem sum hver hafi ekki ratað í fjölmiðla. „Foreldrar vilja oft ekki að greint sé frá þess- um málum, enda skammast þeir sín. Mér líst ekki vel á þetta ár ef ég miða við það sem á undan er gengið. Ég fór að taka eftir þessu í byijun ársins - bæði fjölgun slysa, sem ég hef ekki séð í langan tíma, og einnig slysum sem ég hef aldrei séð áður.” Herdís nefnir sem dæmi þegar tveimur ungum bömum var nýlega bjargað frá drukknun með skjótum viðbrögðum nærstaddra. „Drukknanir svona ungra barna við þessar aðstæður eru bara ekki til á skrá hjá okkur fyrr en núna en rannsóknir okkar spanna tutt- ugu ár. Þau börn sem hafa drukkn- að við ár, vötn og sjó voru áður mun eldri. Það er algerlega nýtt fyrir mér að yngri börn séu ekki leidd við þessar aðstæður.” Fátækt eykur líkur á slysum Herdís segir að efnahagur fólks og slysatíðni tengist einnig með öðr- um hætti en fyrrgreindum. „Það er augljóst að efnahagur fólks hefur áhrif á slysatíðni. Fátækara fólk hefur ekki efni á að kaupa örygg- isbúnað, sem er oft dýr, eða not- ar lélegan búnað sem fá má fyrir minni peninga. Þá keyra þeir sem tekjulægri em einnig lélegri bíla. Rannsóknir sýna líka að börnum fátækra foreldra er hættara við slysum en hinum.” Herdís segir að sér finnist vel athugandi að taka í gagnið einhvers konar afsláttar- kerfi á öryggisbúnaði barna fyrir tekjulægra fólk og nú þegar hafi fólk í erfiðri stöðu spurst fyrir um slíkt kerfi hjá Árvekni. Eitrunarslysum fjölgar Alvarleg slys á börnum vegna eitr- unar hafa einnig aukist síðustu misseri. Herdís segir að nú sé kom- in ný kjmslóð foreldra sem voru börn þegar ungur drengur lenti í hryllilegu slysi árið 1985. Hann gleypti sem jafngildir tveimur Herdís Storgaard teskeiðum af uppþvottavéladufti sem veldur mjög alvarlegri eitr- un. Drengurinn missti vélindað og hálfan magann en Herdís segir að unga fólkið nú til dags muni ekki eftir þessu og því þurfi að efla um- ræðu um eiturefriavarnir. „Upp úr árinu 2000 fór eiturefnaslysum að ijölga aftur. Þetta eru skelfi- leg slys því uppþvottavélasápa er eitt af allra hættulegustu efnun- um sem fólk geymir inni hjá sér. Það er algerlega nauðsynlegt að geyma þetta efni á öruggum stað þar sem börn ná ekki til því það er skylda foreldranna að tryggja öryggi bama sinna.”

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.