blaðið - 06.05.2005, Blaðsíða 12

blaðið - 06.05.2005, Blaðsíða 12
 Dýrara að kaupa frá Bandaríkjunum - Dollarinn kominn í rúmar 64 krónur Gengi íslensku krónunnar hefur snar- lækkað undanfama daga og er doll- arinn kominn í um 64 krónur. Fyrir örfáum vikum var gengið í kringum 58 krónur. Þetta er um 10% breyt- ing á skömmum tíma. Eins og kunn- ugt er hafa íslendingar verið manna duglegastir við að kaupa vömr frá Bandaríkjunum undanfama mánuði og er hætt við því að sá áhugi dvíni ef þessi þróun heldur áfram. Hundmð innfluttra bíla bíða eigenda sinna á hafnarbakkanum í Reykjavík og bið er eftir skipaflutningum til landsins. í þessu sambandi er rétt að minnast þess að bankarnir hafa spáð því að krónan muni falla um 25-30% í lok þessa árs eða í byrjun þess næsta, þannig að þetta gæti verið forsmekk- urinn að því sem koma skal. Lands- bankinn veltir upp þeim möguleika hvort sú ákvörðun ríkissjóðs að greiða upp 100 milljóna dollara skammtíma- lán sé tilraun til að veikja krónuna. Bendir bankinn á að styrking krón- unnar hafi verið mörgum útflutnings- fyrirtækjum þungbær. Þá muni sala Símans kalla á umtalsvert innflæði gjaldeyris þannig að staðan á gjald- eyrismarkaði ætti að verða rúm eftir nokkra mánuði. ■ Hlutabréf lækka Úrvalsvísitala hlutabréfa hefur hækk- að um 20% frá áramótum og á síðustu 12 mánuðum hefur hún hækkað um 50%. Þetta eru miklar hækkanir sem bætast ofan á afar gott síðasta ár á markaði. Síðasti viðskiptadagur í Kauphöllinni var þó rólegur og hafa væntanlega einhveijir verið að inn- leysa hagnað. Þanniglækkaði Úrvals- vísitalan um 0,67%. Mesta lækkun varð á bréfum Hampiðjunnar, eða um 3%, auk þess sem bréf í Bakkavör lækkuðu um 2%. Mestu viðskipti voru með bréf Og fjarskipta, sem lækkuðu um rúmt prósent, en fyrirtækið til- kynnti um 200 milljóna hagnað á fyrsta ársfjórðungi. Uppsagnir Bandaríska tölvufyrirtækið IBM tilkynnti í fyrrakvöld að um 13 þúsund starfsmönnum yrði sagt upp störfum á naestunni. Uppsagnirnar munu fyrst og fremst eiga við um starfsmenn í Evrópu. Um 500 starfsmenn IBM í Svíþjóð fengu uppsagnarbréf í mars. Afkoma IBM fyrstu mánuði ársins var langt undir væntingum og koma þess- ar aðgerðir því ekki á óvart... Þolinmæði... Eigendur bréfa í deCODE, móðurfélagi íslenskrar erfðagreiningar, hafa átt erfiða tíma undanfarin ár. Nýjasta upp- gjör fyrirtækisins gefur ekki ástæðu til sérstakrar bjartsýni og er gengi bréfa í fyrirtækinu nú í kringum sex dollarar á hlut. Fyrirtækið hefur breytt áherslum sínum og snúið sér meira að lyfjaþróun. Þar er vonin um ávinning meiri og vissulega hefur deCODE náð athyglisverðum árangri á stuttum tíma. Hörðustu stuðningsmenn fyrirtækisins benda jafnframt á að bandaríski hluta- bréfamarkaðurinn hafi verið afar dapur undanfarin ár. Þannig er Nasdaq-vísi- talan rétt rúmlega 1.900 stig en hæst fór hún yfir 5.300 stig áður en bólan sprakk (marsmánuði árið 2000. KB banki bendir á í hálffimm fréttum sínum að forráðamenn Carlsberg- fyrirtækisins hafi fulla ástæðu til að gleðjast þessa dagana. Ástæðan er sú að fyrirtækið auglýsir merki sitt á treyj- um Liverpool, en liðið er komið í úrslit Meistaradeildar Evrópu. Gert er ráð fyrir að um 500 milljónir manna muni fylgjast með úrslitaleiknum og þar með verður auglýsing Carlsberg held- ur betur í sviðsljósinu. Samningurinn við Liverpool kostar fyrirtækið um 50 milljónir danskra króna á ári og segja má að þeim peningum sé vel varið... Carlsberg hagnast blaðið- Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson. Ritstjóri: Karl Garðarsson. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn og auglýsingar: Bæjarlind 14-16, 201 Kópavogur. Aðalsími: 510-3700. Simbréf á fréttadeild: 510- 3701. Simbréf á auglýsingadeild: 510-510-3711. Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: islandspóstur. Frjálst, óháð dagblað Blaðið, sem nú kemur út í fyrsta sinn, er óháð einstökum fyrirtækj- um, fyrirtækjagrúppum, stjórnmálaflokkum eða hreyfingum. Blaðið er aðeins háð lesendum sínum, sem auglýsendur vilja ná til. Engin leynd hvílir yfir því hverjir eiga einkahlutafélagið Ár og dag, útgefanda Blaðsins. Ábyrgð á efni Blaðsins lýtur prentlögum og siðareglum Blaða- mannafélags íslands. Blaðið mun því ekki setja sér sérstakar siðareglur. Blaðið flytur fréttir og fróðleik af mönnum og málefnum. Blaðinu er ekkert óviðkomandi. Blaðinu er ætlað að veita fyrirtækjum og stjórnvöldum aðhald og halda lesendum sínum upplýstum um það sem gerist í raun og veru. Vekja áhuga. Blaðið vegur ekki úr launsátri að einum né neinum. Blaðinu er ætlað að standa vörð um frjálst samfélag; samfélag þar sem gætt er jafnræðis; samfélag þar sem manngildi er sett ofar auðgildi; samfélag þar sem frelsi til athafna er allra. Blaðið er fyrsti íslenski fjölmiðillinn sem nær til meirihluta þjóðar- innar strax frá fyrsta degi. Blaðinu er þetta mögulegt vegna prent- samnings við Árvakur hf. og dreifingarsamnings við íslandspóst hf. Vegna þessara samninga er hægt að auka útbreiðslu Blaðsins, eins og að er stefnt á næstu mánuðum, án þess að fjárfesta þurfi í tækjum og tólum. Ár og dagur ehf. þarf ekki að eiga allt sem til starfseminnar þarf, eins og nú virðist ráðandi viðhorf hjá eigendum og stjórnendum of margra fyrirtækja hér á landi. Ár og dagur hf. vill eiga friáls og óþving- uð viðskipti við önnur fyrirtæki. 1 E D Fjölbreytt úrval Sértilboð Sölumenn samningsstuði émk Éjmt ||Op I 4,4% vextir Laugavegi 174 Sími 590 5040 www.bilathing.is Nú er tækifærið til að fá sér jeppa fyrir sumarævintýrin. Á jeppadögum Bilaþings býðst þér fjölbreytt úrval jeppa og fjórhjóladrifsbila á frábærum kjörum. Sölumenn okkar eru í samningsstuði og bjóða einstök kjör á bílasamningum með aðeins 4,4% vöxtum. BÍLAÞINfiÉEKLU HEKLA* bilathing@hekla.is Gerðu frábær kaup í góðum jeppa fyrir sumarið. Númer eitt í notuðum bilum

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.