blaðið - 06.05.2005, Blaðsíða 28
föstudagur 6. maí 2005 I blaðið
ipti kynjanna
Rómantísku
hversdagsleiki
Gott samband kostar vinnu og tíma en það vill svo til að eftir að mesta spennan
er horfin fækkar oft stundunum sem nýttar eru í notalega samveru með makan-
um. Það er þó heill hellingur af skemmtilegum hlutum sem hægt er að gera til
þess að lífga upp á hversdaginn og láta blossann kvikna á ný. Við tíndum því til
nokkur góð ráð til þess að koma ykkur af stað.
full af skemmtilegum útivistarsvæð-
um og notalegu umhverfi til að njóta
fríska loftsins. Ef veðrið er gott getið
þið endað gönguna í Nauthólsvíkinni
og látið sólina sleikja ykkur.
Safnarölt
Það eru margar góðar sýningar á lista-
söfnunum og galleríunum í hverri
viku, þar sem allir ættu að geta fund-
ið eitthvað við sitt hæfi. Kíkið í Blaðið,
skoðið hvað er um að vera og drekkið í
ykkur menninguna saman.
Dekurdagur í stofunni
Það finnst öllum gott að láta dekra
við sig en fæstir gefa sér tíma í að
fara á snyrtistofuna. Ef þú vilt koma
elskunni þinni á óvart er upplagt að
útbúa eigið heima-spa í stofunni. Það
eina sem þú þarft er góður maski sem
þú getur fengið í apótekum eða snyrti-
vöruverslunum, slakandi ilmolíur,
kerti og fimir fingur.
Gönguferð
Það er bæði afslappandi og hollt að
fara út í gönguferð og Reykjavík er
Tjaldið úti í garði
Það jafnast ekkert á við að sofa úti í
náttúrunni en betra er að hafa tjald
með til að skýla sér frá mesta vindin-
um. Grípið með ykkur svefhpoka og
vasaljós og kúrið saman í tjaldinu í
garðinum. Það gerist varla róman-
tískara.
Matið hvort annað
Kryddið kvöldið með því að mata
hvort annað með bundið fyrir augun
þannig að makinn veit aldrei hveiju
hann á von á. Hér á síðunni má finna
nokkrar hugmyndir að erótísku góð-
gæti.
Teiknið hvort annað
Það þurfa engir hæfileikar að vera til
staðar til þess að þetta geti orðið fyrir-
taks skemmtun. Þið þurfið að rýna í
smáatriðin í andliti hvort annars og
sjá hvað það var í fari ykkar sem þið
heilluðust fyrst af. Svo er gaman að
hlæja að myndunum síðar.
Farið á kvöldnámskeið
Það þurfa allir að geta eldað og því
er upplagt fyrir hvaða par sem er að
skella sér á kvöldnámskeið í matar-
gerð. Lærið að elda ÍTamandi rétti og
prófið ykkur síðan áfram heima.
Erótískt góðgæti
Matur er ekki bara nauðsynleg nær-
ing. Matur er skemmtilegur, nautna-
fullur og getur verið mjög örvandi.
Kynlífsráðgjafinn Suzie Hayman
ræðir um goðsögnina um kynorkuauk-
andi máltíðir á vefsíðunni www.bbc.
co.uk. Þó að menn séu ekki endilega
sammála um raunverulega virkni
matvælanna þá getur hver sem er
kryddað ástarlífið með því að útbúa
gimilega máltíð fyrir elskuna sína.
Suzie Hayman nefnir aspas, ban-
ana, ostrur, fíkjur og ginseng sem
dæmi um kynorkuaukandi mat en
hún leggur áherslu á að gera máltíð-
ina sjálfa að erótískri athöfn. Það
kemst enginn í stuð með því einu að
skella í sig nokkrum fíkjubitum og
því er mikilvægt að gefa sér góðan
tíma í að útbúa kræsingamar saman
og mata hvort annað með smávægi-
legu góðgæti ef máltíðin á að hafa þau
áhrif sem leitast er eftir.
Þið getið hyrjað á að gæða ykkur
á jarðarberjum og kirsubeijum.
húðuðum með súkkulaði, og sötra
kampavín með. Berin, sem em
safarík og sæt, kitla bragðlaukana
og súkkulaðið hefur verið tengt ást-
arathöfnum í margar aldir. Til þess
að auka flölbreytnina má bæta við
banönum og ferskjum, sem eiga að
gefa aukna orku og kveikja erótísk-
ar hugsanir. Möndlulykt á einnig
að vera sérstaklega örvandi fyrir
konur og kavíar er sagður örva karl-
menn. Avókadó, gulrætur og sell-
erí eiga að kveikja kynorku beggja
kynja. Allt þetta er hægt að borða
með fingmnum, sem gerir borðhaldið
ennþá skemmtilegra. Síðan er bara
um að gera að nota ímyndunaraflið
og blanda saman öllu því sem ykkur
lystir, því veisla eins og þessi ætti að
geta lífgað upp á hvaða samband sem
er. Það eina sem þarf að gera er að
skokka út í næstu matvöruverslun
og bjóða makanum upp á forrétt sem
hann getur aldrei staðist.
Opið virha daga kl. 9-18,
laugprd. 12-16 og umnud. hl. 13-17
TANGARHÖFOA 1 SIMI 557 7720 ■ vikurverh.is
Kynörvandi ilmolíur
Ferómón í fljótandi formi
Ferómón eru lyktarlaus efni
sem mannslíkaminn framleiðir
sjálfur og eru sögð vera ástæða
þess að við löðumst að sum-
um einstaklingum en ekki
öðrum. Vísindamenn hafa
því lengi spáð í þessi
kynörvandi efni og nú
er hægt að kaupa
alls kyns tegund-
ir af iimvötn-
um, rakspírum,
b a ð o I í u m ,
nuddolíum og
svitalyktareyð-
um sem eiga
að innihalda
ferómón. Ekki
eru allir sammála
um að ferómón hafi
eitthvað með kynferðislegt aðdráttarafl
að gera, en fjölmargar kannanir sem
gerðar hafa verið á virkni ilmefnanna
sýna þó fram á að svo sé. Samkvæmt
þeim rannsóknum eiga þeir, sem baða
sig upp úr ferómónríku freyðibaði eða
skella á sig ilmolíum sem innihalda
efnin áður en haldið er út, auðveldara
með að hrífa hitt kynið en áður og
ástarlífið hjá stórum hluta bættist til
muna. Þegar nefið nemur ferómónin
sendir það örvandi boð til heilans sem
skilar sér í auknum áhuga á viðkomandi
einstaklingi. Þó að líkaminn framleiði
þessi kynörvandi efni sjálfur þá er alltaf
hægt að bæta við þau. Á heimasíöu
eBay, www.ebay.com, má finna mikiö
framboð ólíkra tegunda slíkra ilmefna
og því ættu allir að geta verið ómót-
stæðilegir í sumar.