blaðið - 30.05.2005, Síða 2
2
I
Tugir geðfatlaðra með 20 þús-
und krónur í tekjur á mánuði
Tugir einstaklinga, sem eru lang-
legusjúklingar á geðdeild, hafa aðeins
rúmar 20.000 krónur í vasapeninga á
mánuði til framfærslu.
Samkvæmt reglum Trygginga-
stofnunar er stór hluti örorkubóta
einstaklinga tekinn upp í sjúkra-
kostnað, dvelji viðkomandi í meira
en sex mánuði inni á sjúkrastofnun.
Margir geðfatlaðir einstaklingar eru
í langtímavistun á slíkum stofnun-
um og falla þá undir umrædda reglu
Tryggingastofnunar. Samkvæmt
heimildum Blaðsins hafa íjölmargir
félagsráðgjafar, og aðrir sem vinna
fyrir þennan hóp, þurft að leita eftir
aðstoð fyrir skjólstæðinga sína hjá
Rauða krossinum og Mæðrastyrks-
nefnd. Einn viðmælandi Blaðsins
benti á að þessir einstaklingar væru
margir algerlega ófærir um að ganga
slíkra erinda sjálfir og því
þyrfti einhver að gera það
fyrir þá.
Sveinbjörg Júlía Svavars-
dóttir, forstöðufélagsráðgj afi
á geðsviði Landspítala-há-
skólasjúkrahúss, segir vand-
ann mikinn þar sem ekki sé
í neina sjóði að leita.
„Við erum yfirleitt að fá
flatt nei við fyrirspurnum
og beiðnum um fjárhagslega
aðstoð fyrir þennan hóp. Við
þurfum oft að leggja mikla
vinnu í að sækja litlar upphæðir fyr-
ir þessa skjólstæðinga okkar - þurf-
um að áfrýja málum aftur og aftur.
Vandinn er raunverulegur - það er
augljóst að fyrir marga einstaklinga
sem veikjast og þurfa að leggjast
inn á sjúkrahús duga 20.000 krónur
engan veginn. Tekjur
skipta alla miklu máli
og það að eiga það yfir
höfði sér að missa stór-
an hluta þeirra veldur
þessum einstaklingum
kvíða. Þarna er oft um
að ræða einstaklinga
sem eiga maka og börn
og þurfa að reka heimili
þrátt fyrir veikindi sín.
Það er enginn sérstakur
sjóður, hvorki hjá ríki
né sveitarfélögum, sem
hægt er að sækja um í fyrir þennan
hóp. Sveitarfélögin eru reyndar örlít-
ið misjöfn með þetta - sum taka bet-
ur í fyrirspurnir og beiðnir okkar en
önnur og það er örlítið auðveldara að
fá styrki í kringum stórhátíðir," segir
Sveinbjörg.
Fyrirsjá-
anlegur
tekjumissir
veldur hópi
geðfatlaðra
kvíða.
mánudagur, 30. maí 2005 I blaðið
Tugir geðfatlaðra einstaklinga hafa aðeins 20 þúsund krónur í tekjur á mánuði.
Að sögn Jóns Kristjánssonar heil-
brigðisráðherra voru reglur um tekju-
stofn langlegusjúklinga rýmkaðar 1.
janúar 2004 og þá var lengdur sá tími
sem einstaklingur þarf að liggja inni
á sjúkrahúsi áður en tekjur hans eru
skertar.
„Nú er ennfremur hægt að sækja
um viðbótarframfærslu en þar er
hvert mál skoðað fyrir sig, enda
þurfum við alltaf að meta hvert mál
sérstaklega. Við erum alltaf að end-
urskoða þessar reglur, sérstaklega
í sambandi við tekjustofn aldraðra,
en staða þeirra er að mörgu leyti hlið-
stæð,“ sagði Jón.
Beðið fyrir Aroni Pálma
Fyrir guðsþjónustur gærdagsins lá
fyrir beiðni frá Biskupsstofu til al'lra
presta landsins um að gera mál Arons
Pálma að sameiginlegu bænarefni.
Þessi beiðni var send að ósk stuðn-
ingshóps Arons Pálma, eða RJF-
hópsins. Talsmaður hópsins, Einar
S. Einarsson, sagði í samtali við Blað-
ið að það væri komin hreyfing á bak
við tjöldin en að hópurinn hygðist
taka mjúklega á málinu. Næsta mál
á dagskrá væri að skrifa ríkisstjóra
Texas bréf, hugsanlega með vottorði
biskups, og segja meðal annars frá
bænarstundinni. Þá mun Valgerður,
móðursystir
Arons, fara
til Texas með
dætrum sínum,
en hún er í stöð-
ugu sambandi
við Aron. Þær
munu gista hjá
Aroni meðan á
dvölinni stendur. Aðspurður um líð-
an Arons segir Einar að hann haldi
sjó nokkuð vel, hann sýni aðdáunar-
verða þrautseigju en þrái mjög að
komast heim.
\w I
Hreyfing
á bak við
tjöldin.
Kjörið í útskriftarveisluna
Veislu- ©i
QlllZTÍOS* SllB fundabakkar
Ókeypis myndbönd
■■ 4.
Nýr afþreyingarvefur var opn-
aður á miðnætti 28. maí en þar
munu viðskiptavinir BT nets með-
al annars geta horft á bíómyndir
í fullri lengd og í hámarksgæðum
án niðurhals. Þessi tækni nefnist
„Video-On-Demand“. Þjónustan
er bara í boði fyrir þá sem eru
með ADSL-tengingar hjá BT net
og verður ókeypis í nánustu fram-
tíð, segir Engilbert Hafsteinsson,
sölu- og markaðsstjóri, en hann
bætir við að viðmiðið sé að búa
til myndasafn sem er „ódýrara en
myndbandaleiga og myndin alltaf
inni“.
Ný Hringbrautarakrein
opnuð tveimur dögum
á undan áætlun
í gær opnuðu Vegagerðin og Reykj a-
víkurborg nýja suður-akrein á Hring-
braut, en framkvæmdir við hana
hafa staðið yfir frá því síðasta sumar.
Upplýsingastjóri Framkvæmdasviðs
Reykjavíkurborgar sagði í samtali
við Blaðið að akreinin hefði verið opn-
uð tveimur dögum á undan áætlun
og að Hringbrautarverkefnið væri á
tímaáætlun í heild sinni. Ekki lágu
fyrir upplýsingar um hvort verkið
væri á kostnaðaráætlun. Næsta mál
á dagskrá verða gatnamót Snorra-
brautar og Hringbrautar en áætlað
er að vinna við þau hefjist 19. júní.
Verklok eiga að vera í október en þá á
að vera búið að ganga frá nýrri Hring-
braut. Núverandi Hringbraut mun
að öllum líkindum verða notuð sem
lóð fyrir Landspítalann.
n.
LM ci/wioA ésmb
Amsterdam 16
Barcelona 24
Berlín 18
Chicago 14
Frankfurt 17
Hamborg 15
Helsinki 15
Kaupmannahöfn 16
London 17
Madrid 22
Mallorka 27
Montreal 14
NewYork 16
Orlando 23
Osló 10
París 17
Stokkhólmur 15
Þórshöfn 5
Vin 29
Algarve 20
Dublin 12
Glasgow 12
Veðurhorfur í dag kl: 12.00
Veðursíminn
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands