blaðið - 30.05.2005, Síða 9
blaóið I mánudagur, 30. maí 2005
Neitar að segja af sér eftir nasistaummæli
Austurríski þingmaðurinn Siegfri-
ed Kampl hefur dregið aftur loforð
sitt um að segja af sér eftir ummæli
sín er lýstu hollustu í garð nasista.
Kampl, sem hefur verið orðaður
við forsetaembætti efri deildar aust-
urríska þingsins, lét þau orð falla
að austurrískir nasistar hefðu orðið
fyrir ofsóknum og ranglæti í kjölfar
hruns Þýskalands eftir síðari heims-
styrjöldina. I síðasta mánuði sagði
hann að faðir sinn hefði verið með-
limur nasistaflokks Hitlers „eins og
meira en 99% Austurríkismanna".
Þá sagði Kampl að ofsóknir í garð
austurrískra nasista, er gerðust lið-
hlaupar í lok seinni heimsstyijaldar,
hefðu verið „aftaka baráttubræðra
Austurríkis".
í gær tilkynnti Kampl að hann
stæði við ummæli sín. „Ef til vill gæti
ég orðað skoðanir mínar öðruvísi en
í grundvallaratriðum hefur afstaða
mín ekki breyst," sagði Kampl í við-
tali við útvarpsstöðina ORF í Aust-
urríki. „Ég segi ekki af mér, ég held
áfram að vera þingmaður og ég tek
við embætti forseta efri deildar þings-
ins,“ bætti hann við.
Kampl gaf þó út yfirlýsingu þar
sem hann sagðist ætla að segja sig
úr austurríska Framtíðarflokknum
sem er minni flokkurinn í samsteypu-
stjóm austurrísku ríkisstjórnarinn-
ar. Hann sagðist ekki vilja vera byrði
flokksbræðra sinna.
Kampl, sem einnig er bæjarstjóri
í bænum Gurk í Suður-Austurríki,
sagðist hafa ákveðið að segja af sér
vegna árásargjarnrar gagnrýni nú-
verandi forseta þingsins, Georges
Pehm, sem er lýðræðissinnaður jafn-
aðarmaður. Pehm hafði látið þau orð
falla að afsögn Kampls væri „eina
mögulega afleiðing ummæla hans“.
Ummæli Kampls vora sérstaklega
varhugaverð þar sem hægrisinnaði
þingmaðurinn John Gudenus hafði
í apríl vakið mikla reiði eft-
ir að hafa haldið því fram í
ræðu að enn ætti eftir að sýna
fram á að gasklefar hefðu ver-
ið notaðir í útrýmingarbúðum
nasista. Hann neitaði einnig
að segja af sér þrátt fyrir þrá-
láta innanlandsgagnrýni.
Staða forseta efri deildar
þingsins færist kerfisbund-
ið á milli þingmanna til að
tryggja að kröfur og þarfir
hvers kjördæmis hljóti hljóm-
grunn. Sitji Kampl áfram
mun hann því sjálfkrafa
hljóta stöðuna í júlí.
Stjómarandstaðan er æf af
reiði vegna málsins og hefur
krafist þess að kanslarinn
og valdamesti maður þjóðar-
innar, Wolfgang Schussel,
skerist í málið með beinum
aðgerðum.
Strippari í
barnaafmæli
34 ára gamalli móður í Nashville
í Bandaríkjunum hefur verið birt
kæra fyrir að leigja fatafellu fyrir
16 ára afmæli sonar síns. Faðir
drengsins og stripparinn voru líka
kærð fyrir að stuðla að því að börn
undir lögaldri tækju þátt í klám-
fengnu athæfi. Aðspurð sagði móð-
irin, Anette Pharris, að hún hafi
viljað gera daginn sérstakan fyrir
son sinn. Upp komst um verknað-
inn þegar Anette vildi framkalla
myndir úr veislunni. Starfsmenn
framköllunarstofunnarhöfðusam-
band við lögreglu, sem tók málin í
sínar hendur. „Hvað eru þeir að
segja mér hvað ég megi sýna börn-
unum mínum og hvað ekki?“ á An-
ette að hafa sagt.
Kaupmannahöfn:
Dyravörður
handtekinn
fyrir morð
Maður á þrítugsaldri lá í valnum og
annar fékk skot í lærið eftir að orða-
skipti áttu sér stað í fyrrakvöld við
Sankti Hans torgið í Kaupmanna-
höfn. Orsökin liggur ekki enn fyrir
en samkvæmt lögreglunni er hinn
látni einn af svokölluðum góðkunn-
ingjum hennar.
Atvikið var á þá vegu að fimm til
sex manna hópur fór að rífast við
dyravörð og félaga hans á veitinga-
staðnum Café Rust um hálfníuleytið
á laugardagskvöld. Hópurinn náði
að ýta þessum tveimur inn í nálægt
húsasund en þá skutu þeir á móti
hópnum. Eins og áður sagði lést einn
maður af skotsárum og annar særð-
ist. Dyravörðurinn hefur verið færð-
ur í gæsluvarðhald, sem og félagi
hans. Þeir neita báðir sök.
Bush skemmir
sumarfrí danskra
lögregluþjóna
Opinber heimsókn Bandaríkjafor-
seta til Danmerkur er á versta hugs-
anlega tíma, með tilliti til sumarfrís
danskra lögregluþjóna. Þetta segir
Peter Ibsen, formaður starfsmanna-
samtaka lögreglunnar, um áætlaða
heimsókn Bush til Danmerkur sem
mun standa yfir dagana 5. og 6. júh.
Ibsen telur að það þurfi í það
minnsta jafnmikla öryggisgæslu við
komu Bush og þurfti 1997 þegar Bill
Clinton heimsótti Danmörku en þá
voru 1.400 danskir lögreglumenn
sem sinntu öryggisgæslu forsetans.
„Þetta verður aðgerð sem nær um
allt landið, ekki aðeins Kaupmanna-
hafnarsvæðið. Þetta rústar því sum-
aráætlanir í mörgum umdæmum,"
segir Ibsen. Hann kveðst sannfærð-
ur um að óánægju muni gæta vegna
þessa fyrirkomulags en tekur þó
fram að lögreglan muni sinna örygg-
isgæslunni af heilum hug. „Þetta er
verkefni sem við þurfum að vinna,“
segir hann en tekur fram að yfir yf-
irvöld muni að öllum líkindum rigna
kröfum óánægðra starfsmanna, s.s.
um yfirvinnutilhögun og skerðingu
frítíma.
Hágæða >
sláttutæki
StlGK
Collector 45 sláttuvél
4 hestafla
B&S mótor
55 Itr. grashirðikassi
Combi 45S sláttuvél með drifi
4 hestafla
B&S mótor
55 Itr. grashirðikassi
Estate Pro 22 sláttutraktór
22 hestafla, sjálfskiptur
B&S mótor
300 Itr. grashiröikassi
Carden Combi sláttutraktór
12,5 hestafla, sjálfskiptur
B&S mótor
1 70 Itr. grashirðikassi
Vetrarsól ehf. Askalind 4 - Kópavogi - Simi 564 1864