blaðið - 30.05.2005, Síða 23

blaðið - 30.05.2005, Síða 23
í I I blaðið I mánudagur, 30. maí 2005 KA burstaði Þór KA-menn tóku nágranna sína í Þór í kennslustund í fótbolta þegar liðin mættust á Akureyr- arvelli á laugardag. Þegar stað- an var 1-0 fyrir KA rak Egill Már Markússon, dómari leiks- ins, Lárus Orra Sigurðsson af leikvelli og fannst mörgum sem á horfðu að það hefði verið allt- of strangur dómur. Þetta var á 37. mínútu fyrr hálfleiks. Pálmi Rafn Pálmason skoraði fyrsta mark leiksins á 12. mínútu. Þannig stóðu leikar þar til á 3. mínútu seinni hálfleiks þegar Steinn Símonarson jafnaði met- in fyrir Þór með marki úr víta- spyrnu. Aðeins tveimur mínút- um síðar var dæmd vítaspyrna á Þór og Jóhann Þórhallsson kom KA yfir, 2-1. Jóhann Helga- son skoraði 3-1 á 57. mínútu og á 59. mínútu skoraði Pálmi Rafn Pálmason sitt annað mark. Á 74. mínútu var öðrum Þórsara vikið af leikvelli þegar Dragan Simov- ic fékk að líta gula spjaldið öðru sinni og þar með rautt. Þórsarar voru því tveimur leikmönnum færri síðustu 15 mínútur leiks- ins og KA-menn nýttu sér það og skoruðu tvisvar og var Hreinn Hringsson að verki í bæði skipt- in. Lokatölur 6-1 fyrir KA. Stórsigur Víkings Víkingur í Reykjavík og Vík- ingur frá Ólafsvík mættust í Víkinni í Reykjavík og þar var algjör einstefna. Reykjavíkur- Víkingurinn Elmar Dan Sigþórs- son opnaði markareikninginn á 9. mínútu og þar með hófst markaveislan. Daníel Hjaltason skoraði úr vítaspymu. Davíð Þór Rúnarsson skoraði og Milos Glogovac kom Reykvíkingum í 4-0. Elmar Dan skoraði annað mark sitt í leiknum um miðjan seinni hálfleik. Hörður Bjama- son skoraði sjötta mark Víkings og Stefán örn Amarson skoraði sjöunda og síðasta markið. 7-0 fyrir Reykjavíkur-Víkinga. HK tapaði nokkuð óvænt á heimavelli fyrir KS. Branislav Zrnic og Ragnar Hauksson skor- uðu fyrir KS. Haukar mörðu sigur á Völ- sungi 1-0 með marki frá Hilmari Rafni Emilssyni. Næstu leikir: Emmtudagur Þá,Ak.-Breiðab. 2. júní Laugandagur HK-Völsungur 4. júní Sunnudagur KS-Vikingur, R 5. júní Sunnudagur Vikingur, O.-KA 5. júní Sunnudagur Fjölnir-Hajkar 5. júní Houllier tekur við Lyon Gerard Houllier, fyrmrn framkvæmdastjóri Liverpo- ol, hefur verið ráðinn næsti þjálfari frönsku meistaraima í Olympique Lyon. Houllier, sem er 57 ára, tekur við af Paul Le Guen sem sagði af sér fyrr í mánuðinum. Lyon hefur unnið franska meistaratitihnn síðast- liðin fjögur ár þannig að Houllier verður að vanda sig í þetta sinn. Samningurinn er til tveggja ára með möguleika á þriðja árinu. Everton að kaupa Cudicini? David Moyes, framkvæmda- stjóri enska úrvalsdeildarliðsins Everton, er samkvæmt breskum fjölmiðlum að undirbúa tilboð í Carlo Cudicini, markvörð Chels- ea. Moyes ætlar að styrkja leik- mannahóp sinn verulega fyrir næstu leiktíð en Everton tekur þátt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Nigel Martyn er aðalmarkvörður Everton en hann er orðinn 39 ára og Moyes ætlar honum að vera markvörð- ur númer tvö hjá liðinu. Cudicini er 31 árs. Moyes er samkvæmt fréttum að ganga frá kaupum á Scott Parker og Mikael Forssell fyrir samtals 1.240 milljónir ís- lenskra króna. Hver fýkur fyrstur? Nú þegar þijár umferðir eru bún- ar í Landsbankadeild karla í knatt- spyrnu eru strax komnar vangavelt- ur um hvaða þjálfari fær fyrstur að taka pokann sinn, þ.e.a.s. REKINN. Þrjú lið eru enn stigalaus - Grinda- vík, ÍBV og Þróttur. Fylkismenn eru með þrjú stig sem Árbæingar eru alls ekki sáttir við, að því er heim- ildir Blaðsins herma, og Þorlákur Árnason og hans menn verða að fara taka stig út úr leikjunum ef ekki á illa að fara. Guðlaugur Baldursson er að heyja frumraun sína sem þjálf- ari í Landsbankadeildinni. ÍBV var spútniklið síðasta árs en nú er öldin önnur og liðið hefur aðeins skorað tvö mörk en fengið á sig m'u. Grindvíking- ar eru líka með nýjan þjálfara - Milan Stefán Jankovic. Grindvíkingar hafa fengið flest mörk á sig af öllum liðun- um en 11 sinnum hafa þeir þurft að ná í boltann í markið hjá sér. Skjálftavaktin í Grindavík í kvöld Grindavík og ÍBV mætast einmitt í kvöld í Grindavík og það er alveg ljóst að þar verður mikill titringur hjá þjálfurum liðanna því að taplið- ið fær júmbósætið í verðlaun. Fjórar umferðir eru búnar og að vera með 0 stig gæti verið áhyggjuefni fyrir ann- aðhvort Guðlaug eða Jankovic eftir leikinn. Það er dýrt að falla í 1. deild og það vita forráðamenn liðanna manna best og styrktaraðilar þeirra. Oftar en ekki höfum við fengið fregn- ir af því að þjálfari hafi verið rekinn áður en einn þriðji (sex umferðir) er búinn af mótinu. Ásgeir Elíasson er nýbúinn að skrifa undir tveggja ára samning við Þróttara en þeir hvít- og rauðröndóttu voru óheppnir í fyrstu tveimur leikjum sínum. Á móti Fram léku Þróttarar illa og steinlágu. Þrótt- ur mætir Keflavík á Laugardalsvelli annað kvöld og þar ætla þeir sér þijú stig gegn Keflvíkingum, sem unnu KR-inga í síðustu umferð, og það verð- ur því erfitt verkefni sem bíður Þrótt- ara þar. Aldrei þessu vant er þjálfari Fram ekki í umræðunni svo snemma móts um hugsanlegan brottrekstur en Framarar eru með sex stig eftir þijár umferðir. Safamvrarmenn eru víst mjög sáttir með Ólaf Kristjáns- son þjálfara þessa dagana en Fram sækir „Big Willum" og hans menn heim að Hlíðarenda annaðkvöld. Vals- menn, með sína sterku vöm, verða að teljast sigurstranglegir út úr þeirri viðureign. mp Á að bjóða mörgum til veislu - ætlarðu að senda boðskort? fslandspóstur hefur gefið út glæsileg tæki- færisfrimerki sem eru tilvalin á boðskort o.fl. Með því að fara á heimasíðu Póstsins, www.postur.is, færð þú ókeypis aðgang að nýjustu upplýsingum um heimilisföng ættingja og vina. Þar er nú hægt að búa til og geyma sinn eigin heimilisfangalista sem getur nýst við ótal skemmtileg tækifæri. Við aðstoðum þig við að koma boðs- kortunum á réttan stað á réttum tíma. LANDSBANKADEILDIN

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.