blaðið - 30.05.2005, Blaðsíða 28

blaðið - 30.05.2005, Blaðsíða 28
mánudagur, 30. maí 2005 ! blaðið Stutt spjall: Margrét Jónasar hún er, ásamt Evu Maríu Jónsdóttur, umsjónarmaður þáttanna „Einu sinni var“ á Stöö á mánudagskvöldum kl. 20.55 Hvað ertu að gera þessa dagana? „Ég er á fullu að ganga frá næstu þáttum af „Einu sinni var“ og er að leggja loka- hönd á þáttinn í kvöld." Hvað á að sýna skemmtilegt í þættinum í kvöld? „Þátturinn í kvöld heitir „Einu sinni var Borgaraflokkurinn" en þar hittir Eva María fyrir Ásgeir Hannes Eiriksson pylsusala en hann er mjög litríkur persónuleiki sem seg- ir skemmtilega frá. Hann var þingmaður á sínum tíma og fór inn á þing sem varamað- ur Alberts Guðmundssonar. í þættinum mun Ásgeir segja frá stofnun Borgara- flokksins og aðkomu sinni að flokknum og þingmennsku sinni. Einnig talar hann um kynni sín af Alberti Guðmundssyni og þar kemur margt skemmtilegt fram." Hvað er á döfinni hjá þér í sumar? „Við verðum að vinna í þessum þáttum í sumar og eflaust eitthvað fram á haust. Síðan ætlum við, í samvinnu við Storm, að undirbúa næstu verkefni sem taka við af „Einu sinni var“. Til dæmis verður einn þáttur sem heitir „Háseta vantar á bát“ en það er mjög skemmtileg frásögn. Sagan segir frá nokkrum mönnum sem lenda saman úti á sjó. Þeir fóru út á lífið og vökn- uðu síðan allir úti á ballarhafi á leiðinni í þriggja mánaða saltfisktúr á Grænland- smið - í sparifötunum. Sá þáttur tekur við í haust þegar „Einu sinni var“ er lokið." Af netinu Já, Liverpool tók sig bara til og vann Meistaradeildina í gær. Úfff, þvílíkur leik- ur, AC Milan skoraði á fyrstu mínútunni (Maldini) og svo var bara einstefna á vellinum í fyrri hálfleik og var staðan 3-0 í hálfleik og minn var vægast sagt ekki sáttur! En viti menn. Svo í seinni hálfleik gerist svolítið sem gerir það að verkum að þetta er einn magnaðasti leikur í sögu Liverpool og jafnvel Meistardeildar- innar, en í seinni hálfleik mættir allt ann- að Liverpool-lið á völlinn og með snilld- arbreytingum frá Rafa þá er bara eitt lið á vellinum í seinni hálfleik, Liverpool. 3-3 er staðan að 90 mínútum liðnum og ekkert mark skorað í framlengingu en AC yfirburðalið í framlengingunni. En viti menn. Liverpool tekur þetta í vítaspyrnu- keppninni og vinnur þetta! Þannig að ég, eins og fleiri Liverpool-aðdáendur, er alveg bara glaður í dag :) og virkilega sáttur við mitt lið. http://blog.central.is/gunnarg Eitthvað fyrir.. Morgun Síðdegi Kvöld 18:30-21:00 ...áhugasama RÚV - „Á ferð með golfstraumn- um“(2:2) - kl.20.30 Á ferð með golfstraumnum er þýskheim- ildarmynd í tveimur hlutum en seinni hlutinn verður á dagskró Ríkissjón- varpsins í kvöld. Straumnum er fylgt á hringferð hans um heiminn og í seinni hluta myndarinnar er sýnt hvemig heitur stramnurinn sogast norður í höf og hefur óhrif á ísrek við Grænland og lífríki sjávar undan Noregsströndum. Vegna kælingar heimskautaveðranna sekkur hann síðan til botns og streymir í Kyrrahafið og þaðan aftur að strönd Flórída. Golfstraumurinn á sér hvorki upphaf né endi og hringferð hans um heimshöfin tekur þúsund ár. ...spennufikla Stöð 2 Bíó - „Hollywood homicide" (Morð í Hollywood) - kl. 20 Harrison Ford og Josh Hartnett fara á kostum í gamansamri hasarspennu- mynd um rannsóknarlögreglumennina Joe og KC í morðdeildinni í Los Ange- les. Starfið er þeim ekki allt því Joe selur fasteignir í írístundum en KC dreymir um að sló í gegn á leiksviði. Nú verða þó óhugamál þeirra að víkja fyrir vinnunni. Morð á meðlimum rapp- sveitar vekur óhug og félagamir verða að leggja sig alla fram til að leysa þetta ógeðfellda mál. Aðalhlutverk: Harrison Ford, Josh Hartnett og Lena Olin. Leikstjóri er Ron Shelton. 2003. Kvikmynd- in er bönnuð bömum. ...sniðuga Stöð 2 - „The block“ - kl. 21.20 Fjögur heppin pör fá tækifæri til þess að innrétta íbúð eftir eigin smekk. Þátt- takendumir flytja inn í auðar íbúðir sem bíða eftir því að breytast í glæsi- híbýli. Þátttakendur verða að láta hendur standa fram úr ermum, ásamt því að sinna daglegum skyldum, eins og vinnu. 0 16.40 Helgarsportið (e) 17.05 Leiðarljós (Guiding Light) 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 Myndasafnið 18.01 Gurra grís (4:26) 18.05 Bubbi byggir (905:913) 18.15 Pósturinn Páll (1:13) 18.30 Vinkonur (19:26) (The Sleepover Club) 19.00 Fréttir, íþróttir og veður 19.35 Kastljósið 20.05 Átta einfaldar reglur (38:52) Bandarisk gamanþáttaröð um mið- aldra mann sem reynir að leggja dætr- um sínurn á unglingsaldri lífsreglumar. 20.30 Á ferð með golfstraumnum (2:2) (Fantastische Reise mit dem Golfstrom) 21.15 Lögreglustjórinn (403:422) WTL JM 06.58 ísland í bítið ■F Æffl 09.00 Bold and the w Beautiful 09.20 í fínu formi 09.35 Oprah Winfrey 10.20 ísland í bítið 12.20 Neighbours 12.45 Ífínuformi 13.00 Perfect Strangers (66:150) 13.25 Third Watch (7:22) Bönnuð börnum. 14.10 Race to Space (Kapp út í geim) 16.00 Ævintýri Papírusar 16.25 Töframaðurinn 16.50 Scooby Doo 17.15 Yoko YakamotoToto 17.25 Leirkariarnir 17.30 Froskafjör 17.40 Kýrin Kolla 18.18 ísland í dag 18.30 Fréttir Stöðvar 19.00 Íslandídag 19.35 Simpsons 20.00 Strákarnir 20.30 Happy Days x (Jamie Oliver) (2:4) (Kokkur án klæða) \ 20.55 Einu sinni var R i © 18:00 Cheers-3. þáttaröð 18.30 Djúpa laugin 2 (e) 19.15 Þak yfir höfuðið Umsjón hefur Hlynur Sigurðsson. 19.30 Malcolm In the Middle (e) 12.10 Landsbankadeildin STs/n Útsending frá leik KR og FH. (e) 16.10 David Letterman 16.55 NBA 18.55 Landsbankadeildin (Grindavík-ÍBV) fm.1 06.00 Hollywood Homici- de (Morð í Hollywood) Bönnuð börnum. 08.00 You Wish! (Ein ósk) 10.00 Sounder 12.00 Johnny English 14.00 You Wish! (Ein ósk) 16.00 Sounder Það vofir skuggi yfir Morgan-fjölskyld- unni. Fjölskyldufaðirinn er fundinn sekur um glæp og sendur í fangelsi. Eftir nokkum tíma fer elsti sonurinn í heimsókn í fangelsið en ferðin þangað reynist sannkölluð ævintýraferð. 18.00 Johnny English Ævintýraleg grinhasarmynd fyrir alla fjölskylduna. 20.00 Hollywood Homlcide (Morð í Hollywood) 07.00 Meiri músík 19.00 GameTV(e) í Game-TV er fjallað um tölvulelki og allt tengt tölvuleikjum. 06.00 Morgunsjónvarp 18.00 Mack Lyon 18.30 Joyce Meyer 19.00 CBN-fréttastofan 20.00 Vatnaskil ...fótboltafikla Sýn - „Boltinn með Guðna Bergs“ - kl. 21.05 Umsjónarmennimir Guðni Bergsson og Heimir Karlsson skoða spænska, enska og ítalska boltanum frá ýms- um hliðum. Meðal annars em skoðuð flottustu mörkin og umdeildustu atvik síðustu leikja. Sérstök umfjöllun um Meistaradeild Evrópu er á dagskránni og að sjálfsögðu koma góðir gestir í heimsókn og segja álit sitt á því frétt- næmasta í fótboltanum hveiju sinni. LOST Matthew Fox í LOST Matthew Fox leikur Jack Shepard, eina af aðalsögupersónunum í spennumyndaþættinum LOST í Rík- issjónvarpinu á mánudagskvöldum. Fox fæddist á árið 1966 á sveitabú- garði í Wyoming þar sem hann ólst upp. Hann kláraði B.A. gráðu í við- skiptafræði og hugðist reyna fyrir sér í viðskiptum á Wall Street þegar hon- um var boðið að leika í auglýsingum. Fljótlega fóm tilboðin að streyma og þegar honum bauðst hlutverkið í þættinum Party of Five varð ekki aftur snúið og leiklistin hefur átt hug hans allan síðan. Þátturinn er tekinn upp á Oahu á Hawaii.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.