blaðið - 30.05.2005, Síða 29

blaðið - 30.05.2005, Síða 29
29 blaðið 1 mánudagur, 30. maí 2005 Af netinu Fjölmiðlar Áfram, Liverpool Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar var í gærkvöldi og var bara einn besti fótbolta- leikur sem ég hef séð. Þvílík endurkoma hjá Liverpool-mönnum. Reyndar var ég viss um að Jói yrði á undan mér með þetta blogg en svo virðist ekki vera. Það sem skemmdi fyrir mér skemmtunina var lítið veðmál sem var gert í bekknum mín- um. Ef Milan hefði unnið væri ég stoltur eigandi tveggja kassa af bjór. En ég held með eiginlega með Liverpool (löng saga) þannig að ég vissi ekkert hvað ég átti af mér að gera. Reyndar er ég sáttur með hvað sem er og óska ég Liverpool til hamingju með sigurinn. Já, ofurvíma og gleði í gær. Ég settist að í Háskólabíói ásamt hellingi af öðrum púllurum. Horfð- um þar á leikinn á risaskjá. í hálfleik var staðan eins og eflaust flestir vita, 0-3 fyrir Milan, og við gengum hníptir út úr salnum til að fá okkur ferskt loft. En í síðari hálfleik varð ég vitni að einhverri ótrúlegustu endurkomu sem ég hef á ævinni séð. Gerrard gerði það sem góðum fyrirliða sæmir, skorar mark og rífur sína menn upp af rass- gatinu. Glæsilegt mark frá Vladimir fylgir eftir og við í salnum stökkvum upp af gleði! Þvílík stemmning sem kviknaði í salnum, ég hef sjaldan upplifað annað eins. Svo fékk Xabi Alonso heiðurinn að taka víti en það var varið en hann fylgdi eftir og hið ótrúlega hafði gerst! Liverpool hafði skorað þrjú mörk í einum hálfleik á móti AC Milan! ÖSH! Við stukkum upp og öskruðum. Um leið bætti ég metið í að faðma marga ókunnuga í einu og garga af gleði um leið. Þetta var rosaleg stemmning. Leikurinn fór svo í vítaspyrnukeppni þar sem okkar menn kláruðu dæmið. http://www.blog.central.is/teamguido (The District III) Sakamálasyrpa um Jack Mannion, hinn skelegga lögreglustjóra í Washington, sem stendur í ströngu í baráttu við glæpalýö og við umbætur innan lög- reglunnar. Aðalhlutverk leika Craig T. Nelson, John Amos, Jayne Brook og Justin Theroux. 22.00 Tíufréttir 22.25 Lífsháski (9:23) (Lost) 23.10 Fótboltakvöld 23.25 Ut og suður(5:12) Gísli Einarsson flakkar vítt og breitt um landið og bregður upp svipmynd- um af áhugaverðu fólki. (e) 23.50 Snjóbrettagleði 2005 00.20 Kastljósið (e) 00.40 Dagskrárlok 21.20 The Block 2 (25:26) í ástralska myndaflokknum The Block fá fjögur heppin pör tækifæri til að innrétta íbúð eftir eigin höfði. 22.05 The Guardian (13:22) (Vinur litla mannsins 3) 22.50 60 Minutes II 2004 Framúrskarandi fréttaþáttur sem vitnað er í. 20.00 One Tree Hill 21.00 Survivor Palau - lokaþáttur Keppendur koma saman líta yfir farinn veg, en ábyggilegt er að margt er enn óuppgert. 21.50 C.S.I. - lokaþáttur 21.05 Boltinn með Guðna Bergs Spænski, enski og ítalski boltinn frá ýmsum hliðum. 22.00 Olíssport 22.30 David Letterman 22.00 The Vector File (Kóðinn) Hörkuspennandi kvikmynd um feðgin sem eiga fótum sínum fjör að launa. Fyrir slysni kemst Mattie yfir leyni- 23.35 The Weekend (Helgin) Dramatísk kvikmynd sem gerist á einni helgi að sumarlagi. John og Marian Kerr eru efnuð hjón sem bjóða til sín gesti á sveitasetur sitt. Sá heit- ir Lyle og var ástmaður hálfbróður Johns sem lést úr alnæmi. Lyle er kominn með nýjan kærasta og tekur hann með sér. Nágrannakonan Laura kikir líka í heimsókn en helgin verður ekki eins þægileg og hjónin ráðgerðu. 22.45 Jay Leno 23.30 CSI: New York (e) 23.15 Landsbankadeildin (Grinda- vík-ÍBV) Endursýning frá leik Grindvíkur og ÍBV sem fór fram fyrr í kvöld. legan DNA-kóða en þar eru mjög viðkvæmar upplýsingar á ferðinni. Komist kóðinn í rangar hendur gæti það þýtt endalok veraldarinnar. 21.00 Kenny vs. Spenny 21.30 íslenski popplistinn (e) 21.00 Mack Lyon 21.30 Acts Full Gospel 22.00 Joyce Meyer 01.10 Shield (5:13) (Sérsveitin 4) Stranglega bönnuð bömum. 01.55 Las Vegas 2 (19:24) (One Nati- on, Under Surveillance) Aðalhlutverkið leikur James Caan en á meðal gestaleikara í þessari syrpu eru Jon Lovitz, George Hamilton, Snoop Doog, Jill Hennessy og Alec Baldwin. 02.35 Fréttir og Island í dag 03.55 ísland í bítið 05.55 Tónlistarmyndböndfrá Popp TiVí 00.30 Cheers - 3. þáttaröð (e) 01.00 Óstöðvandi tónlist 00.55 Boltinn með Guðna Bergs Umsjónamienn eru Guðni Bergsson og Heimir Karlsson. The Commissioner (Ráða- Brussel) Spennumynd um »n stjórnmálamann, James Mor- >n, sem er kallaður til ábyrgðarstarfa hjá Evrópusambandinu í Brussel. 02.00 Femme Fatale (Háskakvend- ið).Stranglega bönnuð bömum. 04.00 The Vector File (Kóðinn) Stranglega bönnuð bömum. 22.30 Blandað efni 23.00 CBN-fréttastofan 00.00 Miðnæturhróp 00.30 Nætursjónvarp Blönduð innlend og erlend dagskrá Hvað getur einn fjölmiðill sagt um aðra? Blöðin bera þess merki að það er hálfgerð gúrka; lítið um að vera í samfélaginu, þingið farið heim, bisn- issliðið að jafna sig eftir Kína með forsetanum og ó leið í veiðina og búið að kaupa allt sem hægt er í bili. Meðan svo er þá gerist lítið fréttnæmt, eða svo virð- ast allir halda. Dagskrá sjónvarps- stöðvanna er hvorki góð né slæm; vetrarþættirnir að renna sitt skeið á Stöð 2, Skjá Einum og RÚV. Fátt nýtt sem vekur áhuga. Stöð 2 ýtti þó úr vör nýjum þætti um hestamennsku með Brynju kú- reka Þorgeirs- dóttur. Vonandi góður þáttur hjá Brynju, sem er góður sjónvarps- maður, eins og reyndar stöllur henna á Stöðinni, Edda, Brynhild- ur, Bryndís, Inga Lind,SólveigBerg- mann, Svanhildur og Þóra. Gaman að sjá Sindra Sindrason í fréttum Stöðvar 2. Sannar að marg- ur er knár þótt hann sé smár. Hefur mikla og góða nærveru á skjánum og það sem skiptir mestu: Hann er skýrmæltur. Sannarlega fengur í hon- um fyrir fréttastofu Stöðvarinnar, sem annars hefur ágætis karlfrétta- mönnum á að skipa - mönnum eins og Kristjáni Má, Gissuri Sig., Ingólfi Bjarna, Jóhanni Hlíðar, Ola Tynes og Þór Jónssyni. Allt eru þetta þekktir hreinstefnu- menn í fréttum. Frétta- menn sem rugla ekki saman hagsmunum eig- enda sinna og fréttum. Því kom á óvart að Þór Jóns- syni skyldi takast að koma því inn í frétt af slysum á tramp- ólínum að Húsasmiðj- an hafi selt einhverja tugi slíkra leiktækja daginn sem hún opn- aði nýja verslun í Graf- arholti. Óljóst hvaða tilgangi trampólín- sölutölur Húsasmiðj- unnar áttu að þjóna inni í frétt af tramp- ólínslysum, því ekki ber Húsasmiðjan óbyrgð á tjóni þeirra sem slasast. Myndir þú kaupa enska boltann í læstri dagskrá? Johannes Sólmundarson rafeindavirki „Nei, ég hef ekki það mikinn áhuga á honum." Kolbrún ívarsdóttir sjúkraliði ,Ég kaupi ekki boltann en ég myndi horfa á hann í opinni dagskrá." Róbert Arnfinnsson leikari „Nei, það er ekkert sem heit- irfótbolti fyrirmig.“ Theima Víglundsdóttir heimavinnandi húsmóðir „Nei! Alls ekki, hef engan áhuga.“ Þórður Sveinlaugur Þórð- arson nemi „Já, ég myndi gera það. Ég fylgist mikið með þeim og Síminn er að bjóða góðan pakka á tilboði þannig að ég held að ég skelli mér á það." Viktor Jónsson bréfberi „Nei, hef ekki áhuga." LOST Maggie Grace Maggie Grace leikur pempíuna og ríku stelpuna Shannon Rutherford, sem lætur ekki flugslys eyðileggja fyrir sér úthtið. Hún hugsar aðallega um að neglumar haldist hreinar á meðan hinir hugsa um mikilvægari hluti eins og mat og skjól. Leikkonan Maggie Grace fæddist árið 1983 í Ohio í Bandaríkjunum. Hún byijaði ferilinn fyrir aðeins nokkrum órum í sjónvarpsmyndinni Murder in Greenwich. Fljótlega eftir það fékk hún hlutverk í Law & Order og vakti þar með athygli framleið- anda þáttanna LOST. Hún leikur í kvikmyndinni The Fog, sem kemur út í ár, en sú saga er byggð á sam- nefndri sögu eftir John Carpenter. Terry O’Quinn Terry O’Quinn leikur John Locke, sem hefur yfimátt- úmlega hæfileika og óvenju- legan skilning á eðli náttúr- unnar, í sjónvarpsþáttunum LOST. Terry O’Quinn heitir réttu nafni Terence O’Qu- inn og er fæddur órið 1952 í Michican. Hann var at- vinnumaður í boxi og lífvörð- ur þegar hann var yngri. Terry á sér langa sögu í kvikmyndum og sjónvarpi, þar á meðal í X-files og MUl- enium-þáttunum.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.