blaðið - 14.06.2005, Blaðsíða 1

blaðið - 14.06.2005, Blaðsíða 1
Hive.is Þjónustusími 414 1616 Uiup i 1 Í + A 1 II w V? Þráðlaust internet 4GB niðurhal 8Mb tenging LILÖ 3.990 ÁMÁNUÐI* •M.v. 12 mtnað. Mrnning Veiddi þrjá laxa á fluguna - bls. 16 Hvar er bensínið ódýrast? AO óeGO ÍSSÖ) - bls. 18 |ORKAN| Islendingar að drepast velmegu Jg- bls. 10 Ritstjórnar- og augiýsingasími: 510 3700 • bladid@vbl.is 26.TBL. 1. ÁRC. ÓKEYPIS biaðið Bæjarlind 14-16, 201 Kópavogur Sími 510-3700 bladid@vbl.is ISSN 1670-5947 FRJÁLST OC ÓHÁÐ IÉ&LVjÍ? Yfirmenn lesa tölvupóst - bls. 2 Efla þarf löggæslu - bls. 4 Eyðum meira - bls. 6 Karlmenn ættu að aka eins og konur - bls. 7 Office 1 er langlægst - bls. 2 Ögmundur Jónasson: Málinu alls ekki lokið Hæfi forsætisráðherra við sölu ríkisbanka: Lýsir yfir sakleysi sínu Hlutur Halldórs og skyldmenna hans talinn of smávægilegur til að skipta máli, auk þess sem Halldór hafi verið í veikindaleyfi þegar Þessi fundur mun draga dilk á eftir sér mikilvægustu ákvarðanirnar voru teknar. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra telur að athugun Ríkisendurskoðun- ar hafi án nokkurs vafa sýnt fram á að ekkert hafi verið athugavert við embættisfærslu sína hvað varðaði sölu Búnaðarbankans á sínum tíma. Halldór boðaði í gær til blaðamanna- fundar í Ráðherrabústaðnum og kynnti minnisblað Ríkisendurskoð- unar um hæfi ráðherrans til þess að flalla um sölu ríkisins á Búnaðar- bankanum til S-hópsins svokallaða. Ekki hlutverk Ríkisendurskoð- unar í upphafi minnisblaðs Ríkisendur- skoðunar er tekió sérstaklega fram að vafi um hæfi stjórnvaldshafa sé lögfræðilegt álitaefni, „sem löggjafinn [hafi] alls ekki ætlað Ríkisendurskoð- un að leysa úr.“ Á hinn bóginn telur stofnunin rétt að fjalla um efnið í ljósi fyrri afskipta hennar af bankasölunni og er skýrslan tíu síður að lengd. Samkvæmt skýrslunni telur Rík- isendurskoðun óþarft að fjalla sér- staklega um hæfi Halldórs til um- fjöllunar um sölu bankans, þar sem hann hafi verið í veikindaleyfi þegar veigamestu ókvarðanimar hafi verið teknar. Þó er tekið fram að ráðherr- ann hafi setið einn ríkisstjórnarfund á þeim tíma, en þar hafi ekkert verið fjallað um þennan þátt bankasölunn- Hæfur sakir smávægilegra hagsmuna Þrátt fyrir að Ríkisendurskoðun telji óþarft að fjalla um hæfi ráðherr- ans er engu að síður vikið að því í minnisblaðinu. Vafi um hæfi ráðherr- ans er þríþættur og varðar eignar- hald hans sjólfs í Skinney-Þinganesi, sem með eignarhluta í öðrum félög- um tengdist S-hópnum, eignarhalds systkina hans og venslafólks í sama fyrirtæki, og loks matskennt hæfi hans, sem snýst um það hvort þær að- stæður em fyrir hendi að draga megi óhlutdrægni hans í efa. Niðurstaða Ríkisendurskoðunar er á þá lund að eignarhlutur Hall- dórs í Skinney-Þinganesi (1,33%) sé smóvægilegur, hið sama eigi við um hlut venslafólks hans (27% alls) og að það eyði efasemdum um almenna óhlutdrægni hans, ennfremur sé lögformleg staða ráðherranefndar um einkavæðingu óljós og ábyrgð á ókvörðunum hennar liggi hjá einstök- um fagróðherrum. í minnisblaðinu segir að hlutverk róðherranefndarinnar felist ekki í að taka ákvarðanir um afgreiðslu einstakra mála sem telja megi ígildi stjórnsýsluákvarðana. Halldór var að því tilefni spurður um hvort veiga- miklar ákvarðanir hafi ekki verið teknar á fundum róðherranefndarinn- ar, en hann vísaði aftur í minnisblað- ið um ábyrgð ráðherra og spurningar um hæfi snem því að þeim. Halldór sagði á fundinum að hann hefði aldrei efast um hæfi sitt til þess að fjalla um sölu ríkisbankanna en honum hafi á hinn bóginn sárnað um- fjöllun ijölmiðla um mólið að undan- fömu og lét í veðri vaka að ómaklega hafi verið að fjölskyldu hans vegið í því samhengi. „Ég hef verið lengi í stjómmálum, í yfir 30 ár, og ég skal viðurkenna að mér hefur sómað sú umfjöllun sem hefur verið síðustu vikurnar. Ég hef á þessum tíma lagt mig fram um að vinna öll mín störf af einlægni og heið- arleika og það er ný reynsla fyrir mig að vera sakaður um eitthvað annað, eins og verið hefur upp á síðkastið," sagði Halldór. Ögmundur Jón- asson, þingflokks- formaður Vinstri grænna, segir það merkilegasta við blaðamannafund Halldórs vera að almennt séu þing- menn ekki búnir að sjá skýrsluna. „Það undarlega er að ráðherrann sjálfur kynnir fjöl- miðlum og alþjóð skýrsluna með því að lesa valda kafla upp úr henni, meinar fjölmiðlum aðgangi að henni svo hægt væri að spyrja gagnrýninna og efnislegra spuminga. Þetta eru ekki vinnubrögð sem era sæmandi í landi sem vill telja sig til upplýstra lýðræðisríkja. Ég tel þetta í hæsta máta ámælisvert og mjög gagnrýni- vert. Það er verkefni okkar í stjórn- arandstöðu og allra þeirra sem óska lýðræðinu og opnu samfélagi vel, að leiða þessi mál til lykta.“ Ögmundur segir málið engan veg- inn til lykta leitt. „Við munum að sjálfsögðu gaumgæfa þessi mál, bæði í lagalegu tilliti og með tilliti til pól- itísks siðferðis og dómgreindar ráð- herra.“ Ögmundur segir að í rauninni hafi engin lausn komið með blaða- mannafundinum heldur sé þetta miklu fremur upphaf að einhverju ferli sem menn munu skoða. „Ætla menn að láta það gerast í framtíðinni að ráðherrar hafi nánast sjálfdæmi um það hvernig þeir leggja fram mál sem snúa að þeim sjálfum? Að þeir mati fjölmiðla og þjóðina? Ég held að hvorki fjölmiðlar, þingið né þjóðin láti bjóða sér þessi vinnubrögð." Hvað varðar að Halldóri hafi verið tíðrætt um veikindi sín meðan á mól- inu stóð, sagði Ögmundur: .Auðvitað hafa menn samúð þegar aðrir liggja á sjúkrabeði en það er ekki eins og þessi mál hafi gerst á nokkrum dög- um. Þetta er langt ferli og það hefur verið rækilega sýnt fram á að oddvitar stjómarflokkanna höfðu „handaflsað- komu“ að þessum málum, bæði þessu bankamáli og öðram einkavæðingar- mólum. Að ætla mönnum að trúa því eins og Halldór Ásgrímsson vildi að ráðherrar og ráðherranefndin hefði hvergi komið að þessum málum nema til þess að setja einhverjar almennar reglur, því held ég að trúi ekki neinn maður. Allt þetta mól hlýtur að vera hið versta fyrir ríkisstjórnina og hið hrikalegasta fyrir þessa þjóð.“ veiöivörur í næstirspertvöruverslun

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.