blaðið - 14.06.2005, Blaðsíða 11

blaðið - 14.06.2005, Blaðsíða 11
blaðið I þriðjudagur, 14. júní 2005 Framtíðar- notkun NMT-síma í fréttatilkynningu sem Póst- og fjar- skiptastofnun sendi ffá sér hyggjast starfsmenn stofnunarinnar afla sér upplýsinga á næstu mánuðum um heppilegustu framtíðamotkun þess tíðnisviðs sem notað er fyrir NMT- farsímaþjónustu. Síminn hefur rekið NMT-kerfið ffá árinu 1986 en rekstrarheimild þess rennur út 31. desember 2007, að því er ffam kemur á heimasíðu Neyt- endasamtakanna. Samkvæmt rekstrarleyfi Símans getur Póst- og § arskiptastofnun frest- að lokun NMT-kerfisins í allt að tvö ár, ef það þykir þjóna hagsmunum neytenda. Póst- og fjarskiptastofnun telur ekki rétt að taka ákvörðun um rekstr- arlok fyrr en sjónarmið hagsmunaað- ila um ffamtíðarnotkun tíðnisviðsins hafa komið fram. Lesendabréf Eftirfarandi bréf barst Blaðinu fyrir skemmstu. Höfundur er starfandi líf- fræðingur en vill ekki láta nafns síns getið. „Sæll. Las löngu tímabæra grein þína á neytendasíðu blaðsins í dag. Villandi merkingar á umbúðum, sem flestar höfða til heilsu og holl- ustu - því hver vill ekki heilsu og hollustu - eru með vafasamari mark- aðsbrögðum nú til dags, því oftar en ekki er ekkert á bak við fullyrðing- amar annað en fleiri fullyrðingar. Fæðubótarefnin og „heilsuvörurn- ar“ minna helst á auglýsingar far- andsölumanna ffá aldamótunum þarsíðustu í Bandaríkjunum, sem prönguðu svartolíu í flöskum ofan í gmnlausa kaupendur sem keyptu þetta náttúruefni sér til heilsubóta, við skalla o.s.ffv. o.s.frv., uns menn fundu önnur og betri not fyrir olíuna. Heilsuvörugeirinn notar fullyrðing- ar um vörur sínar sem voru fáséðar fyrir nokkrum árum, og án þess að þurfa að sanna mál sitt. Menn ýmist trúa fullyrðingunum blint eða missa trúna á öllum geiranum eins og er að gerast í Bretlandi, sbr. ffétt í Frétta- blaðinu 31. maí. Þetta hefur ýtt und- ir það að neytendur missa fótanna, fyllast óöryggi og hræðslu sem heltek- ur líf þeirra. Það ku vera komið heiti á fyrirbrigðið; menn greinast með or- thorexiu, sbr. anorexíu, sem er víst eins konar rétttrúnaðarneysla sem leggst á sálina hjá viðkomandi og lýs- ir sér í öfgum, s.s. að borða einungis lífrænt eða sjálfdautt eða hvað þetta nú er allt saman, og lífið snýst um að verða sér úti um „réttu“ matvælin. Það er full ástæða til að benda á nýju fótin keisarans á þessum markaði heilsufullyrðinganna sem styðjast yfirleitt í besta falli við hjávísindi. Ég bendi á athyglisverða grein í Læknablaðinu 2002/88 (bls. 2, 89- 297) eftir Ólöfu Þórhallsdóttur, Kristínu Ingólfsdóttur (rektor HÍ) og Magnús Jóhannsson, um aukaverk- anir og milliverkanir náttúruvara og fæðubótarefna. Þar eru sláandi niður- stöður um „heilnæmi" sumra afurða út frá íslenskum upplýsingum. Auð- vitað eiga fullyrðingar um hollustu að eiga sér stoð í niðurstöðum rann- sókna en ekki óskhyggju ffamleið- enda eða dreifiaðila. Annars er eins gott að sleppa öllum merkingum. Vonandi sér maður fleiri gagn- rýnar greinar um þessi mál! Góðar stundir.“ ytendur 11 Bensínið ódýr- ast í Orkunni í könnun á vegum Blaðsins, sem fram fór í gær, kom 1 ljós að verð á 95 oktana bensíni í sjálfsafgreiðslu var dýrast á sölustöðvum Esso í Borg- artúni og á Ártúnshöfða. Þar kostaði bensínlítrinn 107,70 kr. Orkan var í öllum tilfellum með lægsta eldsneyt- isverðið en þar kostaði lítrinn 105,10 kr. Nákvæmlega sama verð var á 95 oktana bensíni á öllum stöðvum ÓB, Ego og Atlantsolíu sem kannaðar voru. Aðeins munaði einum eyri á lítraverði þeirra og Orkunnar. Ork- an mældist einnig með lægsta verðið í síðustu könnun. Hverjir eru ódýrastir? Samanburður á verði 95 oktana bensíni Sprengisandur 105,2 kr. Kópavogsbraut Óseyrarbraut 105,2 kr. 105,2 kr. óeGO Hæðasmári 105,2 kr. Vatnagarðar 105,2 kr. Óseyrarbraut 105,2 kr. Hafnarfjörður 105,7 kr. Guilinbrú 106,4 kr. Álfheimar 106,7 kr. Grafarvogur 105,1 kr. Klettagarðar 105,1 kr. Skemmuvegur 105,1 kr. ORKAN rta Amarsmári Bæjarlind Háaleiti ödýrtbeiuln 105,2 kr. 105,2 kr. 105,2 kr. Gylfaflöt 106,2 kr. Smárinn 106,7 kr. Laugavegur 106,7 kr. WSðSpSjppigS! Gestamóttaka hótelsins er opin alla virka daga og um helgar fró kl. 7.00 - 22.00 Hótel Valhöll Þingvellir lceland Sími: 480 7100 netfang: hotelvalholl@ www.hotelvalholl

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.