blaðið - 14.06.2005, Blaðsíða 12

blaðið - 14.06.2005, Blaðsíða 12
 þriðjudagur, 14. júní 2005 I blaðið Bærinn Porec hefur verið í stöðugri sókn sem áfangastaður ferðamanna. Þessi huggulegi litli bær var lengi vel einkaleyndarmál ítala, en þeir sóttu þangað í sumarleyfi. Það eitt og sér ætti að duga sem meðmæli á matar- gerðarlist Porec-búa en það er ekki það eina. Fyrir utan mikla og fallega náttúru og fallega bæi í nágrenni er Porec ekki áfangastaður fjöldans og þarf því stutt að fara til þess að kom- ast í tæri við króatíska menningu og líferni. Kynnisferðir um skagann eru í boði, sem og skoðanaferðir og sigling- ar umhverfis nálægar eyjur. Mikið er um köfun á svæðinu og farnar skoð- unarferðir um skipsflök, en mikið framboð er á sjósporti. Fyrir menning- arþyrsta er hægt að fara í dagsferðir til Feneyja eða skoða eufrasísku ba- sílikuna, en hún er ein af elstu heilu helgimyndum í heiminum. Fa9uríálasal í boði Von Trapp-fjölskyldunnar Flestir muna eftir hinni söngelsku Von Trapp-fjölskyldu úr Söngvaseiði, en þar dönsuðu þau um allt, syngj- andi og trallandi. Fæstir vita að eft- ir atburðarás myndarinnar, sem er byggð á sannsögulegum atburðum, þurfti Von Trapp-íjölskyldan að flýja til Bandaríkjanna eins og margir samlandar þeirra. Sungu sig inn í land Von Trapp-fjölskyldan stóð uppi slypp og snauð í Bandaríkjunum og eina ráð þeirra var að syngja til þess að hafa í sig og á. Þau ferðuðust um gervöll Bandaríkin en Vermont-fylki vann hug þeirra og hjarta. Þar reistu þau sveitabýli sem þróaðist með tím- anum yfir í ferðamannastað; Von Trapp-skálann. Austurrísk vin í Vermont-fylki Leitast er við að endurskapa Týróla- blæinn í Von Trapp-skálanum, sem býður upp á „dálítið af Austurrfld - heilmikið af Vermont", samkvæmt slagorði. Skálinn er opinn allan árs- ins hring og býður upp á alls kyns dægradvöl - allt frá skíðaferðum og þrúgugöngum á veturna, að hest- vagnaferðum og tennis á sumrin, að ógleymdum söfnum og fræðslu um fjölskylduna sjálfa. Von Trapp- skálinn verður að teljast kjörinn áfangastaður fyrir þá sem vilja leggja lykkju á leið sína til þess að upplifa bandaríska Týróla-stemmningu og arfleifð hinnar geðþekku fjölskyldu úr Söngvaseiði, en nánar má fræðast um málið á www.trappfamily.com. Krít íslendingar hafa vanið komur sínar til Krítar undanfarið, en það er margt sem heillar við þessa fógru eyju í Mið- jarðarhafinu. Nálægð við Grikkland smitar út frá sér en andrúmsloft er mjög litað af grískum áhrifum - grískættuð tónlist og hefðbundin Miðj arðarhafsmatseld gleðja sælkerann. Krít er mjög fjöl- breytt því þar má finna allt frá snjó- hvítum ströndum að háum fjöllum. Einnig er eyjan talin mjög barnvæn, en vegna smæðar eru veitinga- og gistihús iðulega fjölskyldurekin. Öll aðstaða er til fyrirmyndar, og eyj- unni er talið til tekna að þar þekkjast svo til engar stórar keðjur. Frá Krít er meðal annars hægt að fara í dags- ferðir til Santorini, sem er rómuð fyr- ir náttúrufegurð. Einnig eru margar gönguleiðir um eyjuna, en vinsælust þeirra liggur niður Sa Maria-gljúfrið, eitt stærsta gljúfur Evrópu. Það ligg- ur niður að suðurströnd Krítar þar sem maður getur lagst fyrir, sleikt sólina og vísað tánum í átt að Líbíu. Porec Sjósport í Porec sokkur ABEC7 80f Góð bremsa Mikið úrval af hjálmum við allra hæfi Heillandi staðir Blaðið skoðar heiminn íslendingar ferðast oftar og meira en nokkru sinni fyrr, óteljandi en íslendingar eru sífellt að uppgötva nýja staði og ekkert lát virðist á útþrá landans. Áfangastaðirnir eru og endurnýja gömul kynni. Blaðið skoðaði tvo staði. Afll d /r nr a Vorum að taka upp nýja sendingu af línuskautum Á frábæru verði

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.