blaðið - 14.06.2005, Blaðsíða 6
þriðjudagur, 14. júní 2005 ! blaðið
Turfle
wox
POUSHING WAX
Contam
mfí H/jí Mí/ícríj/’SJmíjJí
ittrzme Shint aad rrotjxtmm
with UV Inhibitors
Lnts throvgh moitks vt'WM
Wtalhtritg atd WashmgJKM
Tafir á flugi lcelandair:
530 fengu frímiða
í sárabætur
Miklar tafir hafa orðið á flugi Ice-
landair til og frá San Francisco und-
anfama daga vegna vélarbilunar
í einni þotu félagsins. Töfðust um
530 manns í allt að einn og hálfan
sólarhring, en Guðjón Arngrímsson,
upplýsingafulltrúi Icelandair, sagði í
samtali við Blaðið að þeir hefðu allir
fengið frímiða frá flugfélaginu í sára-
bætur.
„Það er auðvitað óttalega leiðinlegt
þegar svona kemur fyrir og getur
valdið viðskiptavinum okkar talsverð-
um óþægindum. Þess vegna fannst
okkur rétt að gefa þeim frímiða að
eigin vali,“ segir Guðjón.
Að sögn Guðjóns má ekki rekja
tafirnar til neins ann-
ars en óheppilegra
tilviljana. „Það var
ólán sem olli þessum
miklu töfum. Réttur
varahlutur var ekki
til á lager, það reynd-
ist óvenju erfitt að
hafa uppi á honum
og koma honum á
staðinn, þannig að
töfin vatt talsvert
upp á sig.“
Töf vélarinnar
hafði mikil áhrif því
farþegar biðu hennar
bæði á íslandi og vestur í Kaliforníu.
Þá þurfti að fella niður flug til Berlín-
ar í gær, sem gert hafði verið
ráð fyrir að þessi vél færi í.
Farþegarnir voru langflest-
ir af erlendu bergi brotnir en
íWmiðamir gilda fram og til
baka á öllum leiðum Icelanda-
ir næstu tvö ár. Segir Guðjón
farþegana flesta hafa tekið
töfinni af þohnmæði en
þeir fengu inni á hótel-
um meðan beðið var.
Einnig var þeim
boðið í Bláa i’ónið
og önnur dægra-
stytting.
Aðgangur að vatni eru grundvallarmannréttindi.
Drykkjarvatn eru
mannréttindi
Hæ, hó, jibbí-jei
Sautjándinn að
smella saman
Dagskrá 17. júní í Reykjavík er tilbú-
in og verða í ár þau nýmæli að hún
mun standa yfir óslitið milli klukkan
10 og 22. Eins og gefur að skilja verð-
ur dagskráin mun viðameiri fyrir vik-
ið og kennir ýmissa grasa í þeim efn-
um. Að venju verða sumarleiktæki í
Hljómskálagarðinum, dansleikur á
Ingólfstorgi, tónleikar við Arnarhól,
Jón Sigurðsson fær sinn blómsveig,
fjallkonuræðan verður ljóð eftir Vil-
borgu Davíðsdóttur, skrúðganga og
sölutjöld verða, auk fjölmargra ann-
arra atriða. Þau verða á bilinu 70-
100 talsins, og flest með fleiri en einn
Páll H. Hannesson, alþjóða-
fulltrúi BSRB, kynnti nú
um helgina tiUögu banda-
lagsins um breytingu á
stjómarskrá íslands, en
það gerði hann á málþingi
sem haldið var á vegum
stjórnarskrárnefndar.
Stjórn BSRB hefur
lagt þá tfllögu
fyrir stjórnar-
skrárnefnd
að aðgangur
að drykkjar-
vatni teljist
mannrétt-
indi og að
eignarhald
á vatni skuli
jafnan vera
samfélags-
legt. Enn-
fremur að
það skuli bundið í stjórnarskrá lýð-
veldisins. BSRB skírskotar beint til
samþykktar Sameinuðu þjóðanna frá
árinu 2002 og er ísland aðUi að henni.
Samkvæmt henni telst aðgangur að
vatni til grundvallarmannréttinda.
Sérhver maður skal þess vegna eiga
rétt á og vera tryggður nægilegur og
öruggur aðgangur að hreinu drykkjar-
vatni á viðráðanlegu verði, auk vatns
til hreinlætis og heimilishalds. Fara
skal með vatn sem félagsleg og menn-
ingarleg gæði, en ekki skal litið á vatn
sem hveija aðra verslunarvöru. Þess
skal gætt að framkvæmd sé sjálfbær
og þannig tryggt að réttindin megi
raungera fyrir kynslóðir nútíðar sem
og framtíðarinnar. Það er skylda
stjórnvalda að tryggja þegnum sín-
um þennan rétt án mismununar. Það
er því ljóst að íslensk stjórnvöld hafa
hér tekið sér skyldur á herðar.
þátttakanda
þannig að bú-
ast má við því
að meira en 500
manns verði
í sviðsljósinu
þann daginn.
Stór nöfn
munu stíga á
svið 17. júní og
má m.a. nefna
Halldór Ásgríms-
son, Selmu Björns-
dóttur, hljómsveitina
Mínus, Kalla á þakinu, írafár, leik-
hópinn Perluna, Nylon, Stuðmenn,
Gunna og Felix, og svo mætti lengi
telja. Uppákomur verða einnig víðs
vegar um miðbæinn en þar ber helst
á trukkadrætti í Vonarstræti, tónleik-
um í Ráðhúsinu, fombílasýningu á
Hafnarbakkanum og siglingamóti á
sundinu fyrir utan Sæbraut.
Þjóðhátíðarnefnd hvetur fjölskyld-
ur til að skemmta sér saman og
hefur því ákveðið að hafa skemmti-
dagskrána jafnlanga og venjulega
en hætta henni fyrr svo hún skarist
minna við næturlíf miðborgarinnar
og færri unglingar verði strandagló-
par í miðbænum.
Einkaneysla
óx um 9,4%
Einkaneysla
er talin hafa
vaxið um
9,4% á fyrsta
ársfjórðungi
og er það mesta
aukning sem ver-
ið hefur á einum ársfjórðungi und-
anfarin fimm ár. Þetta kemur fram í
Hagtíðindum Hagstofu íslands, sem
gefin voru út í gær. Meginhluta þessa
vaxtar má rekja til kaupa á innflutt-
um vörum og þjónustu.
Vöxtur fjárfestinga er mun meiri
á 1. ársfjórðungi en verið hefur og
er hún áætluð 24% meiri en á sama
fjórðungi fyrra árs. Samneyslan óx
um 3,9% og er það svipaður vöxtur og
verið hefur undanfarin ár.
Þjóðarútgjöld vaxa um 11,1%
Þjóðarútgjöld, sem eru samtala
neyslu og fjárfestingar, eru talin hafa
vaxiðum 11,1%. Benteráaðinnflutn-
Útflutningur dregst saman, m.a. vegna
minni útflutnings á sjávarafurðum.
ingur haldi áfram að aukast, nú um
17,7%, en stöðugur vöxtur hefur ver-
ið í innflutningi frá seinni hluta árs
2002. Útflutningur dróst hins vegar
saman um 3%, en þar vegur þyngst
minni útflutningur á sjávarafurðum.
Sex dæmd fyrir
fíkniefnainnflutning
í gær dæmdi Héraðsdómur Reykja-
ness fimm karla og eina konu á aldr-
inum 22-42 ára til fangavistar fyrir
fíkniefnainnflutning. Efnin voru flutt
inn með íslandspósti frá Rotterdam í
Hollandi en lögreglan komst á snoðir
um innflutninginn og skipti efnunum
- sem voru dulbúin sem kerti - út
fyrir tálbeitu. Með símahlerunum
komst lögreglan að því að þrír hinna
dæmdu biðu eftir sendingu frá út-
löndum. Tveir menn voru dæmdir til
tveggja ára fangavistar, ein kona var
dæmd til sex mánaða skilorðsbund-
innar refsingar og þrír aðrir til 12-21
mánaðar refsivistar í fangelsi.
Efnin sem um ræðir voru um
1.000 töflur af amfetamíni og rúm
130 grömm af kókaíni sem voru fal-
in í vaxkertum. Einnig þurftu hinir
dæmdu að borga laun verjenda sinna
en þau nema allt að 350 þúsundum
króna.
Tvö færeysk
fyrirtæki í
Kauphöllina
Stjórn Kauphallar íslands hefur
samþykkt aðild Föroya Spari-
kassi P/F að Kauphöllinni en fyr-
irtækið er stærsta fjármálafyr-
irtæki Færeyja. Einnig verður
olíufélagið P/F Atlantic Petrole-
um í Þórshöfn skráð á aðallista
Kauphallarinnar á morgun.
Innan vébanda Sparikassans
eru fasteignasalan INNI P/F og
fjárfestingarbankinn Eik Bank
Danmark A/S, sem er aðili í
Kauphöllinni í Kaupmannahöfn.
Félagið er aðili að Virðisbræva-
marknaður Fproya, sem gerði
samstarfssamning við Kauphöll
íslands um skráningu færeyskra
verðbréfa. Atlantic Petroleum er
fyrsta skrefið í því og má búast
við að verðbréfaviðskipti í Fær-
eyjum aukist í kjölfarið.
Gönguferðir á
Esjuna á
ffmmtudögum í
sumar
Ferðafélag íslands stendur fyr-
ir gönguferðum á Esjuna alla
fimmtudaga í sumar og er þátt-
taka öllum velkomin þeim að
kostnaðarlausu. Ferðirnar eru
farnar klukkan 19.15 á fimmtu-
dagskvöldum og er gengið frá
Mógilsá þar sem leiðsögumaður
tekur á móti hópnum og færir
hann í hlíðar Esjunnar.
Ferðafélagið stendur einnig
fyrir Esjuhappdrætti í sumar
í samvinnu við Nýju skátabúð-
ina og SPRON. Happdrættið er
þannig að allir sem skrifa nafn
sitt í gestabók Ferðafélagsins á
Þverfellshorni taka þátt og geta
átt von á gönguskóm í vinning.
Dregið er úr hópi þátttakenda
vikulega og tilkynnt um vinn-
ingshafa á heimasíðu félagsins,
www.fi.is.
Samfylkingarfélagið í
Reykjavík:
Ábyrgðarlaust
að hætta R-lista
samstarfi
í fyrradag samþykkti stjóm
Samfylkingarfélagsins í Reykja-
vík ályktun þess efnis að Sam-
fylkingin eigi að ganga til við-
ræðna um endurnýjað samstarf
innan Reykjavíkurlistans.
Segir í ályktuninni að það væri
ábyrgðarlaust og óskynsamlegt
að hætta því samstarfi sem hafi
verið í gangi síðustu þrjú kjör-
tímabil. Stjórnin hefur fulla trú
á því að saman geti gengið, bæði
um menn og málefni, og vísar í
þeim efnum meðal annars til um-
ræðna og skoðanaskipta borgar-
fulltrúa Reykjavíkurlistans um
skipulagsmál undanfarnar vik-
ur.
Og fjarskipti
úr úrvals-
vísitölu
Fyrirtækið Og fjarskipti upp-
fyllti ekki skilyrði Kauphallar
Islands um birtingu fréttatil-
kynninga á ensku í 90% tilvika
og hefur því verið fjarlægt úr
úrvalsvísitölu Kauphallarinnar.
Félagið birti fréttatilkynningar í
86% tilfella á ensku og fylgdi því
ekki reglum Kauphallarinnar
en er velkomið á lista úrvalsvísi-
tölunnar að sex mánuðum liðn-
um, þegar málin verða skoðuð
að nýju.