blaðið - 24.06.2005, Síða 14
blaöiö—
Útgáfuféiag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson. Ritstjóri:
Kart Garðarsson. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn og auglýsingar:
Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur. Aðalsími: 510-3700. Símbréf á fréttadeild: 510-
3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510-3711. Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is,
auglysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur.
Ábyrgðarlausir forstöðumenn
Forstöðumenn margra ríksstofnana reka þær af fullkomnu
ábyrgðarleysi. Ár eftir ár fara þeir fram úr fjárheimildum án
þess að gera nokkuð í málinu. Ár eftir ár halda þeir þessum
leik áfram án þess að fá svo mikið sem áminningu. í öllum
venjulegum fyrirtækjum væri slíkur framkvæmdastjóri rek-
inn. En ekki hjá ríkinu. Ríkisendurskoðandi hefur enn einu
sinni varað við þessu og hvetur til þess að eitthvað verði gert
- til greina kemur að stöðva frekari framlög til þessara stofn-
ana eða hreinlega reka yfirmenn þeirra. Þetta eru orð í tíma
töluð. Hvemig stendur á því að ráðuneyti og ráðherrar skuli
láta þetta viðgangast ár eftir ár? Hvernig stendur á því að ráð-
herrar í ríkisstjórn Halldórs Ásgrímssonar skuli ekki hafa dug
í sér til að stöðva þá sóun á fjármunum almennings sem á sér
stað? Hvernig stendur á því að eftirlitið er ekki betra?
Ráðherrar þegja þunnu hljóði um þessi mál. Enda ekki nema
von. í íslenska embættismannakerfinu hefur það ætíð þótt sj álf-
sagt að fara fijálslega með peninga almennings. Það vantar all-
an hvata í keríið til að sýna ráðdeild. Menn sem eyða of miklu
fá í besta falli klapp á bakið - að þeir fái áminningu er fáheyrt.
Þetta er sá hugsunarháttur sem hefur ríkt í áratugi. Á sama
tíma þarf almenningur að standa undir þungri skattbyrði til
að halda kerfi eiginhagsmuna og bruðls gangandi. Ráðist er í
gæluverkefni í hinum ýmsu landshlutum sem útilokað er að
muni nokkru sinni skila einhveijum arði til þjóðarbúsins. Ráð-
ist er í gangagerð í fámennum byggðarlögum á meðan ekki er
einu sinni hægt að búa til sómasamlegt gatnakerfi á höfuðborg-
arsvæðinu þar sem langflestir íbúar landsins búa. Reist eru
skrauthýsi fyrir embættismenn ríkisins og allt tal um báknið
burt er hjóm eitt. í útlöndum er haldið úti rándýrum sendiráð-
um sem eru ekkert annað en tímaskekkja á tölvu- og tækniöld.
Þetta eru dæmi af handahófi en það er af nógu að taka. Er ekki
kominn tími til að menn axli ábyrgð og fari að sinna starfi sínu
- að vinna fyrir skattborgara þessa lands? Ef þeir ráða ekki við
rekstrarhluta starfsins þá verða þeir að víkja - það gildir jafnt
um yfirmenn stofnana og ráðherra.
Mitt fólk á
Grímuhátíð
Albert Jensen.
Alltaf er gaman að fylgjast með þeg-
ar listafólkið okkar uppsker fyrir það
sem best er gert. Fær verðlaun og
hilli þjóðarinnar.
Þegar brot af verkum þeirra ber fyr-
ir og sjá það gleðjast hvert með öðru
við léttan húmor og græskulausa
stríðni. Grímuhátíðimar eru þó ekki
bara það sem leikurinn snýst um og
augljósast er. Þarna hefur kraumað
innri glóð sem nú er byrjuð að loga.
Það þarf engan að undra þótt mennt-
að fólk, þar með tahð listafólkið, fái
sting fyrir hjartað þegar talið berst
að niðurrifsæði íslenskra stjórnvalda
gagnvart náttúru landsins. Þetta
fólk skynjar líklega betur en flestir
hrikalegan ljótleikann og neikvæð
margfeldisáhrifin sem Kárahnjúka-
virkjun og stóriðja hafa. Margfeldis-
áhrifin skelfa þó mest. Meðal þess,
og aðalatriðið, er eyðing ósonlagsins
sem hefur áhrif á Golfstrauminn. Það
nýjasta og alveg óvænt, samkvæmt
bandarískum sérfræðingum, er vissa
um að ísöld sé í áður óþekktri ná-
lægð. Þeir fullyrða að vegna mikilla
og stækkandi gata á ósonlaginu verði
aðeins 200 ár í ísöld. Menn þurfa
ekki að verða vantrúaðir á svipinn,
þetta er farið að blasa hvarvetna við.
Lofthitinn eykst, jöklar minnka, sjór-
inn hitnar og yfirborðið hækkar. Fólk
getur svo sem tileinkað sér venjur
strútsins við vandamálum en hugs-
andi fólk getur ekki annað en verið
uggandi yfir því hvað það era margir
sem láta sér á sama standa um eyði-
leggingarnar á hálendinu. í kjölfar
þeirra kemur það vitlausasta af öllu
vitlausu - stóriðjan. Listafólkið okkar
er ábyrgt og framsýnt en neyðist til
að fara varlega í sakirnar í ummæl-
um sem styggt geta glámskyggn og
spillt stjórnvöld og fylgifiska þeirra.
Vinna þeirra og framtíð gætu verið í
hættu en þegar glóðin glæðist í loga
er krafist útrásar. Hugsjónaloga er
erfitt, eiginlega ógerlegt að bæla, og
það varð lýðum ljóst á Grímuhátíð-
inni. í upphafi hreif Ásta Amardótt-
ir hátíðagesti með ummælum sínum
um græðgina og afleiðingar hennar.
Þar átti hún augljóslega við skemmd-
arverk stjórnvalda á náttúra landsins
og ósoneyðandi stóriðju í Reyðarfirði.
Að endingu var það þó söngvarinn,
leikarinn og hestamaðurinn Jón Sig-
urbjörnsson sem lauk hátíðinni á
sérlega glæsilegan hátt. Þegar forseti
landsins hafði afhent honum heiðurs-
verðlaunin og hann þakkað fyrir sig
mælti Jón á þessa leið: „Ég get ekki
sleppt þessu besta tækifæri lífs míns
til að orða við þjóðina það skelfilega
andvaraleysi sem nú varir í helstu
málum hennar. Nýlega kvaddi ég sex
ára dreng með fallegustu kveðju sem
til er - vertu sæll. Bæ, bæ, var svar-
ið. Dýrmætustu eignir okkar, tungu-
málið og náttúra landsins, eru í meiri
hættu en áður hefur verið.“ Einlægni
þessa fjölhæfa listamanns um mál-
efnið sem brennur á hugsandi fólki,
hreif hátíðagesti meira en allt annað
sem fyrir bar um kvöldið. Kveðja lít-
ils bams bergmálar virðingarleysi
foreldra og þjóðfélagsins fyrir einni
af dýrmætustu arfleifð okkar fslend-
inga. Varla er viðbúið að foreldrar
sem þannig ala börn sín upp, hafi
áhyggur af umhverfisspjöllum og
menguninni sem fylgir.
'clJ il föstudagur, 24. júní 2005 í blaðið
Af hverju
að hjóla
1.400 kílómetra?
Eggert Skúlason,
varaformaður Hjartaheilla.
Forvarna- og sjúklingasamtök á borð
við Hjartaheill þurfa stöðugt að vera
að. f tvennum skilningi. í fyrsta lagi
að upplýsa og aðstoða. í öðru lagi að
safna peningum. Það þarf pening-
ana til að geta upplýst og aðstoðað.
Það verður sífellt erfiðara að safna
peningum. Þar kemur margt til. í
fyrsta lagi hefur félögum, sem eru að
vinna að göfugum markmiðum, fjölg-
að mjög mikið. Við hjá Hjartaheill
höfum orðið vör við vaxandi þreytu
hjá fyrirtækjum vegna hringinga
þegar beðið er um fjárframlög. Þetta
er mjög skiljanlegt. Stærri fyrirtæki
eru að fá gríðarmargar beiðnir og það
jafnvel á hverjum degi. En samt verð-
ur að halda áfram að hringja. Ég vil
nota tækifærið og þakka öllum þeim
fjölmörgu sem hafa stutt samtökin
okkar og vonast um leið eftir áfram-
haldandi skilningi.
Nú er svo komið að við leitum til
fyrirtækja og almennings eftir fjár-
framlögum til að geta áfram haldið
okkar baráttu gegn hjarta- og æða-
sjúkdómum. Þessir sjúkdómar eru
dánarvaldur númer eitt í Evrópu.
46% allra kvenna deyja af völdum
þessara sjúkdóma. Til að vekja at-
hygli á þessari staðreynd ætla ég að
hjóla 1.400 kílómetra.
Því miður er fullt jafnrétti
Það er afar útbreiddur misskilning-
ur að hjarta- og æðasjúkdómar séu
„karlasjúkdómar". Þessi útbreiddi
misskilningur stafar að stórum hluta
af því að allur áróður og þær herferðir
sem ráð- ist hefur
beinist fyrst og fremst að körlum.
Nú eru uppi alvarlegar og vaxandi
áhyggjur af því að konur hafi ekki ver-
ið fræddar sem skyldi um þessi mál
og hvað þær geti gert til að draga úr
líkum á þessum sjúkdómum.
Fleirikonurdeyjaúrhjarta-ogæða-
sjúkdómum í Evrópu en úr krabba-
meini á ári hverju. Þetta er uggvæn-
leg staðreynd og hefur fram til þessa
ekki verið uppi á borðinu. Það er eitt
mesta hagsmunamál Hjartaheilla
um þessar mundir að upplýsa konur
um hjarta- og æðasjúkdóma. Konur
fá nefnilega önnur einkenni en karl-
ar þegar kransæðastífla gerir vart
við sig. Þannig er nístandi brjóstverk-
ur talinn hið hefðbundna einkenni
hjartaáfalls en það á ekki við um kon-
ur. Þær upplifa allt aðra hluti og í við-
tölum við konur sem hafa greinst með
kransæðastíflu eða hjartaáfall er mik-
il þreyta oft undanfari þessa. Marg-
ar konur upplifa mæði og máttlitla
handleggi. Brjóstverkurinn reyndist
ekki á meðal helstu einkenna.
Hjartaheill sendi nýlega frá sér
fréttablaðið Velferð þar sem farið var
yfir þessi atriði og var blaðið sent öll-
um konum á íslandi á aldrinum 40-
45 ára. Þetta er liður í þeirri fræðslu
og þeim forvörnum sem Hjartaheill
beitir sér fyrir. Ég hjóla 1.400 kíló-
metra fyrir þessar konur.
Neistinn heldur upp á 10 ára
afmæli
Neistinn, barnadeildin okkar, heldur
upp á stórafmæli á þessu ári. Þetta
er fóngulegur félagsskapur hvunn-
dagshetja sem berjast fyrir betra lífi.
Þessi félagsskapur snýst um bömin
en einnig um foreldrana. Það eru jú
oftast pabbi og mamma og jafnvel
fleiri sem þurfa mest á aðstoð og hjálp
að halda. Það er erfitt að sjá litla kríl-
ið sitt úttroðið af slöngum og nálum.
Það er jafnvel enn erfiðara að kreista
bros í gegnum tárin til að veita þann
stuðning sem bamið þarf. Þessar
aðstæður eru sem betur fer flestum
framandi. Velferð, blaðið okkar,
veitti þó smá innsýn í þennan heim,
þar sem fjallað var um dvöl Regínu
Kristu í Boston. Hún var 56 daga í
þessari bandarísku borg þar sem
hún fór í tvær hjartaaðgerðir og þrjár
hjartaþræðingar. Hún er nú komin
heim á Suðurnesin og er, ef ég man
rétt, orðin níu mánaða. Sendi henni
og hennar fólk brosandi baráttukveðj-
ur. Það er fyrir Regínu Kristu sem ég
hjóla 1.400 kílómetra.
Eiður Smári aldrei betri
Gulldrengurinn og Englandsmeistar-
inn Eiður Smári hefur átt stórleik
með samtökunum. Hann hefur aldrei
leikið betur. Hann hefur kynnst
hjartasjúkdómum af eigin raun. Einn
hans bestu vina á hjartveikt barn og
Eiður Smári hefur sjálfur lýst því
hvernig hann kynntist erfiðleikum
fjölskyldunnar í þeirri baráttu. Eiður
Smári er verndari Hj artaheilla og hef-
ur staðið sig frábærlega. Þar er á ferð
drengur með gullhjarta. Það er hluti
af þakklæti til hans sem ég hjóla
1.400 kílómetra.
Hvað segja strákarnir?
Ég skoraði á strákana að koma og
hjóla með mér. Hef ekki heyrt frá
þeim en veit að ég á von á símtali
fljótlega. Þeir hafa aldrei guggnað
frammi fyrir áskorun og fara ekki að
gera það núna. Hlakka til að heyra
frá þeim og það er ekkert mál fyrir
unga hrausta menn að hjóla eins og
hundrað kílómetra á einum degi.
Með þeim og fleirum ætla ég að hjóla
1400 kílómetra.
Takk-takk
Þeir aðilar, sem þegar hafa styrkt
þetta framtak, eiga okkar þakklæti.
Þar fara fremst í flokki Vátrygginga-
félag íslands, Öryggismiðstöðin, Lýs-
ing og Lífis. Aðrir sem hafa staðið
þétt við bakið á okkur eru Líkams-
ræktarstöðin Hreyfing, GÁP sem
leggur til hjólið. Mongooze - alvöru
íjallahjól. Jónsi og hans félagar sem
eru að semja lag fyrir okkur. Þá get
ég ekki orða bundist með þakklæti til
þeirra fjölmiðla sem hafa íjallað um
okkur og sérstakt þakklæti og aðdá-
un til Guðrúnar Jónu, einkaþjálfara í
Hreyfingu, sem gerði það að verkum
að ég get hugsanlega hjólað 1.400
kílómetra.