blaðið - 24.06.2005, Síða 17

blaðið - 24.06.2005, Síða 17
blaðið I föstudagur, 24. júní 2005 Laxá í Dölum: 70 ára afmæli í gærdag Það var haldið mikið afmæli í veiði- húsinu við Laxá í Dölum í gærdag, en þá varð veiðifélag Laxdæla 70 ára. Veiðifélagið gaf út glæsilega bók og var margt um manninn á svæðinu. Margir skrifa í bókina en ritstjóri er Gunnar Bender. Veiði hefst í Laxá í Dölum á morg- un, veiðimenn hafa eitthvað verið að kíkja eftir fiski en ekkert séð ennþá. Lax er kominn í Haukadalsá í Döl- um en við þjóðveginn voru fjórir fal- legir laxar fyrir nokkrum dögum og voru tveir þeirra vænir. Á stjórnarfundi Landssambands veiðifélaga, sem haldinn var fyrir skömmu í Borgarnesi, var meðal ann- ars rætt um Veiðiminjasafnið í Ferju- koti í Borgarfirði. Stjórnin taldi að Þorkell Fjeldsted, bóndi í Ferjukoti, hefði unnið mjög merkilegt starf við að varðveita og halda til haga gömlum veiðiminj- um sem tengjast laxveiðum í Hvítá í Borgarfirði frá upphafi. Því ákvað stjórnin að styrkja það uppbyggingar- starf sem Þorkell hefur unnið. Safn þetta er stórmerkilegt og ættu sem flestir veiðimenn að kíkja á það þegar þeir eiga leið um svæðið til veiða. Tveir boltar á land Tveir vænir laxar hafa veiðst í veiði- ánum síðustu daga, annar í Laxá í Aðaldal sem Árni Jörgensen veiddi, og hinn veiddi kokkurinn Stulli Birg- isson í Vatnsdalsá. Sá fiskur var 20 pund. Það hafa sést vænir laxar í nokkr- um veiðiám svo það er aldrei að vita hvað gerist næstu daga. 510-3737 510-3744 510-3799 510-3700 Ingunn Hauksdóttir á veiðislóðum í Fremri-Laxá, þar sem hefur verið ágæt urriðaveiði. _____________________________.___________________________________________________________________.________________________ mMr eiðivefurinn SVFR.IS R.IS SVFR.IS er vinsælasti veiðivefur landsins. Nú geturðu á einfaldan og aðaenaileaan hátt keypt frábært úrval veiðileyfa úr hvaða nettenqdu tölvu sem er oa orentað bau út að loknum viðskiptum. bladió Á svfr.is finnnur þú: Úrval veiðileyfa í lax og silung - Upplýsingar um öll helstu veiðisvæði landsins - Fréttir og greinar - Veiðistaðalýsingar - Myndir - Upplýsingar um félagsstarf SVFR - Veiðikort og margt fleira

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.