blaðið - 04.07.2005, Blaðsíða 1

blaðið - 04.07.2005, Blaðsíða 1
Veidu ódýrt bensín ^k+avmnmg! öeGO Meira fyrir peningínn \ vw \ - \ \\ * á VV Kvittun fylgir ávinningur! Draumurinn um Dollaraqrín Shakespeare -bu.24 Ritstjórnar- og auglýsingasími: 510 3700 • bladid@vbl.is Hestamennskan _____íblóð borin ■■H - 40. TBL . 1. ÁRG, ÓKEYPIS biaðið Bæjarlind 14-16 201 Kópavogur Sími 510-3700 bladid@vbl.is ISSN 1670-5947 FRJALST OG OHAÐ MANUDAGUR, 4. JULI. 2005 Lögfræðiálit lítils virði - bls. 2 Meðalhraði mældur - bls. 4 Kynferðisleg áreitni á vinnustað - bls. 6 Fyrst Stöð 2, svo Daily Mirror - bls. 6 Alonso vann í Frakklandi - bls. 22 Helgarumferðin: Einn á gjörgæslu og fjölmargir aðrir slasaðir Segja má að slæmt veður, óhöpp og afbrot hafi sett svip sinn á liðna ferða- helgi. Fjölmargir voru á faraldsfæti enda mikið um að vera víða um land. Þannig var stórt knattspymumót haldið á Akureyri, Færeyskir dagar voru í Ólafsvík, Humarhátíð á Homa- firði svo eitthvað sé nefnt. Vonskuveður í gær Mikil umferð var til höfuðborgar- innar seinnipartinn í gær og í gær- kvöldi. Vonskuveður víða um land setti mark sitt á umferðina. Einhver óhöpp voru rakin beint til veðursins, til að mynda urðu miklar skemmdir á húsbíl er hann fauk út af veginum við Böðvarsholt í Staðarsveit um klukkan 16 í gær. Engin slys urðu á fólki en bíllinn er gerónýtur. Gestir á Humarhátíð komust ekki af stað frá Hornafirði fyrr en seinnipartinn í gær vegna veðurhamsins. Veður á suður- og austurlandi var ákaflega slæmt. Varað var við ferðum um Kjalames, og víða á austurlandi spilltist færð. Til að mynda lokaði vegagerðin veginum um Fagradal, milli Egilsstaða og Reyðarfjarðar vegna flóða og skriðufalla og var hann lokaður fram eftir kvöldi í gær- kvöldi. Alvarlegt umferðarslys á föstu- dag Einn maður slasaðist alvarlega eftir árekstur á Hellisheiði á sjötta tím- anum á fóstudag. Jeppi og fólksbíll sem vom að mætast, rákust saman og voru fjórir fluttir á slysadeild eft- ir slysið. Þrír þeirra vom útskrifaðir fljótlega en einn fór í aðgerð og var í gær ennþá haldið sofandi í öndunar- vél. Lögreglan í Reykjavík elti í fyrri- nótt ökumann sem ekki virti stöðv- unarmerki lögreglu. í eltingarleik í framhaldi missti ökumaður stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hann ók inn í garð í austurbæ Reykja- víkur þar sem hann hafnaði á húsi. Lítilsháttar meiðsl urðu á fólki við atburðinn. Ekið var á konu við Vaglaskóg að- faranótt sunnudags. Ökumaðurinn stakk af en lögreglan á Akureyri hafði upp á honum og gómaði hann. Grunur leikur á að maðurinn hafi ver- ið ölvaður. Konan hlaut minniháttar meiðsl. Kaupin á Mærsk: Óttast um störf hundruða manna Norrænir §ölmiðlar hafa fjallað tals- vert um kaup flugfélagsins Sterling á Mærsk Air og er almennt talið að þau muni koma flugfarþegum á Norður- löndum til góða. Á hinn bóginn ríkir ótti um að uppsagnir vofi yfir hundr- uðum starfsmanna flugfélaganna en ljóst er talið að taka þurfi verulega til í rekstrinum. Sterling er sem kunnugt er í eigu sömu aðila og Ice- land Express, en markmið þeirra er að byggja upp lágfargjaldaflugfélag í fremstu röð. Við sameiningu flugfélaganna er talið einsýnt að til yfirgripsmik- illar hagræðingar komi. „Það segir sig sjálft að við munum ekki halda í tvo starfsmenn í sama starfi," hef- ur Kaupmannahafnarblaðið Metro Express eftir Almari Erni Hilmars- syni, forstjóra Sterling. Meðal starfs- manna flugfélaganna ríkir því mikil óvissa og henni var ekki eytt á starfs- mannafundi á fóstudag. Sameiningin er stutt á veg komin en Almar Öm kveðst vona að hún verði að mestu leyti gengin eftir í ágúst. En þó starfsmenn flugfélaganna óttist um hlut sinn er talið að neyt- endur muni kætast á næstunni. „Við eigum eftir að sjá fleiri áfangastaði í framtíðinni og ef markaðurinn krefst lægra verðs þá verð- ur það þannig," seg- ir Almar Örn. „Við erum hingað komnir til þess að sigra sam- keppnina." Með kaupun- um á Mærsk Air er Sterling lang- stærsta lágfargjalda- félag Norðurlanda og hið fjórða stærsta í Evrópu allri með um fimm milljónir farþega. Fyrsta kastið munu flugvélar Mærsk Air vera í eigu fyrri eigenda félagsins, samgöngurisans Mærsk McKinney Mpller, en þær eru leigð- ar út til Sterling. Salan á flugfélag- inu er sögð tilfinn- ingalegt áfall fyrir fyrri eigendvn, en nauðsynleg aðgerð til þess að laga bók- haldið því Mærsk Air hefur verið rekið með miklum halla. Almar kveðst þó ekki óttast hallarekstur. „Við sjáum ekki fyrir okkur að reksturinn haldi áfram sem verið hefur.“ metroX * Billigere flybiUetter pá vej Alla virka daga HÁDEGISVERÐARTILBOÐ - 690.- Blandið saman allt að 3 réttum úr hitaborði Alla daga vikunnar 30 % AFSLÁTTUR AF HEILUM SKAMMTI í HITABORÐINU Sóltún 3 Bæjarlind 14-16 Tilboðin gilda ekki meö heimsendingu S 562 9060 S 564 6111 W9B

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.