blaðið - 04.07.2005, Blaðsíða 10
mánudagur, 4. júlí 2005 I blaðið
llng stúlka fannst með barnaníðingi
sem myrti fjölskyldu hennar
Hin 8 ára gamla Shasta Groene og 9 ára gamall bróðir hennar sem einnig var rænt.
Lögreglan telur óvíst að hann sé á lífi.
bjornbragi@vbl.is
Átta ára gömul stúlka, sem leitað
hafði verið í 6 vikur, fannst um helg-
ina með dæmdum barnamðingi, Jos-
eph Edward Duncan, á veitingastað
í Idaho-fylki í Bandaríkjunum. Fjöl-
skylda stúlkunnar hafði verið myrt
þegar stúlkan var numin á brott
ásamt 9 ára gömlum bróður sínum
en óttast er að hann sé nú einnig dá-
inn. Móðir stúlkunnar, 13 ára bróðir
hennar og stjúpfaðir fundust á heim-
ili sínu og höfðu verið bundin og bar-
in til dauða. Heimili þeirra er nokkra
kílómetra frá veitingastaðnum þar
sem stúlkan fannst.
Þekktur kynferðisafbrota-
maður
Þjónustustúlka á veitingastaðnum
kannaðist við Duncan og stúlkuna úr
fréttum en mikið hefur verið fjallað
um málið vestanhafs og myndir af
þeim verið birtar í flestum fjölmiðl-
um. Hafði hún samband við lögregl-
una og tafði Duncan með því að bjóða
upp á fría eftirrétti og gaf stúlkunni
leikfóng þar til lögreglan kom á stað-
inn.
Hinn 42 ára gamli Duncan hefur
áður setið af sér dóma fyrir kynferð-
isbrot gegn börnum, en það fyrsta
framdi hann árið 1980 þegar hann
var aðeins 16 ára. Þegar hann rændi
stúlkunni beið hann þess að réttað
væri yfir honum vegna kynferðisbrots
sem hann framdi gegn 6 ára dreng í
júlí á síðasta ári. Var hann látinn
laus gegn tryggingu aðeins mánuði
áður en stúlkan hvarf. Hafði lögregl-
an hafið leit að honum þar sem hann
var hættur að láta skilorðsfulltrúa
sinn vita af sér.
Mikil reiði vestanhafs
Talsmaður lögreglunnar sagði að eng-
ir líkamlegir áverkar hafi verið sjá-
anlegir á stúlkunni við fyrstu sýn og
ekki víst að henni hafi verið unnið lík-
amlegt mein. Gekkst hún undir lækn-
isskoðun skömmu eftir að hún fannst
og dvelur nú með fóður sínum. Mikil
reiði ríkir meðal almennings vegna
málsins og hefur harðlega verið gagn-
rýnt að Duncan hafi gengið laus, þar
sem hann sé augljóslega stórhættu-
legur umhverfi sínu. Búist er við að
Duncan hljóti lífstíðardóm fyrir gjörð-
ir sínar. Fjölmargir hafa þó krafist
þess að hann hljóti dauðarefsingu en
aðeins einn maður hefur verið líflát-
inn í Idaho-fylki síðan 1976.
Leiðtogi al-Qaida
myrtur í Riyadh
Yfirmaður í al-Qaida-samtökun-
um var myrtur í skotbardaga milli
lögreglu og grunaðra hryðjuverka-
manna í Riyadh, höfuðborg Sádi-Ar-
abíu, í gær. Younis al-Hayyari var 36
ára gamall Marokkóbúi og var nafn
hans efst á nýútgefnum lista sádi-ar-
abískra yfirvalda sem innihélt nöfn
36 meðlima al-Qaida sem grunaðir
eru um hryðjuverk. Bardaginn átti
sér stað við hús í austurhluta Riyadh
sem var felustaður hóps manna sem
grunaðir eru um aðild að hryðjuverk-
um. Fjölmargir meðlimir al-Qaida
voru handteknir eða særðir í bardag-
anum og gerðu lögregluyfirvöld upp-
tæk vopn, hergögn, samskiptabúnað
og annað tilfallandi.
Hver vill ekki hafa fallega glugga
sem aldrei þarfnast viðhalds?
Hjá PGV ehf Hafnarfirði færðu hágæða viðhaldsfria
PVC-u glugga á sambærilegum verðum og glugga
sem þarfnast stöðugt viðhalds...
eignarlnnar
i fúi né ryð
engin
málningarvinna
frábær hita og
hljóðeinangrun
fallegt útlit
margir opnunarmöguleikar
Leit haldið áfram
örugg vind og
vatnsþétting
. miög hagstætt verð
PGV PLASTGLUGGAVERKSMIDJAN
i - T i i ...gluggl tll framtíðar
Bæjarhraun 6 220 Hafnarijörður slmi:564-6080 fax:564-6081 www.pgv.is
Stjórnvöld á eyjunni Aruba tilkynntu
í gær að Hollendingar myndu senda
þrjár F-16 flugvélar búnar fullkomn-
um búnaði til að aðstoða við leitina
að bandarísku stúlkunni Natalee
Holloway, sem sakanað hefur verið
í um fimm vikur. Málið hefur vakið
mikla athygli ekki síst í Bandaríkjun-
um en Holloway var í útskriftarferð
með félögum sínum þegar hún hvarf.
Bandaríski þingmaðurinn Richard
Shelby og Bob Riley ríkisstjóri Al-
abama, höfðu áður hvatt stjórnvöld
á Aruba til að leggja meiri áherslu
á leitina meðal annars með því að
veita bandarísku alríkislögreglunni
FBI allar upplýsingar um málið. Þrír
menn hafa þegar verið handteknir
vegna málsins en þeir hafa ekki enn
verið ákærðir. Talið er að von sé á
ákærum jafnvel strax í dag þrátt fyr-
ir að ekkert hafi komið fram hvað
varð um stúlkuna.
Plastmódel 3-víddar klippimyndir Myndir til aó mála eftir númerum
Sendiherra
Egypta í írak
rænt
Ihab al-Sherif, sem nýlega var skfp-
aður sendiherra Egyptalands í Ir-
ak, var rænt af vopnuðum mönnum
í gær. Egypski sendiherrann mun
hafa verið að versla nálægt heimili
sínu í Mansour-héraði í Bagdad þeg-
ar mennirnir réðust að honum og
námu hann á brott. Ekki er vitað á
hvaða vegum þeir eru eða til hvers
þeir ætlast.
Egyptaland er fyrsta Arabaríkið
sem skipar sendiherra í írak síðan
Saddam Hussein var bolað burt árið
2003. Þá er al-Sherif fyrsti egypski
sendiherran í landinu síðan 1990. Eg-
yptar opnuðu sendiráð sitt í Bagdad
á ný snemmaí4iíðasta mánuði og var
Al-Sherif þá skipaður í embættið.
Bandaríkja-
menn bjarga
hermanni í
Afganistan
Bandarískir hermenn björguðu sér-
sveitarhermanni í Afganistan í gær
en hann hafði verið týndur í næst-
um viku. Fjórir hermenn urðu við-
skila við herdeild sína í Konar-hér-
aði þann 28. júní, en hann náði að
komast hjá því að lenda í höndum
uppreisnarmanna. Chinook-þyrla
sem hafði leitað hermannanna var
skotin niður og létu 16 hermenn lífið.
Talið er að Talíbanar hafi verið þar
að verki. Var þetta mesta mannfall
úr röðum Bandaríkjahers síðan þeir
steyptu Talíbanastjórninni af stóli
árið 2001. Vonskuveður í Afganist-
an hefur hindrað að hægt sé að leita
að hinum þremur hermönnnum sem
týndust.
Myrtur
vegna
iPod-spilara
Tveir táningspiltar eru í haldi lög-
reglu í New York grunaðir um að
hafa myrt 15 ára gamlan dreng
Christopher Rose, til þess að kom-
ast yfir iPod-spilara hans. Piltarnir
verða ákærðir fyrir morð, rán og ólög-
lega vopnaeign. Rose og þrír félaga
hans lentu í útistöðum við hóp ungra
manna á laugardagskvöld í Brooklyn.
Kröfðust þeir þess að Rose afhenti
þeim spilara sinn og stungu hann tví-
vegis í bijóstið þegar hann þráaðist
við. Samkvæmt lögregluyfirvöldum í
New York ríður nú yfir bylgja þjófn-
aða á iPod-spilurum í lestum borgar-
innar. Talið er að flestir séu að stela
spilurunum til einkanota, frekar en
að selja þá.