blaðið - 04.07.2005, Blaðsíða 12

blaðið - 04.07.2005, Blaðsíða 12
mánudagur, 4. júlí 2005 b blaðið Yfir 100 manns farast í flóðum Vilhjálmur Bretaprins heilsar hér áhorfendum þar sem hann var viðstaddur athötn í Wellington, höfuðborg Nýja-Sjálands þar sem minnst var þeirra Ný-Sjálendinga sem létust í seinni heimsstyrjöldinni. Hinn 23 ára gamli prins lagði blóm að minnisvarða og ræddi við gamla hermenn. Var þetta fyrsta opinbera einstaklingsferð prinsins og viðhélt hann þeim óformlegu venjum sem hann hefur verið þekktur fyrir. Ferð Vilhjálms til Nýja-Sjálands varir í tíu daga. Flóð vegna Monsún rigninga hafa nú umlukið yfir 7000 þorp á Indlandi og í Pakistan. Yfir 175.000 manns eru nú heimilslausir vegna flóðanna, en 131 einstaklingur hefur látið lífið í þeim. Monsún - rigningarnar hefjast í júní og standa yfirleitt út septemb- er. Búist er við fleiri flóðum á svæð- inu á næstu dögum og vikum. Farið hefur verið fram á fjárhagsaðstoð vegna ástandsins sem skapast hefur á svæðinu en um þessar mundir er unnið að björgunaraðgerðum meðal annars á mótorbátum. Svæðisstjórn- ir segjast nota alla þá krafta sem þeir hafi yfir að ráða til að koma íbúum á svæðinu til aðstoðar en að það dugi ekki og því þurfi landsstjórnin og al- þjóðasamfélagið að bregðast við. Flóðin hafa ekki einungis kostað mannslíf því eitt af 359 ljónum af tegund sem er í útrýmingarhættu drukknaði í flóðinu að sögn dagblaðs- ins Hindustan Times. Bresku tónlistarmennimir Paul McCartney og George Michael troða upp á Live 8 tónleikunum í Hyde Park í London um helgina. Ógrynni stjórstjarna kom fram á tónleikunum sem haldnir voru í tíu borgum í fjórum heimsálfum Vilja margir meina að um hafi verið að ræða stærstu tónlistarsýningu sögunnar. Markmiðið með viðburðinum var að þrýsta á þjóðarleiðtoga G8 að beita sér harðar fyrir því að útrýma fátækt í Afríku. Leiðtogafundur G8 fer fram í Skotlandi á miðvikudag. Gordon Brown segir baráttuna gegn fátækt vera ævistarf bjornbragi@vbl.is Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands, segir að það muni taka meira en einn G8-fund til að ákvarða A 5’ R 510-3799 Auglýsingadeild 510-3744 Smáauglýsingar 510-3737 framtíð Afríku til langs tíma litið. Þó hafi miklum framfórum verið náð í baráttunni gegn fátækt á síðustu vik- um. „Það er ævistarf sem gengur út á að við felum fólkinu í Afríku og þróun- arlöndunum valdið til að taka eigin ákvarðanir" sagði Brown. Hann sagði einnig að samkomulag hefði náðst um tvö lykilatriði, tvöfóldun aðstoðar við fátæk lönd og 100% skuldalausn. „Við höfum náð þeim áfanga að 13 Evrópuríki hafa samþykkt að auka aðstoð sína við fátæk lönd í 0,7% af innkomu sinni. Það er eitthvað sem við höfum ekki áorkað á 30 árum, þrátt fyrir miklar tilraunirsagði hann ennfremur. Einnig hafði hann á orði að Live 8 viðburðurinn hafi veríð dæmi um Bretland í sínu besta formi. „Þeir voru sönnun um að fólkið getur haft valdið ef það lætur fmna fyrir skoðunum sínum,“ sagði Brown. Benedikt XVI páfi lét sig ekki vanta í hóp þeirra sem hvöttu þjóðarleiðtog- ana til að grípa til aðgerða vegna fá- tæktar í Afríku. Hann hvatti þá til að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að útrýma hungurdauða og hjálpa fátækum löndum að þróast. Leiðtogafundur G8 hefst næst- komandi miðvikudag f Gleneagles í Skotlandi og munu fátækt og lofts- lagsbreytingar vera þau málefni sem aðallega verða rædd. Fundinum verður stýrt af Tony Blair, forsætis- ráðherra Bretlands. Aðildarríki G8 eru Bandaríkin, Kanada, Frakkland, Þýskaland, Ítalía, Bretland, Rúss- land og Japan. Handteknir vegna hryðju- verka í Indónesíu Indónesísk lögregluyfirvöld hafa handtekið fjölmarga grunaða um hryðjuverk og mun hafa þá í haldi í a.m.k. viku samkvæmt indónesískum lögum. Lögreglustjórinní Da’i Bachti- ar neitaði að gefa upp hverjir voru handteknir en aðilarnir eru grunaðir um aðild að sprengjuárásum í Bali 2002 og sprengjuárásinni á Marriott- hótelið í Jakarta 2003. Réttað hefur verið yfír fjölmörgum vegna sprengju- árásanna en talið er að báðar árásirn- ar hafi verið verk Jemaah Islamiah, múslimsk hernaðarsamtök sem vilja stofna sameinað íslamskt ríki þvert um endilanga Suð-austur-Asíu. Minningarathöfn í Nýja-Sjálandi blaðið=

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.