blaðið - 18.07.2005, Síða 2

blaðið - 18.07.2005, Síða 2
2 I IWNLEWDAR FRÉTTIR MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 2005 blaAÍð de; j andártakinu HAHífcimtH Nýja Potterbókin uppseld Nýja Harry Potter bókin er uppseld en þessar vinkonur voru fyrstu kaupendur hennar í Eymundsson í Austurstræti en þær biðu í hálfan sólarhring eftir miðnæturopnuninni. Nýja Harry Potter bókin, Harry Potter and the Half-Blood Prince, er uppseld hér á landi. Rúmlega 1700 eintök voru pöntuð en seldust upp á rúmum sólarhring. Önnur sending er á leið til landsins og vonir standa til að bókin verði komin í bókaverslanir á þriðjudag. Bókin er ekki bara að slá sölu- met, hún er einnig að fá fina dóma og er sögð vera afar áhrifamikil. í New York Times er henni líkt við Hringadróttinssögu og Los Angeles Times bar hana saman við hina sígildu bamabók Vef Karlottu. Bókin fær einnig ágæta dóma í The Observer en gagnrýnandinn segir þó að eins og Harry Potter sé lýst í bókinni þá sé hann táningur sem fæstir foreldrar þekki. Almennt álit gagnrýnanda virðist vera að þetta sé myrkasta sagan í bókaflokkn- um og dauðadagi einnar aðalper- sónunnar þykir ansi hrottalegur miðað við barnabók. 1 neikvæð- ustu dómum um bókina er helst kvartað undan því að of margar hliðarsögur séu í bókinni ogþar sé einblínt um of á atburði í fortíð. Búist hafði verið við að 10 milljónir eintaka myndu seljast í heiminum fyrsta söludag- inn. Ekkert bendir til annars en að það hafi gengið eftir. loftkœling Verð frá 49.900 án vsk. ís-húsid 566 6000 Kristinn H. Gunnarsson þingmaður Framsóknar Sakar ráðherra um að falbjóða stjórnsýsluna Kristinn H. Gunnarsson, alþingismað- ur Framsóknarflokksins, gagnrýnir tvo ráðherra ríkisstjórnarinnar mjög harð- lega í grein, sem hann ritar í Blaðið í dag, og sakar þá um að vilja bjóða stjórnsýslu- ákvarðanir hæstbjóðanda. Þar vísar Kristinn til umræðu um að embætti, stofnanir og störf á veg- um hins opinbera kunni að verða flutt norður til Akureyrar að ósk Kaupfélags Eyfirðinga (KEA), en kaupfélagið hefur boðist til þess að leggja fram hundruð milljóna til þess að liðka fyrir slíku. Það eru Árni Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra og Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra, sem Kristinn beinir spjótum sínum helst að, en Valgerður er flokkssystir Kristins. Þá gagnrýnir Kristinn KEA. einnig fyrir að seilast inn á stjórnsýslusviðið, en fátítt er að fram- sóknarþingmenn gagnrýni samvinnu- hreyfinguna eða félög innan hennar. „Ég hef rætt þetta innan míns þing- flokks og fékk þá skýr svör að mér fannst, en það virðist ekki hafa gengið eftir,“ segir Kristinn og kveðst einnig hafa fært málið í tal við einstaka þing- menn samstarfsflokksins. „Árni Mathiesen segir það býsna op- inskátt í Fréttablaðinu á laugardag að stefnan ráðist af peningum frá KEA. Hér höfum við flokka, sem marka sér stefnu, og kosið er um svo þeir geti framfylgt henni. En núna virðist viðskiptalífið geta keypt sér stefnu.“ Kristinn hefur áður lent í ágreiningi við samflokks 99.............. En núna virðist viðskiptalífið geta keypt sérstefnu „Það held ég ekki. Mér finnst að þessir ráðherrar þurfi að gera grein fyrir því hvert þeir eru að fara. Sú vegferð er ekki í neinu samræmi við stjórnarsáttmálann, hún er ekki í samræmi við stefnu Fram- sóknarflokksins og ég held ég megi segja að hún sé ekki heldur í neinu samræmi við stefnu ******** Sjálfstæðisflokksins. Þeg- ar menn beygja svona af leið er ekki nema eðlilegt að maður láti í sér heyra.“ Kristinn kveðst ekki vera á förum úr Framsókn- sína á þingi, m.a. arflokknum þó hann leyfi vegna Iraks og fjölmiðlalag- anna. Síðastliðið haust var hann settur hjá við val á fulltrúum flokksins í þing- nefndum og sagði þingflokksformaður framsóknarmanna ástæðuna vera þá að Kristinn nyti ekki lengur trúnaðar þingflokksins. Sættir tókust þó í febrúar síðastliðnum og tók hann þá aftur sæti í þingnefndum. Kristinn óttast ekki að hann sé að koma sér úr húsi á nýjan leik. sér að gagnrýna það sem þar kann miður að fara. Hið sama eigi við um gagnrýni hans á KEA. „En mér finnst að þarna hafi menn farið of langt í að þjóna auðhyggjusjónarmiðum þegar viðskiptalífið seilist til áhrifa í stjórn- sýslunni," segir Kristinn og telur menn hafa ekki nógu minnuga á einkunnarorð framsóknarmanna: „Manngildi ofar auð- gildi.“ ■ Nóatún: Erum klárir í að selja bjór og vín „Við höfum fullan hug á því að selja vín og bjór með matvörunni ef við fáum leyfi til,“ segir Kristinn Skúlason, markaðs- stjóri Nóatúns, en segir að þeir hafi ekki hugleitt hvort reynt verði að sækja um vín- veitingaleyfi eða undanþágu frá einkasölu- ákvæði Áfengis- og tóbaksverslunar ríkis- ins (ÁTVR). „En við vitum að það kemur að þessu og þá verðum við klárir.“ Um helgina urðu forráðamenn mat- vöruverslunarinnar Nóatúns við tilmæl- um lögreglu og hættu að bjóða bjór í kaup- bæti með gasgrillum eins og verið hafði í liðinni viku. „Við ætlum að setjast niður nú eftir helgina og meta stöðuna,“ segir Kristinn en segir að ekkert hafi verið ákveðið um framhaldið enn. „Við vitum ekki hvert verður næsta skref, en það er allt opið.“ Kristinn segir Nóatúnsmenn hafa mik- inn áhuga á að fá að selja léttvín og bjór, enda standi áhugi viðskiptavinanna til þess. „Við gætum farið út í að selja bjór og vín með stuttum fyrirvara. Það er ekkert mál. Við erum með mikið af þjálfuðu starfs- fólki og búðir til þess að selja vin eins og hvað annað og gætum gert það rétt eins og ÁTVR.“ Kristinn segir að sjálfsagt þyrfti að hnika einhverju til í verslunum ef til kæmi, en kveðst ekki hafa áhyggjur af slíku. „Það kallar á einhverjar tæknileg- ar lausnir en þær eru engan veginn óyfir- stíganlegar." Kristinn segir að í Nóatúni hafi þeir fundið fyrir áhuga viðskiptavina til þess að geta sinnt þeim innkaupum sem öðr- um í verslunum þeirra. „Maður heyrir að menn vilja einfaldlega getað klárað helgar- steikarinnkaupin í matvörubúðum frekar en að þurfa að fara í margar búðir eftir því sem til þarf,“ segir Kristinn og telur að sala á bjór og léttvíni myndi fara vel við þá stefnu, sem Nóatún fylgir f vöruúrvali og þjónustu. ® Laun nýrra starfsmanna allt að 40% lægri Verkalýðsfélag Akraness hyggst á næst- unni fara með mál félagsins gegn fyr- irtækinu Fangi ehf. fyrir félagsdóm. Fang er undirfyrirtæki Islenska Járn- blendifélagsins og vinna starfsmenn þess við ræstingar og í mötuneyti. Deila Fangs og verkalýðsfélagsins er að mörgu leiti sérstök, því hún snýst ekki um kaup núverandi starfsmanna Fangs, heldur komandi starfsmanna fyrirtækisins. Forsaga málsins er að fyrirtækið Fang var stofnað árið 2002, og er al- farið í eigu Járnblendifélagsins. Starfs- menn í mötuneytum og við ræstingar fluttust við breytinguna yfir í nýtt fyrirtæki og töldu forráðamenn þess að eftir breytinguna gætu þeir greitt starfsmönnum eftir almennum kjara- samningi í stað sérkjarasamnings Járn- blendifélagsins. Munur á launatöxtum og launauppbótum þessara samninga er á bilinu 30 til 40%. Frá upphafi lá fyrir að þeir starfsmenn sem þegar unnu hjá fyrirtækinu myndu ekki lækka í launum, en það liggur líka fyr- ir að fyrirtækið hefur í hyggju að ráða nýja starfsmenn inn til fyrirtækisins á lægri töxtunum. Að sögn Vilhjálms Birgissonar, formanns Verkalýðsfélags Akraness hyggjast núverandi starfsmenn ekki una þessu, og standa nú í baráttu með félaginu sem tryggir þeim ekki hærra kaup sjálfum, heldur komandi starfs- mönnum fyrirtækisins. Svipuðum aðferðum beitt í fiskvinnslunni Að sögn forráðamanna í verkalýðshreyf- ingunni, sem Blaðið ræddi við í gær er þessi aðferðafræði ekki óþekkt. Þannig hafa fiskvinnslufyrirtæki víða á land- inu farið þá leið að hætta að sjá um þrif á frystihúsum sínum sjálf, en ráða þess í stað utanaðkomandi fyrirtæki í verkið. Dæmi eru um að við þetta hafi starfs- mönnum við þrif verið sagt upp störf- um en boðin vinna á ný hjá nýja þrifa- fyrirtækinu á mun lægri launum. Mjög erfitt sé að eiga við þetta, því breytingin sé sú að farið sé úr akkorði yfir í tíma- kaup sem sé iðulega mun lægra. Atvinnuleysi ungs fólks minnkar Atvinnuleysi fólks á aldrinum 16 til 24 ára hefur minnkað verulega samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. 1 júnímán- uði síðastliðnum var 731 einstaklingur á þessum aldri atvinnulaus, en í sama mánuði í fyrra var þessi tala 1.360. Það þýðir að atvinnuleysi í þessum aldurs- hópi hefur minnkað um tæp 90% milli ára. Hlutfall ungs atvinnulauss fólks hef- ur einnig minnkað talsvert. f júnímán- uði síðastliðnum voru 21% allra atvinnu- lausra á aldrinum 16 til 24 ára, en í sama mánuði í fyrra var hlutfallið 26%. Meðaltal 16 til 24 ára atvinnulausra af öllum atvinnulausum á árinu 2004 lækkaði og var 23,5, en þetta hlutfall var um 26% árin 2003 og 2002. ■ Eggert safnaði milljónum Eggert Skúlason við upphaf ferðar sinnar. Milli sex og sjö milljónir króna söfnuð- ust í tengslum við ferð Eggerts Skúla- sonar á reiðhjóli hringinn í kringum landið. Ferðin var farin til að safna fé fyrir Hjartaheill, landssamtök hjarta- sjúklinga. Að sögn Ásgeirs Þórs Árnasonar, framkvæmdastjóra samtakanna, gekk fjársöfnunin vonum framar. Hann seg- ir að rúm ein milljón króna hafi komið í gegnum söfnunarsímana 907-2001 og 907-2003, en að milli 5 og 6 milljónir hafi komið í beinum framlögum frá fyr- irtækjum og einstaklingum. Ekki sé þó endanlega búið að fara yfir hversu mik- ið fé safnaðist. Ásgeir bendir ennfremur á að þó ferð, Eggerts hafi lokið síðastlið- inn föstudág ljúki söfnun samtakanna ekki formlega fyrr en um næstu mánað- armót, og því er ennþá hægt að styðja gott málefni. „Við lögðum upp með að hafa gaman af þessu, kynna samtökin og sýna fram á að einstaklingur sem hefur fengið hjartaáfall gæti gert allt það sem venju- legur einstaklingur gerir. Allir fjármun- irnir í áheitum og peningum er því í raun bónus fyrir okkur“ segir Ásgeir. Hann segir ennfemur að peningarnir muni koma í góðar þarfir og verði nýttir í starfi samtakanna, sem og að aðstoða efnaminni hjartasjúklinga fjárhagslega. „Ég vil nota tækifærið og koma á fram- færi hjartans þökkum til þjóðarinnar fyrir frábærar viðtökur' sagði Ásgeir að lokum. O Heiísklrt 0 Léttskýjað ^ Skýjað Q Alskýjað / f Rlgnlng, liUlsháttar Rignlng Súld Snjðkoma 'jj Slydda Snjðél skúr Amsterdam 25 Barcelona 28 Berlin 24 Chicago 25 Frankfurt 28 Hamborg 24 Helsinki 24 Kaupmannahöfn 23 London 23 Madrid 30 Mallorka 31 Montreal 23 NewYork 25 Orlando 27 Osló 23 Parls 23 Stokkhólmur 21 Þórshöfn 12 Vín 29 Algarve 25 Dublin 18 Glasgow 15 f ac r <•. ■ / 11 " / % / / ®i3 Á morgun Veðurhorfur í dag Veðursíminn >02 0600 Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu fslands 14o12,® 13°

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.