blaðið - 18.07.2005, Blaðsíða 11

blaðið - 18.07.2005, Blaðsíða 11
blaðió MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 2005 MEYTENDUR 111 íslendingar andvígir erfðabreyttum matvælum Nýverið höfnuðu umhverfisráðherr- ar Evrópusambandsins tillögu fram- kvæmdarstjórnar þess um að afnema bann á erfðabreyttum matvaelum. Framkvæmdarstjórnin lagði tillög- una fram vegna gríðarlegs þrýstings frá Bandaríkjunum sem kært hafði bannið fyrir WTO (World Trade Organization) áþeim forsendum að um viðskiptahindr- anir væri að ræða. Miðað við rannsókn sem Kynning- arátak um erfðabreyttar lífverur hefur framkvæmt að undanförnu virðist vera sem flestir sjái nauðsyn þess að fram fari opinber og almenn umræða um kosti og galla erfðabreyttra matvæla Öryggisatriði þess lags tækni verði út- listaðar sem og umhverfis-og heilsufars- áhrif. Ræktun á erfðabreyttum lyfjaplönt- um hefur verið kynnt sem nýtt bjargráð fyrir íslenskan landbúnað. Eitt íslenskt liftæknifyrirtæki hefur nú þegar feng- ið leyfi yfirvalda til tilraunaræktunar utandyra á erfðabreyttu byggi sem þróa á til framleiðslu á lyfjum og iðnaðarvör- um. Erfðabreyttum lífverum hefur með öðrum orðum verið sleppt út í íslenska náttúru. í könnun sem Neytendasamtökin gerðu kom í ljós að 65% Islendinga eru andvígir erfðabreyttum matvælum en aðeins 21% eru hlynnt þeim. Þessar töl- ur stemma ágætlega við tölur í Evrópu en um 70% allra Evrópubúa eru andvíg- ir. 91% íslendinga finnst mikilvægt að tekið sé fram á umbúðum skýrt og skilmerkilega hvert innihaldið er og hvernig það var unnið sé um að ræða erfðabreytt matvæli. Stjórnvöld hér hafa þó ekki enn gert slíkt að skyldu og er Island eina landið í Evrópu sem ekki er með slík ákvæði. Það mun þó standa til bóta á komandi hausti. Ekki er heldur skýr stefna um að al- menningur sé upplýstur um hvar rækt- unarreitir vegna tilrauna og framleiðslu á erfðabreyttum plöntum eru staðsettir. Þess má einnig geta að konur eru and- vígari framleiðslu erfðabreyttra mat- væla en karlar. Aðeins 13% kvenna eru hlynntar framleiðslunni en 30% karla. Góð grænmetis- ráð Gulrætur - Best er að geyma þær í miklum raka þar sem þær eiga það til að þorna. Ef þær standa í birtu verða þær beiskar á bragðið. Jarðarber - Athugið að geyma aldr- ei jarðarber nálægt eggjum og mjólk- urvörum þar sem þau gefa frá sér svo mikla lykt að þau geta skemmt þessi matvæli. Rófur - Ekki er æskilegt að frysta rófur eins og hentar með margar aðrar tegundir af grænmeti. Bragð- gæðin verða ekki þau sömu og fyrir frystingu. Spergilkál - Til að varðveita gæði spergilkáls er best að geyma það þétt vafið i plasti. Jöklasalat - Hættið að skera jökla- salat með hnífi. Látið liggja í bleyti í nokkrar mínútur í ísköldu vatni svo það verði stökkt. Rífið það svo niður í stað þess að skera það. Agúrka - Ef agúrkan er þornuð má stinga þornaða endanum í kalt vatn í svolitla stund. Þá ætti hún að taka við sér aftur. Paprika - Ekki geyma hana í of miklum kulda, þá linast hún fyrr. Tómatar - Afar viðkvæmir fyrir kæliskemmdum, skulu alltaf vera geymdir við stofuhita. Sveppir - Eru próteinríkari en flest annað grænmeti og eru því tilvald- ir fyrir þá sem auka vilja prótein- neyslu. grettunm Hmhmstn Ferskur safi eða ekki? Lífræn og vistvæn ræktun Munurinn á vistvænni og lífrænni ræktun vefst fyrir mörgum. Munurinn felst í því að i lífrænni ræktun er und- irstöðuatriði lífrænn áburður af ýmsu tagi. Enginn tilbúinn áburður né eit- urefni eru leyfð við lífræna ræktun og miklar kröfur eru gerðar til gróður- og umhverfisverndar. Ekki eru einungis notaðir lífrænir framleiðsluhættir við matvælaframleiðslu heldur einnig við skógrækt og nýtingu villts gróðurs. Við lífræna ræktun þarf að framfylgja alþjóðlegum reglum. Hér á landi er að- eins ein stofa starfandi sem hefur hlotið faggildingu, Vottunarstofan Tún. Vistvænn búskapur er að flestu leyti venjulegur búskapur þar sem eiturefni og tilbúinn áburður eru leyfðir en þó ekki nema í takmörkuðu magni. Kalla má vistvænan búskap gæðastýrðan hefðbundinn búskap. ■ Gríðarlegt úrval af appelsínusafa er í boði í hillum stórmarkaða, bæði ferskur og sykraður. I einni tegund af ferskum appelsínu- safa segir í innihaldslýsingu; „Hreinn appelsínusafi með aldinkjöti úr Flor- ida appelsínum. Safinn er búinn til úr appelsínuþykkni.'1 Margir reka upp stór augu er þeir sjá þessa merkingu, telja að verið sé að blekkja til um innihaldið enda leggja flestir aðra merkingu í appelsínuþykkni en að um ferska vöru sé að ræða. 1 reglugerð um ávaxtasafa og sam- bærilegar vörur segir; „Ávaxtasafi úr þykkni er safi sem fæst með því að bæta neysluvatni, bragði og eftir því sem við á, aldinkjöti og safabelgjum í ávaxta- þykkni í stað þess sem skildist frá við þykkninguna." Ávaxtaþykkni fæst með því að fjar- lægja ákveðið hlutfall vatns úr ávaxta- safa með eðlisfræðilegum aðferðum. Ef varan er ætluð til beinnar sölu til neyt- enda skal þykkingin vera að minnsta kosti 50%. Það sem blekkir þann sem ekki er al- fróður um þessi mál er að hægt er að fá ávaxtasafa sem kallaður er þykkni með appelsínubragði eða aðrar bragðtegund- ir. Ætlast er til að vatni sé blandað við þess lags þykkni í hlutföllunum 1/6. Samkvæmt skilgreiningunni að ofan er því þannig ávaxtasafi ekki ávaxta- þykkni samkvæmt reglugerð þar sem ýmsum aukaefnum, s.s. sykri, bragðefni, sítrónusýru rotvarnarefni, bindiefni og litarefni er bætt við. Blaðið leitaði skýringa hjá Umhverf- isstofnun um þessar merkingar og heiti á ávaxtadrykkjum. Þau svör fengust að ganga þyrfti í þetta mál til að skýra það betur fyrir neytendum hvaða vöru þeir væru að kaupa enda ákvæði í reglugerð um að framleiðendur eða innflytjendur sjái til þess að merkingar séu skilmerki- legar og enginn vafi leiki á hvaða vöru sé verið að kaupa. ■ mm hwori © FUJIFILM www.fujifilm.is 50 Fujifilm A345 stafrænar myndavélar 50 Philips HDD050 MP3 spilarar 100 Adidas Pelias 2 fótboltar Allar upplýsingar eru að finna á: fujifilm.is Qöi0]aiai)æðim Ljósmyndavörur Reykjavík og Akureyri Úlfarsfell Hagamel i Filmverk Selfossi i Myndsmiðjan Egilsstööum i Fótó Vestmannaeyjum

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.