blaðið - 18.07.2005, Blaðsíða 18

blaðið - 18.07.2005, Blaðsíða 18
18 I TÓMSTUNDIR MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 2005 blaöiö sigrinum Hans Fíimtn Kajakróður Góð alhliða hreyfing Kajakróður er tiltölulega nýtt áhuga- mál á íslandi þó það sæki sífellt í sig veðrið enda hafa selst yfir íooo bátar hér á landi. Sífellt fleiri skemmta sér á kajak dægrin löng alla daga ársins enda heilsársíþrótt. Halldór Sveinbjörnsson hefur verið hugfanginn af kajakróðri í tíu ár og er einn af frumkvöðlum þess á íslandi. Keypti bát strax ,Fyrir rúmum tíu árum komu vinir mín- ir úr Ultimate Thule á ísafjörð en þeir voru með kajakleigur hing- að og þangað. Ég keypti mér kynningu í hálf- tíma og keypti síðan bát af þeim þegar ég kom í land. Þetta var svo skemmtilegt. Síðan hef ég róið um nánast öll höf og hef til dæmis róið vest- fjarðahringinn. Ég hef líka róið fimm sinnum fyrir Hornbjarg sem er óörugg- ur staður. Það var erfitt en það er allt hægt að gera á kajak ef þú kannt það.“ Nálægð við náttúruna Á síðasta ári réri Halldór yfir 1300 kíló- metra enda viðurkennir hann fúslega að það sé með því skemmtilegasta sem hann gerir. „Kajakferð er lúxusferð. Þú tekur allt með þér í kajakinn og það er heilmikið pláss enda hefur þurrfæði aldrei verið tekið með í mínar ferðir. í bakpokaferð er göngumaður með 20-30 kílóa poka á bakinu og rogast með þetta en kajakinn verður bara skemmtilegri þótt þú sért með 50-60 kíló í honum. Þetta er rosalega skemmtilegur ferða- máti.“ Þegar Halldór er spurður að því hvað sé svona frábært við kajakróður verður hon- um ekki orða vant. „Eftir að þú hefur farið í eina útileguferð á kajak með tjaldið, steikurnar, svepp- ina og allt það dót, þá ertu bara gjörsamlega háður þessari íþrótt. Nálægðin við náttúruna er svo frábær. Þú ert í nálægð við fugl- ana og fiskana. Ég er til dæmis búinn að grípa 10 fugla með höndunum á kajak. Þeir synda og fljúga svo nálægt manni. Sumir leggja fyrir sig skotveiði á kajak. Ég byrjaði svoleiðis en mér fannst það frekar grimmilegt því fuglinn átti ekki séns.“ Kajakróður er ofsalega góð alhliða hreyfing Kajakróður styrkir hjarta og lungu Halldór talar líka um hollustu kajakróðurs enda segir hann „þú verður sterkur á því að róa. Það kom líka fram í Lifandi vísindum nýlega að sterkir armar halda sjúkdómum í skefjum. Það var gerð rannsókn og kajakræðari er með sterkara hjarta og lungu en aðrir. Kajakróður er því ofsalega góð alhliða hreyfing. Það var til dæmis bakskurðlæknir sem spurði mig hvort hann mætti ekki bara senda sjúklinga til mín í endurhæfingu því þetta er svo góð styrking fyrir bakvöðva og mikil liðkun. Enda verða allir þokkalega liðugir i bakvöðvunum og hryggnum með því að stunda þessa íþrótt." Halldór Halldór Sveinbjörnsson hefur lært að kenna öðrum á kajak og eru námskeiðin hans vel þekkt. „ Ég er með nemendur hvaðanæva af landinu og menn hafa komið erlendis frá til að læra á kajak á ísafirði. Eftir námskeið hjá mér ertu næstum því fullfær um að róa yfir Isafjarðardjúp án aðstoðar.“ En Halldór tekur þó fram að það sé fyrst eftir námskeið sem fólk hefur vit og þekkingu til að velja sér bát. „Námskeið kostar kannski 10-15 þúsund krónur en þú færð það margfalt til baka því þú velur búnaðinn rétt. En byrjunarkostnaðurinn er um 150 þúsund með galla og öllu“ Aldur afstæður í kajakróðri er aldur afstæður. „Elsti maður sem ég hef sett í kajak er sjötugur. Nálægðin við náttúruna er mikil í kaja Ég hef stundað ýmsar íþróttir um ævina og er 48 ára gamall. Á kajak er erfitt að slasa sig og ég hef til dæmis aldrei meitt mig á kajak. Ef þú hefur farið á námskeið og ferð eftir því sem kennarinn segir þér eftir námskeiðið þá áttu ekki að geta slasað þig. Það versta sem getur komið fyrir er að þú blotnar.“ Að endingu segir Halldór að hann sjái sko ekki eftir því að hafa kynnst kajakróðri enda sé það nú hans lífsstill. ■ svanhvit@vbl.is Línuskautar Skemmtileg og holl hreyfing Á gönguferðum um Laugardalinn má sjá fjölda fólks þjótandi um á línuskaut- um, hvert á fætur öðru, marglituð og hröð. Línuskautar urðu vinsælir fyrir nokkrum árum og vinsældir þeirra virð- ast ekkert dvína enda skemmtileg íþrótt að sögn kunnugra. Á skautum alla daga Helgi Páll Þórisson hefur stundað línu- skautaíþróttina frá 1991 eða frá því á síðustu öld eins og hann segir sjálf- ur. „Þetta var tiltölulega nýkomið til Islands og fór þá að aukast eitthvað af viti. Ég hef líka æft íshokkí síðan 1991 svo þetta lá beint við. Ég er að meðaltali þrjá klukkutíma á dag á línuskautum, alla daga vikunnar. Ég fer ekki mikið á skautana utan kennslunnar enda þarf maður að sinna ýmsu öðru en þessu starfi," bætir Helgi Páll við og hlær. ,Ég fer lítið á línuskauta þess utan enda þrír tímar á dag al- veg nóg finnst mér.“ Stinnur kúlurass Helgi Páll og félagi hans hafa haldið úti síðunni www.linuskautar.is síðan 2001 auk þess að kenna á línuskauta og sjá um viðburði tengda línuskautum. ,Ég hef þjálfað hokkí og skauta í sjö ár. Aukningin á námskeiðin hjá okkur hafa næstum tvöfaldast milli ára enda erum við að kenna á bilinu 700-800 manns á sumrin. „Þegar Helgi er spurður að því hvað sé svona heillandi við línuskauta segir hann að þetta sé skemmtilegra en að hlaupa auk þess að vera holl og góð hreyfing. Enda viðurkennir Helgi hlæj- andi að hann sé með flotta lærvöðva og stinnan kúlurass. Ódýrt áhugamál Helgi segir að línuskautahlaup sé ekki dýrt áhugamál, að minnsta kosti ekki miðað við mörg önnur. „Ef þú kaupir sæmilega góða skauta, hlífar og hjálm þá er byrjunarkostnaðurinn fimmtán til tuttugu þúsund. Skautarnir sem ég er á í dag kostuðu þrjátíu og átta þúsund, en ég skipti um skauta á tveggja ára fresti. Það segir sig sjálft, þegar þú ert kominn á þetta stig í íþróttinni þá eru kröfurn- ar aðrar. Svo eru ódýrari skautar ekki eins vandað- ir, ekki jafnvel bólstraðir né eins vel gerðir. Þetta þurfa að vera þægileg- ir skautar, sérstaklega fyrir mig sem er oft á skautunum. Ég má ekki við því að þetta klikki þegar ég þarf á þessu að halda. „Helgi segir að það sé mjög svipað að vera á íshokkískautum og línuskautum og tæknin sé sú sama. Þó séu línuskautarnir frjálsari. „Mað- ur getur rennt sér út um allt og er ekki bundinn við einn ákveðinn stað eins og þegar maður spilar íshokkí." Nokkrar vikur að ná góðri færni Fyrir byrjendur á línuskautum segir Helgi er mun betra að fá leiðsögn áður en skundað er af stað, annars gæti það endað með ósköpum. „Á námskeiðun- um hjá okkur er 80% þátttakenda konur á aldrinum 23-40 ára. Námskeiðið stend- ur yfir eitt kvöld og kostar 1500 krónur á einstakling, miðað við 15 manna hóp.“ Helgi talar um að flestir séu um 3-4 vikur að ná tiltölulega góðri færni ef það skaut- ar 2-3 sinnum í viku, eftir leiðsögn. Svo sé best að velja skauta á bilinu 13-15 þús- und, ekki velja skauta mikið undir því verði. Þá ertu kominn með skauta með góðum dekkjum og skórinn erþokkaleg- ur. Það er það sem skiptir máli. Helgi talar með mikilli ákefð og greinilegt að línuskautar eru hans helsta áhugamál enda segir hann, „ætli ég drepist bara ekki á skautum, hvort sem það er línu eða hokkí. Ég ætla að skauta þangað til ég get það ekki lengur. Þetta er alltaf jafn gaman. Menn finna sér íþrótt sem þeim líkar við og eru bara í henni.“ ■ svanhvit@vbl.is WmmiijsÍÐ Útsala á sumarleikföngum og ýmsum völdum vörum Tómstundahúsið Nethyl 2, sími 5870600, www.tomstundahusid.is 99.......... Skemmtilegra en að hlaupa

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.