blaðið - 18.07.2005, Blaðsíða 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 2005 blaöiö
augnáblikinu
iimftrmfn
Dreifingarsvceði Blaðsins stækkar
Árborg og Reykjanesbær bæt
ast í hóp þeirra sem fá Blaðið
Þyrla og
varðskip
finna þrjá
laxa
Frá og með deginum í dag geta íbúar
Reykjanesbæjar, Selfoss og Hveragerðis
nálgast Blaðið á völdum stöðum í við-
komandi bæjarfélögum. Þetta er fyrsta
skrefið í aukinni dreifingu á Blaðinu út
fyrir höfuðborgarsvæðið, en stefnt er
að dreifingu á flestum stærstu þéttbýl-
isstöðum landsins á næstu mánuðum.
í þessum áfanga verður Blaðinu dreift
í helstu stofnanir, verslanir og bensín-
stöðvar í viðkomandi sveitarfélögum og
geta íbúar þeirra og aðrir sem eiga leið
um nálgast það á þeim stöðum. Um er
að ræða dreifingu á 2-3000 eintökum á
degi hverjum. „Mikið hefur verið spurt
um Blaðið á þessum og öðrum stöðum í
kringum landið og munum við því bæði
auka og þétta dreifinguna á næstu mán-
uðum,“ að sögn Karls Garðarssonar rit-
stjóra. „Við erum stolt af þeim árangri
sem við höfum náð á fyrstu mánuðum
útgáfunnar og könnun Gallup staðfestir
að við erum á réttri leið. Við settum okk-
ur ákveðin markmið í upphafi og þau
hafa öll náðst og gott betur.“
fbúar Reykjanesbæjar, Selfoss og
Hveragerðis eru boðnir velkomnir í
hóp lesenda Blaðsins. Stærri fyrirtæki
á þessum stöðum, sem fá Blaðið ekki
sent til sín í dag, en hafa áhuga á því, er
velkomið að hafa samband við Blaðið í
síma 510-3700 og er reynt að verða við
sem flestum óskum.
Verðbréfasalar varkárir
deCode hækkar mikið
Tvö laxanet fundust viö eftirlit Land-
helgisgæslunnar
Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunn-
ar, TF-SIF, aðstoðaði lögregluna á
fsafirði við laxaeftirlit á dögun-
um. Flogið var um Hornstrandir
og leitað að ólöglegum netum.
Tvö fúndust og voru þau gerð
upptæk ásamt afla. í netunum
voru samtals þrír laxar. Áhöfn
varðskipsins Óðins kom til aðstoð-
ar þegar netin voru tekin upp.
Gengi hlutabréfa í deCode Genetics,
móðurfyrirtæki íslenskrar erfðagrein-
ingar hefur tvöfaldast á skömmum
tíma og hækkaði enn á föstudag. Hækk-
unin nam 3,75% og er gengi bréfanna
nú 9,75. Þetta er langt frá því gengi sem
margir keyptu bréfin á um aldamótin
þegar gengið fór í rúma 60 dollara á
hlut á gráa markaðnum hér heima. Er-
lend verðbréfafyrirtæki hafa mælt með
kaupum á bréfum deCode, en innlendir
verðbréfasalar sem Blaðið talaði við í
gær eru varkárari í yfirlýsingum sínum
þessa dagana. Þeir segja að mikil óvissa
sé um fyrirtækið og benda á að flökt sé
á gengi þess. Þannig má benda á að hlut-
urinn seldist á aðeins 1,60 dollara í lok
september 2002. f febrúar árið 2004 var
hann hins vegar kominn í 13,20 dollara
á Nasdaq. Gengið nú er í hærri kantin-
um, ef litið er á þann tíma sem liðinn er
síðan að bréfln voru skráð í Bandaríkj-
unum. Oftast hefur það verið skráð á 5-7
Bistro garðhúsgagnasetl Borð og tveir stólar kr. 12.900,- Oxford garðhúsgagnasett Borð og fjórir stólar kr. 18.900,-
WindsorgarðhúsgagnosetLBorðogsexstólarkr.59.900,- Londongarðhósgagnasett.Borðogfjórirstólarkr. 118.900-
dollara, nokkrum sinnum farið upp fyr- þar hafa verið gerðar nokkrar uppgötv-
irhærritölunaenjafnhraðanlækkað aft- anir sem auka mönnum bjartsýni.
ur. Menn binda hins vegar miklar vonir
við að við lyfjaþróun fyrirtækisins, en
Stelpur skulu
sigra RÚV
Stöð 2 hefur lagt í stórvirki sem virðist
eiga að grafa undan þeirri hálfgerðu
einokun sem Ríkisútvarpið hefur haft í
stofum landsmanna á laugardagskvöld-
um að veturlagi. Hafnar eru
tökur á Stelpunum sem að
sögn Óskars Jónassonar
leikstjóra verða á dagskrá
Stöðvar 2 á laugardagskvöld-
um um níu leitið næsta
haust en það er einmitt sá
handritin, framleiðsla er í höndum eins
stærsta fyrirtækisins á því sviði hérlend-
is og leikstjórn er í höndum mannsins
sem endurlífgaði áramótaskaupið,
Skara Skrípó.
J J ........
Spaugstofan
hefur hrapað
í áhorfi
Óútreiknanlegt grín
Óskar Jónasson leik-
stjóri segir að Spaugstofan
og Stelpurnar séu í raun
ekki sambærilegir þættir.
tími sem Spaugstofan hefur „Spaugstofan er með öðru
hingað til „átt“.
Öllu verður tjaldað
Stjórnendur á Lynghálsinum hafa lengi
litið Spaugstofuna hornauga og leitað
leiða til að velta henni úr sessi sem vin-
sælasta sjónvarpsefni á Islandi. Nú lítur
hins vegar út fyrir að Páll Magnússon,
sjónvarpsstjóri Stöðvar 2, sé búinn að
fá nóg og ætli Stelpunum það hlutverk.
Öllu verður til tjaldað, nokkrar þekkt-
ustu leikkonur landsins fara með aðal-
hlutverk, um tíu manns sjá um að skrifa
sniði, hún er fréttatengd og
skotin jafnóðum meðan við
förum ekki inn á þá deild, heldur verð-
um meira með óútreiknanlegt grín um
hið daglega líf.“
Vinsældir Spaugstofunnar hafa dal-
að töluvert undanfarin ár og er nú svo
komið að í síðustu Gallupkönnun mæld-
ist rétt rúmlega 45% áhorf miðað við
tæp 70% tveimur árum áður. Helst má
marka fækkun hjá áhorfendum á aldrin-
um 12 - 30 ára en áhorf í þeim flokki
hefur hrapað úr u.þ.b. 50% í tæp 20%.
Líkamsárás
fyrir vestan
Ungur karlmaður var fluttur
meðvitundarlaus á sjúkrahúsið á
ísafirði í fyrrinótt, eftir að tveir
menn höfðu ráðist á hann með
hnefahöggum og spörkum. Að
sögn lögreglunnar á Isafirði voru
árásarmennirnir á þrítugsaldri,
en þeir voru handteknir og gistu
fangageymslu um nóttina. Ástæða
árásarinnar er ókunn.
Mikill erill var hjá lögreglunni á
Isafirði í fyrrinótt og gistu alls fjór-
ir fangageymslur um nóttina.
Ölvaður maður stal bíl
í fyrrinótt handtók lögreglan í Bol-
ungarvík ungan karlmann sem ók
stolnum fólksbíl á staur á Djúpa-
vegi við brúna yfir Ósá, skammt
frá Bolungarvík. Maðurinn var
ölvaður þegar atvikið átti sér stað
og gisti hann fangageymslur um
nóttina. Mikið mildi þykir að
hann hafi ekki slasast við atvikið,
en hann hafði ekki spennt bílbelti
þegar lagt var í ferðalagið.
Bílvelta við Kópavogslæk
Á þriðja tug ökumanna voru teknir
fyrir of hraðan akstur í umdæmi
lögreglunnar í Kópavogi frá laugar-
dagsmorgni þar til seinnipartinn í
gær. Sá sem hraðast ók var tekinn
á 150 km. hraða þar sem hámarks-
hraði er 90. Þá missti ökumaður
stjórn á bíl sínum um miðnætti
á laugardag með þeim afleiðing-
um að bíll hans valt. Engin slys
urðu á fólki en bíllinn er mikið
skemmdur. Lögreglan í Kópavogi
vill hvetja ökumenn til að virða
reglur um hámarkshraða, sem og
að spenna beltin.
Ökumenn nyrðra farn-
ir að hægja á sér
Nokkur erill var hjá Lögreglunni
á Akureyri um helgina. Seinnipart-
inn í gær höfðu 13 verið teknir í um-
dæminu fyrir of hraðan akstur yf-
ir helgina. Að sögn lögreglumanns
á vakt verða þeir á svæðinu þó var-
ir við að ökuhraði hefur minnkað
nokkuð, og er það rakið til átaks
gegn hraðakstri sem stendur yfir
um þessar mundir.
Tvö umferðaróhöpp
og eitt innbrot
Á laugardagsmorgun fór öryggis-
kerfi í gang í Lindinni við Leirár-
veg á Akurey ri. Þegar lögregla kom
á staðinn voru þar tveir innbrots-
þjófar við iðju sína, sem voru hand-
teknir á staðnum. Þeir voru látnir
sofa úr sér í fangageymslu, en var
sleppt að lokinni yfirheyrslu í gær.
Tvö umferðaróhöpp urðu
nyrðra um helgina. Annarsvegar
var útafakstur á Ólafsfjarðarvegi
við Hörgárbrú en hinsvegar missti
bílstjóri stjórn á bifreið sinni á Ak-
ureyri, keyrði upp á umferðareyju,
á skilti sem þar stóð og endaði á
röngum vegarhelmingi. Meiðsl
ökumanna voru minniháttar í
þessum óhöppum.
HÁDEGISVERDARTILBOÐ 690
Blandið saman allt að 3 réttum úr hitaborði
30 % AFSLÁTTUR AF HEILUM SKAMMTI í HITABORÐINU
Sóltún 3 Bæjarlind 14-16
S 562 9060 S 564 6111
*** • fH
Æk s;