blaðið - 18.07.2005, Page 14
blaðiö
• m.
Útgáfufélag:
Stjórnarformaður:
Ritstjóri:
Ár og dagurehf.
SigurðurG.Guðjónsson.
Karl Garðarsson.
UTVARPSSTJORI I VANDA
Senn dregur til tíðinda. Tilkynnt verður hverjir hafa sótt um stöðu út-
varpsstjóra og í kjölfarið mun hefjast hefðbundin umræða um kosti
og galla þeirra sem hafa sótt um. Markús Örn hverfur á brott eftir
að hafa verið úthrópaður í fréttastjóramálinu svokallaða i vetur þar sem
pólitík hafði betur í baráttunni við heilbrigða skynsemi þegar kom að vali
á nýjum fréttastjóra hljóðvarps.
Margvísleg vandamál bíða nýs útvarpsstjóra - ekki bara sem varða
hlutverk RÚV, heldur einnig rekstur. Dæmin eru fjölmörg og hér skal að-
eins tæpt á tveimur sem snerta fréttir.
RÚV rekur tvær fréttastofur undir sama þaki, með tveimur fréttastjór-
um. Á milli þessara fréttastofa eru aðeins skilrúm. Samkeppni ríkir milli
þessara fréttastofa, að minnsta kosti í orði, og mæta þvi yfirleitt tveir frétta-
menn frá RÚV á alla blaðamannafundi - annar frá hljóðvarpi og hinn frá
sjónvarpi. Þeir vinna því tvær fréttir um sama mál og flytja þær í sínum
miðlum. Á milli þessara manna eru i besta falli nokkrir metrar á frétta-
stofum RÚV. Oft hefur verið talað um sameiningu fréttastofa RÚV - enn
gerist ekkert.
Annað lítið dæmi eru iþróttalýsingar frá útlöndum. Það dugar ekkert
minna en að senda tvo eða fleiri íþróttafréttamenn frá RÚV á viðburði
erlendis. Það er síðan hægt að hlusta á annan þeirra í útvarpi og hinn í
sjónvarpi. Lýsingarnar eru keimlíkar. Af hverju er ekki sparað og sendur
einn íþróttafréttamaður?
Þessi litlu dæmi lýsa stjórnunarlegu vandamáli hjá RÚV. Þau segja okkur
að yfirmenn eru ekki tilbúnir að taka á þeim rekstrarlegu vandamálum
sem þarf að taka á til að ná fram hagræðingu. Kannski er vandamálið líka
hjá starfsmönnum. Þeir eru góðu vanir. Fréttastjóramálið í vetur sýndi
fram á að þeir vilja stjórna RÚV sjálfir - ef þeir fá ekki sínu framgengt eru
þeir tilbúnir til að ganga mjög langt - jafnvel að misnota eigin miðil til að
fá sínu fram.
Það er alla vega ljóst að nýr útvarpsstjóri þarf að glíma við margvísleg
vandamál. Það er því afar mikilvægt að til starfans veljist maður sem
stenst þá prófraun. Það er nauðsynlegt að pólitíkin víki til hliðar þegar
farið er í gegnum umsóknir - ef einhverjar eru.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur.
Aöalsími: 510 3700. Símbréf á f réttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýs ingadeild: 5103711.
Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is.
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: Islandspóstur.
14 I ÁLIT
MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 2005 blaöió
Stjórnsýslan föl?
Síðasti áratugur hefur verið
markaður viðskiptalífinu. í
sífellt meira mæli hefur allt
snúist um frelsi til athafna
á því sviði til að þjóna
gróðasjónarmiðinu. Það var
full þörf á því að breytingar
yrðu og þær hafa að mörgu leyti
ekki á sér standa. Forstjóri
Samherja krafðist þess
að fá að vinna í friði fyrir
stjórnmálamönnunum. Sem
sé, þetta er hans mál og
stjórnmálamenn eiga ekki að
„ . .. skipta sér af þvi, hvort hann
Kristinn H. ‘ \ , , .
Gunnarsson er að flyÚa kvótann ur hverju
skilaðgóðumárangriogstuðlað ................. plássinu á fætur öðru, fólkið
að framförum í þjóðfélaginu.
En í þessu sem öðru virðist vandratað
meðalhófið. Hið fornfræga KEA,
löngum flaggskip samvinnufélaganna
á fslandi, er nú í viðræðum við a.m.k.
tvo ráðherra, sjávarútvegsráðherra
og iðnaðarráðherra, og býðst til
þess að borga peninga fyrir „réttar
stjórnsýsluákvarðanir".
Er svo komið að menn
úr viðskiptalífinu telja
að stjórnsýslan sé eins
og hvert annað svið
viðskiptalífsins og að það
sé hægt að kaupa það? Já,
svo virðist vera, því miður.
Það fer, að mínu mati, að
verða ansi þunn línan á
milli þess sem KEA er að
gera núna og þess að stíga
skrefið til fulls og bera
hreinlega fé á menn.
sem verður fyrir barðinu á því
getur bara étið það sem úti frýs. Þetta
er línan frá einum helsta ráðamanni
greinarinnar. Það er svo önnur saga
að hann fékk á sínum tíma meira gefið
frá stjórnmálamönnunum en nokkur
annar.
99............
Og þeirsem
ekki eiga
peninga fá þá
líklega engin
störftilsín
eða hvaðÁrni
Mathiesen?
Afleiðing auðhyggjunnar
Þetta á sér forsögu sem hefur leitt
menn skref fyrir skref á þessari braut.
Með framsalinu í sjávarútvegi var
forsvarsmönnum fyrirtækjanna falið
að ráða byggðaþróun sem snertir tugi
þúsunda einstaklinga. Hagsmunir
forsvarsmanna fyrirtækjanna voru
ákvarðaðir mikilvægari en fólksins.
Á sjómannadaginn flutti ég ræðu á
Patreksfirði og talaði fyrir breytingum
í þágu þeirra sem eiga starf sitt og
heimili undir atvinnugreininni og
búa við auðlindina. Viðbrögðin létu
Okkarer mátturinn...
Framámönnum í
viðskiptalífinu er hampað
daglega í fjölmiðlum
landsins og endalausar
fréttir af gengi hlutabréfa
og kaupum á þessu og
hinu félaginu, yfirtöku,
sameiningu, afskráningu,
gróðaupp ámilljarðakróna.
Þetta eru aflaskipstjórar
viðskiptaþjóðfélagsins.
Ekkert má verða í vegi
þeirra, þá er þjóðfélagið
að tapa og fyrir vikið verða óljós öll
skil á milli þess eðlilega og óeðlilega.
Athafnarými viðskiptamannanna
hefur jafnt og þétt aukist og áður en
menn vita af eru viðskiptamógúlarnir
farnir að tala eins og þeir séu komnir
' með umboð stjórnmálamannanna
í sínar hendur. Þorsteinn Már telur
Iöggjöf um sjávarútveg sitt mál en ekki
stjórnmálamannanna, forsvarsmenn
KEA tala um vegalagningu um hálendið
eða jarðgöng rétt eins og það sé í þeirra
höndum að ákvarða það. Þeir eru nú
hættir við veg um Stórasand af því það
var ekki nógu góð hugmynd en þá fara
þeir í staðinn um Kjöl. Umferðin á að
borga með sérstöku gjaldi. Svo verða
gerð göng í gegnum Vaðlaheiði og ríkið
á að fella niður skatt og borga svolítið.
í þessu eins og sjávarútveginum eiga
stjórnmálamennirnir ekki að vera að
flækjast fyrir heldur gera eins og þeim
er sagt.
Keypt byggðastefna
Enn ganga menn í viðskiptalífinu lengra
í því að færa sig inn á svið stjórnmálanna
eða kannski á að segja að þeir víkki út
svið viðskiptalífsins og dragi saman
viðfangsefni stjórnmálanna þegar sett
eru fram formleg tilboð til einstakra
ráðherra um kaup á opinberum störfum.
I fjölmiðlum hefur að undanförnu mátt
fylgjast með fréttum af viðræðum
forsvarsmanna KEA við iðnaðarráð-
herra og sjávarútvegsráðherra um
flutning opinberra starfa norður til
Akureyrar. Stjórn KEA býður ríkinu
greiðslur fyrir ómakið og er tilbúið að
leggja fram hundruð milljóna króna til
þess að greiða kostnaðinn við flutning
starfanna norður. Sjávarútvegsráðherra
er fjöðrum feginn og segir í
Fréttablaðinu á föstudaginn var að vilji
KEA til þess að koma að fjármögnun á
flutningi verkefna sé mjög jákvæður og
að slíkt liðki til fyrir flutningi verkefna.
Ég trúði ekki mínum eigin augum þegar
ég las þetta. Er sjávarútvegsráðherrann
kominn svo af leið að hann telji
eðlilegt að einkafyrirtæki geti borið
fé á stjórnvöld í því skyni að fá þau til
að taka tiltekna stjórnsýsluákvörðun?
Hvar er verðlistinn? Hefur ríkisstjórnin
ákveðið hann? Hvað kostar Hagstofan
eða Námsgagnastofnun? Og þeir
sem ekki eiga peninga fá þá líklega
engin störf til sfn eða hvað Árni
Mathiesen? Verður starfræktur
uppboðsmarkaður opinberrar þjónustu
og fá hæstbjóðendur eða verða bara
handvaldir góðir viðskiptavinir sem fá
að gramsa í dótakassanum og velja sér
bestu leikföngin?
Háskóli Akureyrar suður?
Ég er ekki að gera athugasemd við þá
viðleitni KEA að styrkja atvinnulíf á
félagssvæði sínu, ég skil það mætavel,
en þeir eiga að halda sig við atvinnulífið
og fyrirtæki þar. Þau ganga kaupum og
sölum og eru flutt til og frá. Öðru máli
gegnir um opinbera stjórnsýslu, hún á
ekki að vera til sölu. Hvað ætlar KEA að
gera ef eigendur Háskólans í Reykjavík
ákveða að kaupa Háskólann á Akureyri
og flytja hann suður og sameina
skólana þar? Það gæti verið næsti
leikur í þessari skák og efast einhver
um góðan hug menntamálaráðherra til
Háskólans í Reykjavík? Má ég minna
á að sá skóli er ekki í neinu fjársvelti
en Akureyrarskólinn er kominn í
spennitreyju.
Stefna ríkisstjórnarinnar?
Þegar þessi umræða kom upp
síðastliðið vor tók ég málið upp á
fundi þingflokks framsóknarmanna
og spurði forsætisráðherrann um
stefnu ríkisstjórnarinnar og hvort
það væri virkilega svo að hægt væri
að kaupa byggðastefnuna. 1 ljósi svara
forsætisráðherra þá vekja ummæli
og undirtektir sjávarútvegsráðherra
furðu mína og tel ég nauðsynlegt
að forsætisráðherra geri sem fyrst
opinberlega grein fyrir afstöðu
ríkisstjórnarinnar til þessara mála. ■
Ryðfrítt alvöru gasgrill - engar afsakanir!
Nánari upplýsingar í síma 5111001
Skúlagötu 63 -105 Reykjavík
Stökustund
Við byrjum á aðsendum botnum við
fyrriparta síðustu viku.
ÓÞ sendir þennan botn:
Framsóknar er flokkur smár
fylgið varla mcelist.
Er hér kannski einhver skár
sem eftir völdum sœlist?
Finnur Sturluson botnar:
Framsóknar er flokkur smár
fylgið varla mcelist.
Hjá SF eifalla trega tár
en tröllslegur hlátur bœlist.
ÓÞ botnar svo úr verður hringhent
stikluvik:
Veðrið stundar Ijúfan leik
lifnar grundin frjóa.
Grœnka lundir laufgast eik
lífsins undurfer á kreik.
Finnur botnar svo:
Veðrið stundar Ijúfan leik
lifnar grundinfrjóa.
Er kölski gamlifer á kreik
þá kannski fer að snjóa
Fyrripart Kristins H. Gunnarssonar
botnar ÓÞ:
Gróðapungar ganga’um enn
grœðgin hungur vekur.
Þessa ungu metorðsmenn
Mammon slunginn skekur.
í umsjótt Péturs Stefánssonar
Pétur yrkir um lyginn blaðamann:
Hér ognú er helst sem yljar
— háðugt skeyti,
blaðasnápur glaður giljar
Gróu’á Leiti.
Um R-listann og íhaldið:
Reykjavíkurlistans lið
leynimakkast bak við tjöldin.
Er ekki best að íhaldið
afturfái borgarvöldin?
Uppgangur Baugs
Baugur Group er öflugt afl
sem öfund vekur.
Ævin þar er auratafl
sem enda tekur.
Fyrripartar:
Vinstri grœnir þrasa’á þingi
þráfaldlega’um slœma tíð.
Bjart eryfir bændastétt
baula kýr í haga.
Botnar vísur ogfyrripartar sendist til
stokustund@vbl.is