blaðið - 18.07.2005, Qupperneq 29
blaðiö MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 2005
DAGSKRÁ I 29
■ Fjölmiðlar
Þegar markaðsdeildin bilast
Einu sinni vann ég á fjölmiðli þar sem
markaðsstjórinn hafði áhuga á því að
breyta nafni miðilsins í þriggja stafa
nafn af því að allar frægustu fréttastof-
urnar væru með þriggja stafa nöfn: ABC,
BBC, NBC, CNN, Sky, Fox... og blablabla.
Það var, minnir mig, á þessari stundu,
sem ég komst að því að markaðsstjórar
væru frá annarri stjörnuþoku.
Þeir eru yfirleitt ágætt fólk en þeim
hættir mörgum til þess að gleyma þeirri
staðreynd að á Islandi búa aðeins um
300.000 manns en ekki 300 milljónir.
Það sem er borðleggjandi í Kaliforníu er
ekki gefið í Keflavík.
Um þetta fór ég að hugsa þegar ég
frétti að nýjasta ráðagerð míns gamla
vinar og viðskiptafélaga, Gunnars
Smára Egilssonar framkvæmdastjóra
hjá 365 miðlum, væri að setja á laggirnar
fréttastöð, sem sjónvarpa skal fréttum
yfir landslýð daginn út og daginn inn.
Svei mér, ef þetta er ekki versta við-
skiptahugmynd, sem ég hef heyrt. Nú
hef ég lítið unnið í sjónvarpi, en mér
hefur ávallt skilist að dýrasta dagskrár-
efnið þar séu fréttir. Á hinn bóginn er
langur vegur frá því að auglýsingasala
kringum fréttir hrökkvi fyrir tilkostn-
aði.
Nú segja innanbúðarmenn í 365 miðl-
um mér reyndar að á Fréttastöðinni eigi
að nota nýjustu tækni til þess að spara
og síðan eigi að margnýta starfsfólkið
með því að breyta 250.000 króna blaða-
mönnum prentmiðla 365 í sjónvarps-
fréttaklippara í hjáverkum. Það verður
athyglisvert.
En hvaða fréttir á að segja á Frétta-
stöðinni? Lesendur þessara orða þekkja
það sjálfsagt vel að alþjóðlegar frétta-
stöðvar á borð við Sky og CNN hafa
engan veginn úr of mörgum fréttum að
moða flesta daga. Hvað má þá segja um
fréttastöð í litlu landi þar sem lítið ger-
ist? Þessa dagana eru fjölmiðlar uppfull-
ir af tímamótafréttum eins og þeim að
búið sé að taka upp kartöflur í Þykkva-
bænum. Myndi Fréttastöðin senda töku-
teymi þangað og boða siðan helstu kart-
öflusérfræðinga landsins í umræðuþátt
um málið? Rjúfa svo útsendingu til þess
að greina frá því að seinkun sé á leið 62 í
Kópavogi? Æ, ég held það verði eitthvað
skrýtið.
En segjum sem svo að hvorugt sé
vandamál: útgjöldin né fréttaeklan.
Gnægð verði af fréttaefni, sem kosti
nánast ekkert í framleiðslu. En hver í
ósköpunum á að horfa? Það hefur áður
verið reynt að sjónvarpa hádegisfrétt-
um og síðdegisfréttum, en áhorfendurn-
ir reyndust samtals 22 að gæludýrum
meðtöldum. Þegar við bætist að áhorf á
kvöldfréttir hefur dalað verulega hjá 365
miðlum, dregur maður mjög í efa að bet-
ur gangi hjá Fréttastöðinni. Það er rétt
að hafa í huga að flestir nota sjónvarp
sér til afþreyingar, til þess að flýja hvers-
dagsleikann í smástund. Er eitthvað
sem bendir til þess að þeir vilji fá meira
af ísköldum raunveruleikanum? Og það
allan daginn? Alltaf?
Ég er afar vantrúaður á þessa hug-
mynd og skil raunar ekki markmiðið
með því að setja slíka stöð á laggirnar,
nema sérstök ástæða hafl þótt til þess
að minnka framleiðni blaðamanna DV
og Fréttablaðsins. Markmiðið er a.m.k.
ekki það að hámarka arð eigenda fyrir-
tækisins. Sem hlýtur að teljast einkenni-
legt í ljósi þess að hér ræðir um dóttur-
fyrirtæki almenningshlutafélags, sem
skráð er á markaði.
Einn kunningi minn hjá 365 sagðist
reyndar halda að markmiðið gæti
aðeins verið það að setja sjoppuna á
hausinn á methraða. Það held ég nú
ekki, en mér sýnist að það hafi eitthvað
— eða einhver — bilað í þessari nýjustu
markaðssókn 365 miðla.
Andrés Magnússon
21.00-23.00 23.00-00.00 00.00-6.00
21.15 Lögreglustjórinn (The District III) Sakamálasyrpa um Jack Mannion, hlnn skelegga lögreglustjóra ÍWashington, sem stendur (ströngu (baráttu viö glæpalýð og við umbætur innan lögreglunnar. Aðalhlutverk leika Craig T. Nelson, John Amos, Jayne Brook og JustinTheroux. 22.00 Tiufréttir 22.25 Lffsháski (16:25) (Lost) 23.10 Út og suður (12:12) Gísli Einarsson flakkar vitt og breitt um landið og bregður upp svipmyndum af áhuga- verðu fólki. e. 23.35 Kastljósið Endursýndur þáttur frá því fyrr um kvöld- ið. 23.55 Dagskrárlok
21.10 The Guardian (18:22) (Vinurlitlamannsins3) 21.55 Filthy Homes From Hell (Subbubæli dauðans) Breskur þáttur þar sem sjónvarpsáhorfendum er boðið í heimsókn á nokkur þeirra allra sóðaleg- ustu heimila sem fyrlrfinnast. 22.40 American Pimp (Melludólgar) 00.05 Shield (11:13) (Sérsveitin 4) The Shield gerist í Los Angeles og fjallar um sveit lögreglumanna sem virðast hafa nokkuð frjálsar hendur. Aðalhlutverk leika Glenn Close og Michael Chiklis en hann fékk bæði Golden Globe og Emmy-verðlaun sem besti leikari í dramahlut- verki. Stranglega bönnuð börnum. 00.50 Eyes (1:13) (A gráu svæöl) 01.35 A Hard Day’s Night (Bítlaæðið) 03.00 Fréttir og Island f dag Fréttir og Island I dag endursýnt frá þvl fyrr i kvöld. 04.20 Islandíbítið Fjölbreyttur fréttatengdur dægurmálaþáttur þar sem fjallað er um það sem er efst á baugi hverju sinni (landinu. 06.00 Tóniistarmyndbönd frá PoppTiVí
21.00 TheContender 22.00 Dead Like Me Við rifjum upp kynnin af George og félögum hennar sálnasöfnurunum sem hafa það að að- alstarfi að aðstoða fólk við vistaskiptin úr heimi hinna lifenda i heim hinna dauðu. 22.45 Jay Leno 23.30 Da Vinci's Inquest (e) Vandaðir sakamálaþættir um réttarannsókn- ardeild í Vancouver, Kanada, sem unnið hafa til fjölda verðlauna.Þættirnir byggja á lifi Larry Campell, metnaðarfullsog vandvírksdánardóms- stjóra (Vancouver sem 1 starfi sínu lagði einlæga áherslu á að gera borgina sína að betri stað til að búa á en þættirnir gerast einmitt (Vancouver. 00.15 Cheers - 4. þáttaröð (e) 00.40 Boston Public 01.20 Hack 02.05 Óstöðvandi tóniist
21.00 American Dad (4:13) (Francine's Flash- back) 21.30 isienski listinn 22.00 Kvöldþátturinn 22.45 David Letterman Góðir gestlr koma i heimsókn og Paul Shaffer er á slnum stað. 23.30 The Newlyweds (7:30) (Newlyweds Decorate) (þessum þáttum er fylgst með poppsöng konunni Jessicu Simpson og eiginmanni hennar Nick Lachey. 23.55 The Newlyweds (8:30) (Video Shoot) 00.20 Friends (16:24) (Vinir) (THEONE WITH THE 2 PARTS (P.1)) 00.45 Kvöldþátturinn 01.30 Seinfeld 2(11:13) (Heart Attack)
21.25 Playmakers (3:11) (NFL-liðið) 22.10 Landsbankamörkin 22.30 Bestu bikarmörkin (England’s Greatest Goals) 23.45 Alfukeppnin 2005 Útsending frá leik i Álfukeppninni sem haldin var 1 Þýskalandi i slðasta mánuði. Þátttökuþjóöir voru Þýskaland, Ástralía, Argentína og Túnis ( A-riöli og Brasilla, Grikkland, Japan og Mexikó í B-riöli.
22.00 Unlawful Entry (Friðhelgin rofin) Þriggja stjörnu spennumynd. Aðalhlutverk: Kurt Russell, Ray Liotta, Madeline Stowe. Leikstjóri, Jonathan Kaplan. 1992. Stranglega bönnuð börnum. 00.00 Proximlty (Innikróaður) Spennumynd. William Conroy afplánar dóm fyrir manndráp af gáleysl. (fangelsinu kemst hann á snoðir um áform fangavarða sem þegar eru ábyrgir fyrir mörgum ódæðisverkum í tukthús- inu. Conroy óttast aö verða næsta fórnarlamb þeirra og leggur allt 1 sölurnar til að komast undan. Aðalhlutverk: Rob Lowe, Jonathan Banks, Kelly Rowan. Leikstjóri, Scott Ziehl. 2001. Strang- lega bönnuð börnum. 02.00 Pilgrim (Vegferð) Aðalhlutverk: Ray Liotta, Gloria Reuben, Armin Mueller-Stahl. Leikstjóri, Harley Cokeliss. 1999. Stranglega bönnuð börnum. 04.00 Unlawful Entry (Friðhelgin rofin) Aðalhlutverk: Kurt Russell, Ray Liotta, Madeline Stowe.Leikstjóri.Jonathan Kaplan. 1992.Strang- lega bönnuð bömum.
Allt í drasli
úti á landi
1 haust mun ný þáttaröð af Allt í drasli
þáttunum fara af stað á Skjá 1 þar sem
Margrét Sigfúsdóttir og Heiðar Jónsson
munu segja skít og drasli stríð á hendur.
Síðastliðinn vetur sýndu þau skötuhjú
ótrúleg tilþrif við hreingerningarnar
og gáfu landsmönnum fjölda heilræða
hvernig best væri að bera sig að við til-
tektina. Að þessu sinni verður einnig
tekið til hendinni á landsbyggðinni.
Maríanna Friðjónsdóttir er yflrmaður
innlendrar dagskrárgerðar hjá Saga
Film sem framleiðir þættina og hún seg-
ir eftirspurnina vera gríðarlega. „Það
gekk ótrúlega vel að fá fólk i síðustu
þáttaröð. Við vorum með fólk á biðlista
fyrir næstu seríu, sem er að byrja núna
og við fáum að sjá það fólk fyrst. Svo eru
komin nokkur heimili utan af landi en
við viljum mjög gjarnan fá fleiri heimili
þaðan svo við höfum úr virkilega góðu
að velja."
Kunnum ekki að taka til
Maríanna sagði að allir þátttakendur
hafi verið virkilega einlægir í þessari
þörf að fá hjálp við að skipuleggja sig
upp á nýtt, enda eru ótrúlega margir
sem hafa misst stjórn á þessu sviði lífs
síns. „Þættirnir fjalla ekki um fólk sem
er veikt á neinn hátt. Það eru ótrúlega
margir sem hafa misst stjórn á þessu
því fólk er upptekið í öllu mögulegu
öðru. Auk þess erum við í dag með heila
kynslóð fólks sem hefur ekki lært að
taka til, vegna þess að lífsmynstrið hef-
ur breyst.“ t næstu þáttaröð verður lögð
sérstök áhersla á heimili út á landi og
áhugasamir geta sent tölvupóst á allti-
drasli@sagafilm.is og Maríanna leggur
áherslu á að því verra sem ástandið sé
því betra. Maríanna talar einnig um
að fólkið sem býður fólki heim til sín í
þáttunum sé hugrakkt. „Ég tek hattinn
ofan af fyrir þessu fólki vegna þess að
það leitar sér hjálpar. Hinir sem sitja
áfram í skítnum, það eru þeir sem ættu
að skammast sín.“
■ Hefur þú fylgst með Kvöldþættinum á Sirkus?
Ásmundur Arndal Jóhannsson
„Nei, ég er búinn að vera í sum-
arfríi og hef ekkert horft á sjón-
varp.“
Jóhannes Gauti Sigurðsson
„Nei, ég hef ekki haft neinn tíma
til þess.“
Anna Þorleifsdóttir
„Nei, ég hef aldrei horft á hann.
Það er sennilega bara áhugaleysi."
Steinar Björnsson
„Ég hef ekkert séð á Sirkus.“
Kristin Guðmundsdóttir ; Guðbjörg Hjartardóttir
„Já. Mér finnst hann bara sæmi- -„Nei, ég næ ekki Sirkus.“
legur, ekkert til að hanga yfir.“ ;