blaðið - 02.08.2005, Blaðsíða 35
blaóið ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2005
KVIKMYNDIR I 35
HÁDEGISBIO
400 kr. MIÐAVERÐ k ALLAR MYND/R kl: 12 UM HELG/NA í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
STASSTA KVIKMYNDAHÚS tANDSINS • HAGATORGI • S. 5301910 • wmMaMUtíoM
AÐEINS EINN MAÐUR GAT LEITT LIHÐ
TILSIGURS..
HANN VAR UPPTEKINN.
KEFLAVIK
DARK WATER
MADAGASCAR enskt tal
ELVIS HAS LEFT THE BUILDING
BATMAN BEGINS
VOKSNE MENNESKER
KICKING AND SCREAMING KL 2-4-6-8-10.10
KICKING AND SCREAMING VIP KL 8-10.10
DARKWATER KL. 8-10.10
THE PERFECT MAN KL 2-4-6-8-10
MADAGASCAR enskt tol KL. 2-4-6-8-10
MADAGASCAR ísl. tol KL 2-4-6
BATMAN BEGINS KL. 2-5-8-10.40
BATMAN BEGINS VIP KL 2-5
KICKING & SCREAMING KL.8-10
DARKWATER KL. 8-10.20
THE PERFECT MAN KL. 4.30-6.30-8.30-10.30
MADAGASCAR ísl. tal KL. 4.30-6.30
ELVIS HAS LEFT THE BUILDING KL 4.30-8.30-10.30
WHO'S YOUR DADDY KL 6.30-8.30-10.30
KICKING & SCREAMING
DARKWATER
THE PERFECT MAN
MADAGASKCAR ísl. tal
MADAGASKCAR enskt tal
DARK WATE R
IMfiR PiliBEttSHiitH
MEÐ ENSKU TALI
AKUREYRI c 461 4666_______KEFLAVIK C 421 1170
RINOtAN t 588 0800
jf f™ . - $ ffhj-j • y Wf y,\mp% %, f || Jg§g|| |S|i "te- ... . J ni
LhLLiLptf Wm i r Æ) _ . m
Kidman og Htrschbwgel
taka höndum saman
Stórleikkonan Nicole Kidman hefur
tekið að sér aðalhlutverkið í vænt-
anlegri mynd þýska leikstjórans
Oliver Hirschbiegel, Invasion, en
Hirschbiegel á að baki stórmyndina
Der Untergang sem fjallaði um síð-
ustu daga Adolfs Hitlers og vakti
verðskuldaða athygli um allan heim.
Nú tekst hann á við enn annað erfitt
verkefnið, en Invasion er endurgerð
myndarinnar Invasion of the Body
Snatchers frá árinu 1956 sem Don
Siegel leikstýrði. Kidman mun leika
ungu konuna Carol sem kemur upp
um samsæri sem á sér stað í litlum
bæ þar sem persónuleiki íbúanna
virðist vera að gjörbreytast. Upp-
runalega myndin er löngu
orðin klassísk vísinda-
skáldsögumynd og
verður því ekki
auðvelt að feta í
fótspor hennar.
Myndin á að vera
tilbúin til sýn-
inga á næsta
ári.B
Væntanleg plata Robbie
Williams tekur á sig mynd
Sólóferill Robbie Williams hefur
verið á fleygiferð uppávið frá því
að hann sendi frá sér plötuna Esca-
pology árið 2002. I haust kemur út
ný plata frá kappanum sem mun
bera heitið Intensive Care og heyrst
hefur að platan sé undir miklum
reggíáhrifum að þessu sinni. Popp-
arinn hótaði að hætta í tónlistinni
fyrir tveimur árum þar sem hann
væri búinn að fá nóg af því að vera
ofsóttur af aðdáendum. Hann sagði
á þeim tíma að hann ætlaði sér ekki
að senda frá sér aðra plötu, en það
er greinilegt að hann hefur fallið frá
því, aðdáendum sínum til mikillar
ánægju. ■
Ofurkonan Beckinsale
Heyrst hefur að leikkonan
Kate Beckinsale (Aviator,
Pearl Harbor) hafi bætt sér
á lista þeirra fjölmörgu
kvenna sem vilja taka að
sér hlutverk ofurkonunn-
ar Wonder Woman í
væntanlegri stórmynd
frá Paramount Pictur-
es. Breska leikkonan
er ekki ókunn slíkum
hasarhlutverkum eftir
að hafa leikið í mynd-
unum Underworld og
ý vampírumyndinniVan
Helsing. Hún sagði í nýlegu viðtali
að eftir að hafa klætt sig upp sem
ofurhetja í síðasta hrekkjavökupart-
íi hafi hana langað til að glíma við
hlutverk Wonder Woman.
Handritshöfundurinn Joss Whed
on sem skrifaði þættina Buffy the
Vampire Slayer vinnur nú hörðum
höndum við að koma saman sögu
um teiknimyndafígúruna og hyggst
hann auk þess leikstýra myndinni.
Beckinsale stendur þó í harðri sam-
keppni um hlutverkið þar sem Katie
Holmes, Jessica Biel ogMischa Bar-
ton hafa allar sóst eftir verkinu. ■
Eitthvað fyrir alla
þó meirafyrir suma
Pottþétt 38 - 39 Pottþétt lög
Pottþétt diskarnir eru orðnir marg-
ir og sýnir það hversu vel þessi
hugmynd hefur tekist að nú er að
koma út diskur númer 38. Svona
safndiskar geta nefnilega verið æði
misjafnir að gæðum og ber það
vott um smekkvísi og þekkingu á
markaðnum hversu lengi þetta hef-
ur enst. Á þessa diska hafa valist
lög sem verið hafa vinsæl og einnig
er skotið inn lögum sem útgefend-
ur vilja kynna. Þau lög hafa jafnan
siglt hraðbyri upp vinsældarlista
svo þetta virðist vera beggja hagur.
Á þessum diski er að finna jafn
ólíka tónlistarmenn og Destiny’s
Child og WigWam. Þó fannst mér
eins og aðeins minni metnaður
væri lagður i þetta að þessu sinni.
Þeir sem sækja tónlistarfróun sína
í vinsældarlistapoppið munu sjálf-
sagt taka þessum diski fagnandi
en fyrir hina sem gera aðeins meiri
kröfur verður að segjast eins og er
að betur má ef duga skal. Aldrei
hafa færri lög ratað inn á „itunes“
hjá mér en að þessu sinni. Þó ber
að gæta allrar sanngirni og segja
að þau voru nokkur. Jakop Svestr-
up flokkast undir vírus í mínum
hátölurum en Gorillaz, Coldplay,
Queens Of the Stone Age og Ke-
ane voru þakklát viðbót í safnið.
Diskur 2 þótti mér áberandi betri.
Af hverju er alltaf verið að taka
gömul lög og gefa þau út aftur?
Það er óþarfi. Aðeins í örfá skipti
fer slíkt vel og eitthvað verður til
sem bætir líf okkar. Johnny Cash
er eini listamaðurinn sem hefur
tekist vel til í að endurgera lög án
þess að úr verði fjöldamorð. Hætt-
ið þessu! Engum er greiði gerður.
ingo@vbl.is
PH industnies
•gg.?»
TBICA
•; m ■ ■■
39i’lMÍ
Jm
-
Flott föt fyrir f lotta
krafeka, 12-15 ára
NÝJfiR VÖRUR
Síðustu daqar útsölunnar
1
EXIT
HRINGLUNNI - SMflRBLIND