blaðið - 02.08.2005, Blaðsíða 37
blaðió ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 2005
DAGSKRÁI 37
■ Fjölmiðlar
Sakamál af
bestu gerð
Fátt gleður meir í sjónvarpi en bresk-
ar sakamálamyndir sem snúast um
morð í snotru umhverfi. Alveg eins
og í Barnaby sakamálamyndinni
sem RÚV sýndi síðastliðið laugar-
dagskvöld. Hún gerðist í fallegu
þorpi þar sem maður gæti vel hugs-
að sér að eyða sumarleyfinu. í mynd-
inni var fullt af venjulegu fólki,
sæmilega alúðlegu, en maður vissi
að engum ætti að trúa heldur horfa
grunsemdaraugum á alla því í hópn-
um var einhver sem myrt hafði tvær
manneskjur með köldu blóði og átti
eftir að myrða fleiri.
Litríkasta manneskja þorpsins
var myrt á fyrstu mínútum myndar-
innar. Enn eitt dæmi þess hvað sterk-
ir persónuleikar eiga erfitt uppdrátt-
ar í hversdagsleikanum. Þetta var
einstaklega vel gefin kona en hafði
pöddulegan húmor og sjálfstraust á
við Kristján Jóhannsson. Eiginleikar
sem virka kannski ekki mjög sjarm-
erandi. Mér fannst hún samt áhuga-
verð og var ekki alveg sátt við að
hún varð fórnarlamb. Þetta varkona
sem virtist geta lifað allt af — nema
kannski það að búa í smáþorpi þar
sem allir þurfa helst að vera eins.
Sennilega er það þessi krafa um að
vera hópsál sem verður til þess að
alls kyns bældar kenndir taka sér
bólfestu í fólki sem býr í litlu þorpi.
Þegar leið á myndina varð mér ljóst
það sem alls ekki lá í augum uppi í
21:00-23:00 23:00-00:00 00:00-6:00
á íslenskt þjóðfélag við upphaf og á árum slöari heimsstyrjaldar. Umsjónarmaður er Helgi H. Jóns- son og um dagskrárgerð sá Anna Heiður Oddsdótt- ir. Þátturinn er textaður á síðu 888 í Textavarpi. 22.00 Tíufréttir 22.20 Rannsókn málsins VIII (2:2) (Trial and Retribution, Ser. 8) I kvöld verður sýndur seinni hluti áttundu mynd- arinnar. Þar fær lögreglan til rannsóknar sérlega snúið sakamál úr heimi hinna forriku þar sem penlngar eru engin fyrirstaða og afbrigðilegt kynlíf er munaður sem menn geta leyft sér. Angela Dutton, ung og falleg vændiskona, fellur fram af svölum á elleftu hæð lúxusblokkar. Lögregluna grunar strax að hún hafi ekki stokkið fram af svölunum og morðrannsókn hefst. Þau Michael Walker og Roisin Connor sem fara með rannsókn málsirts fýrirlita hvort annað en hér verða þau að taka saman höndum til þess að komast að hinu sanna I þessu óhugnanlega morðmáli. Leikstjóri er Paul Unwin og meöal leikenda eru David Hayman, Victoría SmurfiL Dorian Lough, Colin Salmon, Frances Barber og Kathryn Sumner. Atriði i myndinnl eru ekki við hæfi barna. 00.00 Kastljósið Endursýndur þáttur frá þvi fyrr um kvöldið. 00.25 Dagskrárlok
Judd og félagar eru þeir bestu f faglnu og fá svo sannarlega að vinna fyrir kaupinu slnu. 21.30 LAX (1:13) (LAX) Hörkuspennandi myndaflokkur sem gerist á alþjóðlega flugvellinum 1 Los Angeles, LAX. Aðal- hlutverkið leikur Heather Locklear. 22.15 Navy NCIS (20:23) (Glæpadeild sjóhersins) 23.00 Boycott (Engan aðskilnað) Dramatlsk kvikmynd þar sem sögulegir atburðir eru i brennidepli. Réttindabarátta blökkumanna hefur verið löng og ströng. Eftir miðja slðustu öld komst veruleg hreyfing á málin, þökk sé mönnum eins og Martin Luther King. Aðalhlut- verk: Jeffrey Wright, Terrence Dashon Howard, CCH Pounder. Leikstjóri, Clark Johnson. 2001. Leyfð öllum aldurshópum. 00.50 Revelations (4:6) (Hugljómun) Magnþrunginn myndaflokkur sem hefurvakið mikla athygli.Tilvist jarðarinnar er uppspretta óendanlegrar umræðu. Hér mætast tvær gjör- ólíkar sálir sem örlögin leiða saman 1 óvenjulega vegferð. Stjarneðlisfræðingurinn Richard Massey harmar missi dóttur sinnar þegar systir Josepha Montafiore kemur til skjalanna. Richard trúir á visindin og er efasemdarmaður þegar Guð er annars vegar. Josepha opnar honum nýja sýn sem breytir lifi þeirra beggja. Aðalhlutverk leika Bill Pull- man og Natascha Elhone. Bönnuð börnum. 01.35Tréttir og Island f dag 02.55 fsland i bitið 04.35Tónlistarmyndbönd frá Popp TfVí
22.00 CSI Miami 22.45 JayLeno 23.30 The Contender 00.15 Cheers(e) 00.40 TheO.C. 01.20 Hack 02.15 Óstöðvandi tónlist
21.00 Joan of Arcdia (5:23) (Just say no) 21.45 Sjáðu Unnur Birna sýnir okkur allt það heitasta í kvikmyndaheiminum. 22.00 Kvöldþátturinn 22.45 David Letterman 23.30 Rescue Me (5:13) (Orphans) 00.15 Friends 2 (3:24) 00.40 Kvöldþátturinn 01.25 Seinfeld 3
22.10 Sporðaköst II (Laxá i Aðaldal) 22.40 UEFA Champions League (Liverpool - Kaunas)
22.00 Deeply (Sorgleg ástarsaga) 00.00 To kill a klng (Kóngamorð) Bönnuö börnum. 02.00 Strange Planets (Undarleg veröld) Bönnuð börnum. 04.00 Deeply (Sorgleg ástarsaga) Bönnuö börnum.
upphafi; þarna voru allir meira og
minna skrýtnir. Svo ég fór að sjá
morðingja í hverju horni.
Breskar sakamálamyndir segja
okkur að næstum hver sem er geti
breyst í morðingja við tilteknar að-
stæður og að allir hafi eitthvað að
fela. Ekki sérlega geðsleg tilhugsun
miðað við það borgaralega siðgæði
sem við teljum okkur búa við. Ég
held hins vegar að það sé heilmikið
til í þessari kenningu bresku saka-
málamyndanna.
Og þá að allt öðru. Nú þegar Silv-
ía Nótt hefur kvatt á Skjá einum þá
ætti stöðin að endursýna þætti henn-
ar. Það voru margir seinir að átta sig
á snilli Silvíu og misstu því af fyrstu
þáttunum. Silvía var reyndar stund-
um full orðljót fyrir minn smekk en
ég er náttúrlega pempía. En Silvía
var verulega eftirminnileg í síðasta
þættinum þegar hún sagði grátandi
eftir að hafa horft á draum sinn um
frægð gufa upp: „Það er ýmislegt ^
sem skiptir meira máli en frægðin,
eins og til dæmis útlitið.“
kolbrun@vbl.is
■ Af netinu...
Undanfarnar vikur hefur Sverrir Páll
Erlendsson íslenskukennari við MA,
verið með athyglisverða (og ekki síð-
ur mjög góða) pistla á Rás 1. Er hann
einn af fimm einstaklingum sem sjá
um þáttinn Sögumenn samtímans
þar sem þau tala til fólks um hugleið-
ingar sínar. Sem jafnan fyrr er Sverr-
ir Páll ófeiminn við að tjá skoðanir
sínar. Það er gaman að hlusta á hug-
leiðingar hans og get ég ekki annað
en bent á pistla hans á vefnum. Þess-
ar hugleiðingar þessa góða íslensku-
kennara okkar Akureyringa í MA
eru jafnan góðar og eiga erindi við
fólk. Sérstaklega vöktu athygli mína
góðar hugleiðingar Sverris Páls um
íslenskt mál og málrækt almennt, í
ljósi amerískra menningaráhrifa
á tungumálið (en eins og gefur að
skilja er íslenskt mál megináhuga-
mál Sverris Páls sem mikils postula
í málrækt). Hefur Sverrir Páll nú
um nokkuð skeið haldið úti áhuga-
verðum bloggvef um málrækt, sem
hann kallar Mannamál, sem jafnan
er gaman að líta á. Ég hvet alla til að
hlusta á pistla Sverris Páls eða lesa
þá og önnur skrif hans. Áhugavert,
eins og jafnan þegar Sverrir Páll tjá-
ir skoðanir sínar.
http://stebbifr.blogspot.com
Ég horfði á Extreme-housemakeo-
ver í gær á Stöð z. Ég, sem elska
raunveruleikasjónvarp, verð nú
samt að viðurkenna að mér finnst
þessi þáttur alveg frekar ömurlegur.
Þessi Ty sem er þáttarstjórnandinn
er ofvirkur geðsjúklingur sem þeys-
ist um allt og tekur video-dagbók
og velur sér alltaf eitt herbergi sem
á að verða eitthvað „surprise", hann
er ekki smekklegur og mér finnst
herbergið sem að hann velur alltaf
ljótast. Nú, ekki má svo gleyma Mr.
White-teeth sem er með tennur sem
lýsa í myrkri. Hins vegar finnst mér
The newlyweds mjög skemmtilegur
áttur, alla vega enn sem komið er.
g „fíla“ hvað Jessica er mjög svo
mikil ljóska og þessi Nick er nú bara
svaka sætur. Æ þau eru eitthvað svo
mis en þú verður að elska þau.
http://majas.blogspot.com
Enn einn fréttatíminn á Stöð tvö
lagður undir „sviptingar í íslenskri
fjölmiðlun." Sigmundur fór af DV í
fússi árið 2001 vegna þess að hann
fékk ekki fréttastjórastöðuna á
Stöð 2. Hann hefur þvælst á milli
titla og deilda síðan þá, en nú vildi
loksins svo gleðilega til að hann
hlaut titilinn sem hann óskaði sér
í upphafi. Veiii. Róbert Marshall
sem „sagði af sér“ sem fréttamað-
ur á Stöð 2 fyrir nokkrum mánuð-
um (afhverju segja þeir ekki bara
“afsalaði sér krúnunni”?) hefur nú
fengið ææææðislega flottan titil hjá
sama fyrirtæki og þarf því að láta
af hendi veldissprota blaðamanna-
félagsins. Hverjum er ekki sama.
http://www.thorunnh.blogspot.
com/
ú i B ió