blaðið - 10.08.2005, Page 20

blaðið - 10.08.2005, Page 20
20 I SNYRTIVÖRUR MIÐVIKUDAGUR 10. ÁGÚST 2005 ! blaðið Ferskí og fallegra andlit farðaðu þig eins og Jennifer Lopez Fatasmekkur söng- og leikkonunn- ar Jennifer Lopez kann að vera marg- breytilegur, allt frá nýtískulegum götufatnaði upp í hátískuklæðnað, en áherslur hennar í andlitsmáln- ingu virðast hins vegar yfirleitt þær sömu. Stjarnan íðilfagra sést yfirleitt með kvenlega og náttúrulega förðun og lítið er um skyggingar og liti sem geta orðið yfirþyrmandi, hvort sem er á forsíðum tímarita, í kvikmynd- um eða myndböndum. Jennifer leggur áherslu á frísklegt og kynþokkafullt útlit án þess að vera með litadýrðina í hávegum og þykkt lag af farða. Fylgið eftirfarandi leiðbeiningum og fáið fram fallegt og yfirvegað útlit án þess að til mikilla útlitsbreytinga komi. Förðunarfræðingar stjarn- anna segja þessa leið ágæta til þess að ná þeirri fallegu og fersku förðun sem Jennifer Lopez er jafnan þekkt fyrir. Það sem þú þarft: • Létt grunnmeik • Hyljari • Þunntpúður • Léttur ogglansandi kremlitað ur augnskuggi • Hlutlaus Ijósbrúnn augn skuggi • Augnhárabrettari • Svartur maskari • Augabrúnalitur í daufari tón en hárliturinn • Rósrauður kinnalitur • Ljós varablýantur • Gljáandi gloss, jafnvel litlaust 1. Grunnmeik, hyljari og púður. Settu örlítið lag af léttum farða á húðina og dreifðu vel úr með fingr- unum. Gakktu úr skugga um að lagið sé örþunnt og varla sýnilegt. Hyljari undir augun og á önnur mis- lit svæði er einnig góður til þess að jafna húðina sem mest. Þá er létt púður í réttum lit gott til þess að setja jafnvægi á húðina, en ekki má vera of mikið. 2. Augnskuggi Þegar farði hefur verið settur á er komið að augnskugganum sem í þessu tilfelli er afar ljós. Púður yfir augnsvæðið hjúpar vel fyrir augn- skuggann og gerir förðun auðveld- ari. Settu lag afléttum kremlituðum lit frá augnbeini niður að augnhár- um og því næst ljósbrúnan lit með léttum bursta. (gott er að setja laust litlaust púður undir augun áður en augnskuggi er settur á augun ef hann skildi falla niður. Púðrið er svo dustað af þegar augun hafa ver- ið förðuð) 3. Augnhár Notaðu augnhárabrettara til þess að ná fram fallegu lagi á augnhárin. Settu svo þykkt lag af góðum svört- um maskara á efri augnhárin ein- göngu. Til þess að gera augun skýr- ari má setja dökkan augnskugga í ytri horn neðri augnháranna með litlum bursta. Fína og næstum ósýni- lega línu. 4. Augabrúnir Með því að nota fallegan auga- brúnalit má móta augabrúnirnar eftir þörfum, hvort sem þær eiga að vera áberandi eður ei. Passa þarf þó litaval og til þess að ná fram sem nátt- úrulegustum yfirlitum þarf liturinn að vera ljósari en hárið annars verða brúnirnar alltof skýrar og beittar. 5. Kinnalitur Jennifer Lopez er jafnan með gljá- andi kinnalit til þess að lífga upp á annars daufa förðunina. Krem- kenndur kinnalitur í heitum rósrauð- um lit er mjög fallegur en passa þarf að dreifa vel úr honum svo að ekki myndist tvö epli á kinnunum. Settu þunnt lag á kinnbeinin og dreifðu svo jafnt og þétt í átt að hárlínunni. Byrjaðu á litlu í einu og bættu svo við eftir þörfum. Oft er nóg að setja sem minnst svo að liturinn verði ekki yfirþyrmandi. 6. Varablýantur og gloss Gerðu útlínur varanna eilítið skýr- ari með fallegum varalitablýanti í ljósum tón. Að lokum er settur glans- andi gloss sem gerir varirnar kyssi- legri og þykkari. hálldora@vbl.is Sterkari og sýnilegri augnhár - nýi maskarinnfrá L'oréal með bursta í, en í honum er settur á bursti 2 en hann þekur er góð næring fyrir hárin auk þess vel og gefur djúpan og fallegan lit án íburðamikill maskari, sem hárin lengjast allverulega. Nátt- þess að klístrást. Augnhárin verða en hann samanstendur af tveimur úrulegir þræðir í burstanum gera þykkari, lengri og í alla staði afar Double Extension maskarinn frá burstum sem hver gegnir sínu hlut- meiraúraugnhárunumogvaldaþví falleg. L'oréal er sérlega styrkjandi og verki. Fyrst eru augnhárin þakin að maskarinn verður fallegri. Næst Endurnœrandi vökvi sem úðað ur er á andlitið FIX+ frá Mac er endurnær- andi vökvi í spreyformi sem hægt er að úða á andlitið undir og yfir farða. Vökvinn er afar góður fyrir húðina enda ríkur af A-vítamínum og andlitið verður ferskara yfirlitum. Efnið hentar öll- um húðgerðum og gerir góða hluti fyrir þreytta húð. Úðan- um er haldið rétt frá andliti og spreyjað nokkrum sinnum létt yfir þegar augun eru lokuð. Þessi skemmtilega nýjung frá MAC er afskaplega sniðug í hita og þegar fólk hefur setið lengi fyrir framan tölvuna. Lífgar upp á andlit- ið og húðin verður endurnærð auk þess sem viðkomandi hressist. W - CV.V) Y»»Vlí>»'SÍ’ Glansandi og glœsilegt gloss Chanel setti nýverið á markað nýja gerð af glossum í hinum ýmsu litum, allt frá ljósum upp í sterka og áberandi liti. Þessi gloss eru litlaus og gera varirnar eðlilega glansandi og kyssilegar, auk þess að draga fram varalínurn- ar og mýkja munnsvipinn. Hentar afar vel á daginn þegar konur vilja draga fram það besta af vörunum en vera jafnframt eðlilegar og með óáberandi lit á þeim. Þá getur ver- ið gott að setja daufa varalínu til þess að móta varirnar og setja svo gloss yfir. Mjög þægilegur gloss sem klístrast ekki og viðheldur frísk- leika varanna. m A Perfect World andoxunar rakakrem með hvítu tei Senn fer að hausta og því mikilvægt að undirbúa húðina undir þær veðra- breytingar sem geta átt sér stað. Húð- in getur þornað upp þegar tekur að kólna og í alla staði nauðsynlegt að umhirða húðar sé með besta móti. Snyrtivörufyrirtækið Origins er þekkt fyrir afspyrnu góð krem, hvort sem um rakakrem, maska eða önnur krem er að ræða og því ekki úr vegi að kynna sér eitthvað af því sem í línunni er að finna. A Perfect World er frábært and- oxunar rakakrem með hvítu tei, en það gefur húðinni djúpan raka um leið og það verndar húðina gegn öldrun og mengun. Úthald húð- frumna til að gera við sig sjálfar eykst, rakavörn húðarinnar styrkist og litamismunur minnkar, aukþess sem kremið hefur róandi, frískandi og hressandi áhrif á líkama og sál. Kremið er borið á hreina húðina en það hentar best fyrir blandaða, þurra og viðkvæma húð.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.