blaðið - 18.08.2005, Síða 4

blaðið - 18.08.2005, Síða 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2005 blaöiö BAUGSMÁLIÐ Blaöiö/Gúndi Eyðsla Jóns Ásgeirs Gucci, djamm og pylsur Málið illskiljanlegt þar til menn. skilja hugarfar Jóns Ásgeirs - segir Deidre Lo, sem í gœr kynnti skýrslu ensks eftirlitsfyrirtœkis um ákœrur í Baugsmálinu sem unnin var að beiðni Baugs Jón Ásgeir Jóhannesson á að hafa notað greiðslukort Baugs til þess að greiða 12.553.358 krónur fyrir eigin neyslu á þeim fjórum árum sem rannsóknin náði yfir. Jón Ás- geir virðist hafa straujað kortið langmest árið 2001 eða fyrir rúm- ar tíu og hálfa milljón króna. Ríf- lega sex milljónir fara þar af til eins og sama aðila en það er að öllum líkindum ferðakostnaður. Einnig má rekja fjórar færslur til Flóridaríkis í Bandaríkjunum þar sem Jóni Ásgeiri tókst að eyða tæpri milljón króna í skemmtan- ir á einni helgi. Þá keypti Jón Ás- geir á tímabilinu tískufatnað fyr- ir rúmar þrjár milljónir en þar af mátti rekja tæplega tvær þeirra til Gucci verslana. Þess má geta að hæsta færslan í Gucci verslun var upp á 665 þúsund krónur. Skyndibiti og bíó Einnig greiddi Jón Ásgeir fyrir fjölmargar kvikmyndahúsa- ferðir með korti Baugs og eins ýmsan skyndibita, m.a. bæjar- ins bestu pylsur. Samanlagt er neysla Jóns Ásgeirs á skyndibita- stöðum, í bíóhúsum og á börum Reykjavíkur um 140 þúsund krónur þessi fjögur ár. Þess ber að geta að þetta er einungis sú upphæð sem færðist á greiðslu- kort Baugs. Þá er enn ótalinn ríflega 100 þúsund króna reikn- ingur frá efnalaug og um 100 þús- und krónur i tannlæknakostnað. Blaöiö/Gúndi Jóhannes í Bónus: Erum öll algerlega saklaus „Við erum öll algerlega saklaus og ég held að 98% þjóðarinnar séu sammála okkur í því“, sagði Jóhannes Jónsson í Bónus á göng- um Héraðsdóms Reykjavíkur, skömmu eftir að þingfestingu á máli ákæruvaldsins gegn honum lauk i gær. Aðspurður um það á hverju hann byggði þá skoðun sína að þorri Islendinga væri á sínu bandi svaraði Jóhannes: „Af viðtölum við fólk og ég veit hvað þarna að baki býr. Það er nóg fyrir mig.“ Ekki bar á öðru en að Jóhann- es væri brattur og hann kvaðst ánægður með tilveruna þrátt fyrir allt. „Þetta er bara ágætur dagur og bara ágætt að þetta er komið fram.“ Hann sagðist fagna því að ákær- urnar lægju loksins fyrir enda hefði biðin verið erfið. „Það er bú- ið að vera þriggja ára tortúr að eiga þetta yfir höfði sér og nú vitum hvað það er í dag. Þetta tekur ansi langan tíma, væntanlega fimm ár úr ævi okkar, en ókei, það er allt í lagi að lifa með því. Við erum sannfærð um sakleysi okkar og lif- um samkvæmt því. Þetta heldur aAr\r\ <rXlr., Armv r\\r\riirU I gær boðaði Baugur til blaðamanna- fundar á Hótel Nordica þar sem kynnt var skýrsla bresks fyrirtækis um ákærur ríkislögreglustjóra á hendur lykilmönnum fyrirtækisins. Þar kom meðal annars fram það álit fulltrúa fyr- irtækisins að málið væri afar flókið og jafnvel erfitt fyrir þaulvana endurskoð- endur að átta sig á öllum atriðum þess. Til þess að ná yfirsýn yfir það þyrftu menn fyrst að skilja hugarfar Jóns Ás- geirs Jóhannessonar, forstjóra Baugs. Skýrslan ekki afhent Deidre Lo, fulltrúi Capcon-Argen Ltd„ kynnti skýrsluna á fundinum og fór yfir alla ákæruliði málsins sem eru 40 talsins. Á hinn bóginn var skýrslan sjálf var ekki afhent á fundinum og sagði Sara Lind Þor- steinsdóttir, forstöðumaður upplýs- inga- og kynningarsviðs Baugs, að hún væri innanhúsplagg hjá fyrir- tækinu. Lo sagði að fyrirtæki hennar hefði aðeins haft fjórar vikur til þess að vinna skýrsluna en hún hefði byggst á gögnum fyrirtækisins auk þess sem fyrirtækið hefði haft fullan aðgang að stjórn fyrirtækisins, forstjóra og öðr- um stjórnendum hjá fyrirtækinu. Lo fór einkum yfir þau ákæruatriði sem snúa að persónulegum útgjöld- um Jóns Ásgeirs sem greidd voru með kreditkorti Baugs. Sagði hún Capcon- Argen Ltd. telja að hér væri um inn- anhúsmál Baugs að ræða. Hún benti á, eins og ffam hefur komið, að allar þessar færslur hefðu verið greiddar til baka. Engar skýringar Nokkuð var spurt um víxilinn sem var notaður til þeirrar endurgreiðslu. Hann var að sögn gefinn út hinn 20. maí 2002 eftir innri endurskoðun hjá Baugi. Lo var spurð hvers vegna hann hefði ekki verið greiddur fyrr en 5. september, um viku eftir hús- leit efnahagsbrotadeildar Ríkislög- reglustjóra. Hún kvaðst ekki hafa fengið skýringar á því og hafði ekki heldur á takteinum hver upphæð víxilsins hefði verið, aðeins að hún hefði verið meira en 2C milljónir. Aðspurð kvaðst hún ekki vita hvort uppgjör með þessum hætti teldist til eðlilegra viðskiptahátta. Hún áréttaði þó að samkvæmt bók- haldi hefði Baugur ávallt skuldað Jóni Ásgeiri meira en hann skuldaði fyrir- tækinu. Hvað endurgreiðslurnar áhrærði kvaðst hún ekki getað fullyrt að Jón Ás- geir hefði haft heimild til þess að nota krítarkort fyrirtækisins til einkanota, hún hefði ekki séð ráðningarsamning hans. Sér skildistþó að stjórn fyrirtæk- isins hafi vitað af þessu fyrirkomulagi þó þar hafi ekki legið samþykkt að baki. Lánveitingar Lánveitingar Baugs til hlutafjár- kaupa í fyrirtækinu bárust einnig í tal á kynningunni og var lán til Kristínar Jóhannesdóttur sérstak- lega rætt í því samhengi en hún var ekki starfsmaður fyrirtækisins. Lo kvaðst ekki vita hvort aðrir hluthaf- ar hefðu fengið lán með sama hætti og sömu kjörum. Þegar tahð barst að afskiptum Baugs að smábátaútgerð í Flórída vandaðist málið því fundargestir áttu margir erfitt með að skilja margþætt- ar greiðslur á vegum Gaums, fjárfest- ingarfélags Bónusfjölskyldunnar og Baugs til Nordica, fyrirtækis Jóns Geralds Sullenberger. Lo játaði að þar væri um afar flókið fjárstreymi að ræða og erfitt að skilja fyrir hvað væri verið að borga. Hún sagði Jón Ásgeir vera margt betur gefið en nákvæmni þegar krónur og aurar væru annars vegar, hans hæfileiki fælist í að sjá stóru myndina. „Maður skilur þessi mál ekki almennilega fyrr en mað- ur áttar sig á hugarfari Jóns Ásgeirs", sagði Deidre Lo. f ‘SiiÍM & Jtyqqvaqötu 8,101 ReyQiaviQ .-----------------—S. 611 2272 •’fhc CASTCB OF V ' <)> *<!í MenHÍHgarMött SaBga gtemmÍHQ íca ; 50 rr ff m

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.