blaðið - 18.08.2005, Síða 32

blaðið - 18.08.2005, Síða 32
32 I MENNIWG FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2005 Maðiö Petta lif tilnefnt tu verolauna - ogÁsa ammafrumsýnd ísjónvarpi Blaöiö/Cúndl George Bush. Fer í fríið með merkilegar bækur. Bush fer i fri til að lesa Heimildamyndin Ása amma, eftir Þorstein J. Vilhjálmsson, verður sýnd í kvöld í Ríkissjónvarpinu en hún var frumsýnd í þremur hlut- um á veftímaritinu Þetta líf sem Þorsteinn heldur úti á slóðinni www.thorsteinnj.is. „Myndin er þó endurklippt fyrir sjónvarp- ið því það er allt annar miðill", segir Þorsteinn. Hún fjallar um barnabörnin Ásu og Tómas sem hafa áhyggjur af ömmu sinni og tala um að henni hafi verið rænt. ,Ása amma vildi fara á elliheimil- ið Grund en í millitíðinni fór hún á heilsuhælið í Hveragerði þangað sem hún var sótt af tengdasyni sín- um. Þau fluttu hana á heimili sitt og einangruðu hana frá öðrum ættingjum og leyfðu ekki heim- sóknir til hennar eða símtöl.“ Huga þarf að réttar- stöðu aldraðra Þorsteinn fylgdist með framþró- un þessa máls og sýndi í tímariti sínu á netinu en þar talaði hann við félagsmálafulltrúa sem skýrði stöðu aldraðra og sagði að hún væri mun verri en fólk gerir sér almennt grein fyrir. „Ef það leik- ur grunur á að illa sé farið með barn þá er barnaverndarfulltrúi kallaður til en það er ekki sama uppi á teningnum þegar kemur að öldruðum því þeir eru auðvit- að lögráða einstaklingar", segir Þorsteinn. Ekki var hægt að gera neitt fyrir Ásu ömmu fyrr en dótt- ir hennar keypti af henni íbúðina, með ólögmætum hætti að sögn annarra ættingja. Þetta líf tilnefnt til verðlauna Þetta líf var í vikunni tilnefnt til Prix Europa verðlaunanna í Berl- ín í flokki netmiðla. Þetta eru ein stærstu verðlaun sinnar tegundar í Evrópu en keppt er í nokkrum flokkum, sjónvarps- og útvarps- þátta, að ógleymdum netmiðlum. Sjónvarpstímaritið var sett á lagg- irnar í janúar 2005 og byggir fyrst og fremst á lifandi myndefni. „Netið er fremur sjónrænn miðill en textamiðill og það er ákaflega gaman að vinna með hann því hann er sífellt að þróast meira í þá átt“, segir Þorsteinn sem mun kynna veftimaritið í Berlín dag- ana 16.-21. október á Prix Europa hátíðinni. Úrslit hátíðarinnar verða svo kunngjörð á lokahófi hennar að kvöldi 2i.október. ■ ,Hann er oft laus við forvitni og þess vegna illa upplýstur", sagði David Frum fyrrverandi ræðusmiður Ge- orge Bush Bandaríkjaforseta í minn- ingum sínum. Fjölmargir hafa tekið undir þessi orð og látið að því liggja að forsetinn geti varla verið hraðlæs. Vegna þessa vekur kannski sérstaka athygli hvaða bækur George Bush hefur valið til að hafa með sér í frí- ið. Á leslistanum er Salt: A World History eftir Mark Kurlansky en bókin sem er 484 blaðsíður fjallar um hlutverk salts í veraldarsögunni. Höfundurinn Kurlansky, sem áður hefur skrifað bók um sögu þorsks- ins, segist undrandi á því að forset- inn hafi sett bókina á lestrarlista sinn. „Fyrstu viðbrögð mín voru já, les hann bækur“ segir Kurlansky. Aðrar bækur á listanum eru held- ur engin smásmíði. Þær eru Alex- ander II: the Last Great Tsar eftir Edvard Radzinsky og The Great Influenza: The Epic Story of the De- adliest Plague in History eftir John M Barry. Rúmfatalagerinn óskar eftir verslunarfólki og afgreióslufólki, í boói er fullt starf og hlutastarf. Góó laun í boði fyrir duglega einstaklinga. Mikil vinna í boói ó líflegum og skemmtilegum vinnustaó. Or vöxtur fyrirtækisins gefur mikla möguleika ó aö vaxa í starfi. Hæfniskröfur: • Hressleiki • Opin tyrir nýjungum • Tilbúin að læra • Reynsla af verslunarstörfum æskileg Umsóknir sendist ó rumfatalagerinn@rumfatalagerinn.is eða Smáratorg 1 201 Kópavogur merkt „Atvinna". Allar nánari upplýsingar veita verlsunarstjórar \ verslunum Rúmfatalagersins milli 14:00 - 16:00. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Smáratorgi 1 200 Kópa- vogi 510 7000 Póstkrafa Smáratorgi 1 Holtagörðum v/Holtaveg 104 Reykjavík 588 7499 Skeifunni13 108 Reykjavík 568 7499 Glerártorg 600 Akureyri 463 3333 Póstkrafa Glerártorg 463 3333

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.