blaðið - 24.08.2005, Blaðsíða 4

blaðið - 24.08.2005, Blaðsíða 4
4 I INWLENDAR FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2005 blaöi6 Gjaldþrot sushi-verksmiðjunnar Sindra- bergs er nýjasta dæmið um erfiða stöðu fiskvinnslunnar Hrár fiskur ei meir Sindraberg á ísafirði gjaldþrota Á þriðja tug starfsmanna missa vinn- una við gjaldþrot sushi-verksmiðj- unnar Sindrabergs ehf. á ísafirði, en stjórn félagsins hefur óskað eftir því að bú þess verði tekið til gjaldþrota- skipta. Fyrirtækið, sem stofnað var árið 1999, sérhæfði sig í framleiðslu á frosnum sushi-réttum og var það fyrsta og eina fyrirtækið hér á landi í slíkriframleiðslu. Fyrirtækið hefur átt í rekstrarerfiðleikum um nokkra hríð enda reyndist samkeppni við erlenda framleiðslu á frosnu sushi frá öðrum löndum Evrópu sem og frá Asíu erfið. Ennfremur er ljóst að gengisþróun að undanförnu hafi komið mjög illa við fyrirtækið. Líkur á frekari gjaldþrotum Að undanförnu hafa fjölmargar frétt- ir borist af rekstrarerfiðleikum fisk- vinnslufyrirtækja hér á landi sem og gjaldþrotum. Þannig hafa fisk- vinnslufyrirtæki á Bildudal, Suður- nesjum, Reyðarfirði og Stöðvarfirði hætt starfsemi undanfarna mánuði. Að sögn Arnars Sigmundssonar, for- manns Samtaka fiskvinnslustöðva, er gjaldþrot Sindrabergs því aðeins síðasta dæmið um erfiða stöðu fisk- vinnslunnar um þessar mundir. „Það er vandséð hvað þetta getur gengið lengi og ef svo fer áfram sem horfir er viðbúið að fleiri en eitt og fleiri en tvö fyrirtæki fari sömu leið á næstunni", segir Arnar. Erfitt að meta stöðuna Hann segir ennfremur að þau fyr- irtæki sem veikari eru fyrir leggi augljóslega fyrst upp laupana. Að- spurður um hversu almennir rekstr- arerfiðleikar fiskvinnslufyrirtækja séu segir Arnar að oft heyrist af einhverjum erfiðleikum í rekstri fyrirtækja. Hins vegar sé það oft orðrómur og að lítið fréttist fyrr en fjölmiðlar birti fréttir af gjaldþroti. Það sé því mjög erfitt að meta stöðu fyrirtækja hér á landi um þessar mundir. ■ Tekist á um bensínverð Utreikningar fjármála ráðuneytis véfengdir 1S milljón plöntur gróðursettar Fimmtán milljónasta plantan undir merkjum Landgræðsluskóga var gróðursett f gær við hátíðlega athöfn í Smalaholti í Garðabæ. Gróðursetninguna annaðist Guðni Agústsson, landbúnað- arráðherra, Baldur Guðnason, forstjóri Eimskips og fleiri fulltrúar Landgræðslu- skógaverkefnisins. Staðsetningin var táknræn þar sem þann 6. maf fyrir 15 árum sfðan gróðursetti þáverandi forseti fslands, Vigdís Finnbogadóttir, fyrstu plöntuna á sama stað. Reiknimeistararfjármálaráðuneytis- ins annars vegar og Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) hins vegar komast að andstæðum niðurstöðum í útreikningum sínum á því hvort bensínverð sé nú það hæsta hér á landi frá upphafi eða ekki. 1 vefriti fjármálaráðuneytisins á dögunum segir að verð hafi oft verið hærra en FÍB fullyrðir hins vegar á heimasíðu sinni í gær að svo sé ekki. Útreikningar FÍB marktækari Samkvæmt hagfræðingum sem Blað- ið ræddi við eru útreikningar beggja aðila réttir. Því sem munar er hins vegar að ráðuneytið miðar útreikn- inga sína út frá vísitölu launakostn- aðar, meðan FlB ber verðið saman við vísitölu neysluverðs. Virðast hag- fræðingar sammála um að útreikn- ingar FIB séu marktækari. „Launavísitalan hefur hækkað mjög mikið undanfarin ár en hún hefur hækkað um fjórðung frá byrj- un árs 1998. Þegar þetta háa bensin- verð nú er skoðað í samhengi við launavísitölu virkar það lægra en ella. FÍB miðar við verð á vörum al- mennt en fjármálaráðuneytið við laun sem er svolítið sérstakt”, seg- ir Gylfi Magnússon hagfræðingur. Hann segir hins vegar að réttlæta megi nálgun ráðuneytisins. „Það sem niðurstaða þeirra sýnir okkur er að við höfum fleiri krónur til að kaupa hið dýra bensín”, segir Gylfi. Heppilegur mælikvarði valinn FÍB fór á dögunum fram á að ríkið og fjármálaráðuney tið lækkuðu álög- ur á bensíni. Útreikningar fjármála- ráðuneytisins á bensínverði komu í kjölfarið og var birtur sama dag og ráðuneytið tilkynnti að umræddar álögur yrðu ekki lækkaðar. Einn hagfræðingur sem Blaðið ræddi við kvarða sem heppilegastur hefði ver- sagði að þetta sýndi að ráðuneytið ið til að réttlæta þessa ákvörðun. ■ hefði valið sér þann mæli- er því ósammála. Hagfræðingar taka undir með F(B PRENTLAUSNIR FYRIR FYRIRTÆKI Morðið á laugardag Unnið að rannsókn Sigurbjörn Víðir Eggertsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir að enn sé unnið að rannsókn morðmáls- ins frá því á laugardagsmorg- un. Hann gat ekki staðfest heimildir Blaðsins sem sögðu að þau fjögur vitni sem urðu að atvikinu hefðu aftur verið kölluð til yfirheyrslu í gær.„Það er ekkert ólíklegt, það verður örugglega talað við þau og það verður til þess að fylla í mynd- ina“, sagði Sigurbjörn. Hann sagði að í gær hefði verið talað við manninn sem var færður í gæsluvarðhald vegna málsins. I fyrradag reyndist slíkt erfitt þar sem maðurinn þótti ekki í ástandi fyrir yfirheyrslu. Hægagang- ur í norrænu samstarfi Valgerður Sverrisdóttir, iðnað- ar- og viðskiptaráðherra, gerði það að umtalsefni í ávarpi sínu á ársfundi Vestnorræna ráðsins í gær að afgreiðsla á tillögum ráðsins klárist seint og illa. Nefndi hún sem dæmi nokkrar tillögur ráðsins frá árunum 1998 til 2001. Annars sagði Valgerður að samstarf milli vest- norrænna ráðherra hefði verið frábært undanfarin ár. Hún sagðist trúa því að fólk væri sammála því að samvinna hafi gefið af sér í samræmi við vænt- ingar en alltaf megi gera betur. www. reykjavik. is: Um 60.000 innlit í síðustu viku I síðustu viku var slegið aðsóknamet á vef Reykjavík- urborgar en innlit voru 59.988 í vikunni og fjöldi einstakra notenda var 28.532. Fyrra metið var rétt um 20.000 notendur og 31.000 innlit í lok febrúar þegar Vetrarhátíð stóð sem hæst. Vefurinn er mældur skv. samræmdri vefmælingu Modernus og Verslunarráðs íslands.Ástæða notkunar- innar er Menningarnótt en dagskrá hennar var á vefnum. Hraði og hagkvæmni Canon LBP-5200 Hraðvirkur og hagkvæmur litageislaprentari • Prentar 19 bls. í svarthvítu á mín. og fjórar í lit. • Upplausn 600x600 dpi - 9600x600 punkta prentun. ■ Engin upphitunartími eða bið. ■ USB2.0 Hi-Speed tengi. Tilboðsverð 34.900 kr. Listaverð 39.900 kr. í fyrirrúmi Canon BIJ-1300 Hraðvirkur og hagkvæmur A4 bleksprautuprentari • Prentar 20 bls. í svarthvítu á mín. og 12 í lit. • Upplausn 2400x1200 dpi. ■ Fjögurra hylkja kerfi sem lækkar rekstrarkostnað. • Stór blekhylki - Svart 130 ml og litur 80 ml hvert. • Netkort (aukabúnaður). Tilboðsverð 49.900 kr. Listaverð 69.900 kr. Canon LBP-2900 Nettur hágæða geislaprentari • Prentar 12 bls. á min. í svarthvítu. • Upplausn 600x600 dpi. • Enginn upphitunartími. • Mjög auðveldur í notkun. Tilboðsverð 11.900 kr. Listaverð 14.980 kr. Söluaðilar um land allt. Nánari upplýsingar um Canon eru á www.canon.nyherji.is <Q> nýherji Nýherji hf. ■ Borgartúni 37 • 105 Reykjavik Sími 569 7700 • www.nyherji.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.