blaðið - 24.08.2005, Blaðsíða 11

blaðið - 24.08.2005, Blaðsíða 11
ERLENDAR FRÉTTIR I 11 Helmingur asískra barna býr við fátækt Nærri helmingur 1,27 milljarða as- ískra barna býr við fátækt - skort á mat, hreinu drykkjarvatni, heil- brigðisþjónustu og húsaskjóli sam- kvæmt skýrslu rannsóknarhóps þróunarstofnunar sem gefin var út í gær. Um 600 milljón barna undir 18 ára aldri skortir einn af fyrrnefnd- um grundvallarþáttum og yfir 350 milljónir skortir tvo eða fleiri af þáttunum. Rannsóknin bar heitið ,,Að alast upp í Asíu“ og hefur það að markmiði að vinna að áætlun um hvernig megi bæta ástandið. 1 skýrsl- unni kom einnig fram að um helm- ingur asískra fjölskyldna hagnast ekki á auknum hagvexti og alþjóða- væðingu. Rannsóknarnefndin sagði ástæð- urnar fyrir því að Asía réði illa við gifurlega fólksfjölgun vera skort á menntun, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti og þá væri stéttamismun- un, máttlaus stjórnvöld og gífurleg spilling einnig þrándur í götu. „I Asíu eru meira en helmingi fleiri börn sem líða alvarlegan skort en á eyðimerkursvæðum Vestur-Afríku“, sagði Michael Diamond, yfirmaður rannsóknarinnar í fréttatilkynn- ingu. „Þetta stærðarhlutfall barna- fátæktar mun hafa alvarleg áhrif á framtíðarhorfur Asíu verði ekki tekist á við vandamálið strax", sagði hann ennfremur. 1 skýrslunni sagði að til þess að berjast gegn fátækt þyrfti alþjóða- samfélagið að minnka fjárstyrki til bænda í Bandaríkjunum, Evrópu og Japan og aflétta skuldum sem nema milljörðum Bandaríkjadala. Þá var talað um að ríkari lönd gætu aðstoð- að með því að greiða hærra verð fyr- ir vörur sem keyptar eru frá þróunar- ríkjum. Rannsóknarnefndin hefur heitið því að veita einum milljarði Bandaríkjadala í að minnka fátækt 12 Asíuríkja næsta áratuginn. ■ Jaruzelski harmar Vorið í Prag Fyrrum forseti Póllands, Wojciech Jaruzelski, hefur í fyrsta sinn beðist afsökunar á þætti sínum í innrás Sovétmanna í Tékkóslóvakíu árið 1968, atburður sem nefndur hef- Wojciech Jaruzelski ur verið Vorið í Prag. Hinn 82 ára gamli Jaruzelski sagðist enn kveljast yfir þeirri ákvörðun sinni að senda pólska hermenn til hjálpar Sovét- mönnum sem hugðust brjóta niður lýðræðisþyrsta mótmælendur í tékk- nesku höfuðborginni. Jaruzelski var varnarmálaráðherra landsins á þeim tíma. Afsökunarbeiðnin kom fram í tékkneskum sjónvarpsþætti um helgina þar sem þess var minnst að 37 ár eru liðin frá innrásinni. „1 dag sé ég ákaflega eftir þessu en á þeim tíma gat ég ekki brugð- ist öðruvísi við. Þetta var pólitísk ákvörðun“, sagði Jaruzelski. „En ég var á þeim tíma sannfærður um að ég væri að gera rétt, út frá þeim upp- lýsingum sem okkur voru færðar", sagði hann ennfremur. Tugir létu lífið í innrásinni sem framkvæmd var af fimm aðildarlöndum Varsjár- bandalagsins. Fjölmargir frjálslynd- ir embættismenn Tékkóslóvakíu voru handteknir, þ.á.m. forsætisráð- herrann Alexander Dubcek. Sovéski herinn yfirgaf ekki Tékkóslóvakíu fyrr en 1991. Tveimur árum síðar, í ársbyrjun 1993, sögðu Tékkar end- anlega skilið við kommúnismann þegar Tékkóslóvakía klofnaði í Tékkland og Slóvakíu eftir hina svo- nefndu „Flauelsbyltingu.“ ■ 16 látnir í flóðum í Rúmeníu Minnst 16 eru látnir í Rúmeníu eftir mikið ofsaveður og flóð þar í landi undanfarna viku samkvæmt innan- ríkisráðherra landsins, Vasile Blaga. Blaga sagði að 9.000 hermenn hafi verið kallaðir út til að aðstoða þá sem hafi orðið illa úti. Yfir 1.400 hafa þurft að yfirgefa heimili sín víðs veg- ar um landið og gífurlegt tjón hefur orðið á eignum. Ófært er um stór svæði, brýr eru eyðilagðar og heilu samfélögin eru rafmagnslaus. Fórn- arlömb flóðanna hafa mörg hver ver- ið börn sem hafa drukknað á götum úti eða í vatnsmiklum ám. Þá létust tveir smalar um helgina þegar þeir urðu fyrir eldingu en mikil hætta stafar af eldingum og rafmagni í slíkum flóðum. I síðastliðnum mánuði létust á þriðja tug manna í flóðum í land- inu og þúsundir heimila urðu fyrir miklu tjóni. Þá flæddi yfir gríðar- stór landsvæði og ræktað land sem mun hafa slæmar afleiðingar fyrir uppskeru landsins. Flóðin í sumar eru þau verstu í Rúmeníu í marga áratugi. ■ SPREÍWmLBOÐ TAKMARKAÐ MAGN www.1928.is Skilrúm 6 vængja, handmálað 1,80x2,40 67% afsláttur. Áður kr. 29.900 Nú kr. 9.900 Tunna 67% afsláttur Áður kr. 2.850 Nú kr. 950 Innskotsborð 70% afsláttur áður kr. 17.500 Nú kr. 5.000 Bókakistlar 50% afsláttur. Stærðl áður kr. 4000 nú 2000 Stærð2 áður kr. 3000 nú 1500 Stærð3 áður kr. 2000 nú 1000 Stærð4 áður kr. 1000 nú 500 M ■ & T r! JLj S\\ V Turnskápur 78% afslát Áður kr. 8.9t Núkr. 1.9* Bastskilrúm m/lérefti 50% afsláttur Frákr. 3.450 Basthilla 5 hillu 50% aísíóttur Áður kr. 4.900 Núkr. 2.450 ■ Basthilla 4 hiilu Áður kr. 3.900 Níufer, 1.351. Hornhilla 4ra hillu 3ja hillu 2ja hillu 50% afsláttur 50% afsláttur 50% afsláttur Áður kr. 3.900 Áður kr. 2.900 Áður kr. 1.900 Nú kr. 1.950 Nú kr. 1.450 Nú kr. 950 Laugavegi 20b • Sími 552 2515 • Auðbrekku 1 • Sími 544 4480 • 10-18 manudaga til föstudaga og 11-16 laugardaga

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.