blaðið - 24.08.2005, Qupperneq 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2005 blaAÍA
HVERS VECNA
/ TÖLVU-
ÖKUSKÍRTEINI?
Europróka
DaUkörkortrt
Hh
Tictotekniíkan osaamisen
EurooppaUinen ykköstodittm
í íuropean Compvter
I Driving Lkence
TÖK er skammstöfun á al-
þjóðlegu prófskírteini sem
vottar tölvukunnáttu þína og
vottar að þú sért tölvulæs.
Það þýðir að þú kunnir að
nýta þér flesta möguleika
tölvunnar og þeirra forrita sem
hvað mest eru notuð við
vinnu og daglegt líf.
TÖK-skírteini er mikill styrkur
á vinnumarkaðinum jafnt hér-
lendis sem erlendis.
TOK NÁMSKEIÐ
TÖK tölvunám er 90 stunda tölvunám hjá NTV sem
bæði er ætlað fyrir byrjendur og þá sem eitthvað
kunna. Námið og kennslugögnin miða að því að
gera nemendum kleift að taka þau 7 próf sem þarf til
að fá TÖK skírteini.
Námsgreinar:
Upplýsingatækni - Windows - Word - Excel
Access - PowerPoint - Póstur - Internetið
MorgunnámskeiÖ:
Byrjar 19. sept. og lýkur 21. okt.
Kennt á mán., mið. og fös.
frákl. 8:30-12:30
Kvöldnámskeið:
Byrjar 12. sept. og lýkur 19. okt.
Kennt á mán. og mið. frá 18 til 22 og
annan hvern laug. kl. 8:30-12:30.
ntv
Hlíðasmára 9 - Kópavogi
UPPL ÝSINGAR OG SKRÁNING I SÍMA 544 4500 OG Á ISITV.IS
Verðmæti
sjávarafla á
Vesturlandi
dróst sam-
an um 40%
Aflaverðmæti íslenskra skipa á
fyrstu fimm mánuðum ársins
nam 31,4 milljörðum króna á
móti rúmum 30 milljörðum á
sama tímabili í fyrra. Aflaverð-
mæti hefur því aukist um 3,7%.
Þetta kemur fram í tölum
frá Hagstofu íslands. Mest
verðmætaaukning varð á karfa
eða tæp 40% og á humri var
hún 62%. Mesti samdrátturinn
varð hinsvegar í verðmæti
skel- og krabbadýraafla sem
dróst saman um 42%. Ef ein-
stök svæði eru skoðuð kemur
í ljós að á Suðurlandi jókst
aflaverðmæti um 21% milli ára
en mesti samdrátturinn varð á
Vesturlandi þar sem aflaverð-
mæti dróst saman um 40%.
Húsasmiðjan:
Umsóknum
rignir inn
„Við höfum tekið við um 60
umsóknum og enn berast fleiri",
segir Guðrún Kristinsdóttir,
starfsmannastjóri Húsasmiðj-
unnar. Húsasmiðjan óskaði eftir
þvi nýverið að eldri borgarar
með reynslu af hinum ýmsu
störfum sæktu um starf hjá fyr-
irtækinu og ekki hefur legið á
svörum.„Þetta er mikið meira
en við bjuggumst við svo að
ég hef ekki ennþá komist í að
fara yfir allt saman. Ég mun
þó gera það í næstu viku og
er ákveðin í því að kalla alla í
viðtal og svara þeim svo innan
mánaðar", segir Guðrún. Hún
segir að einnig þurfi að huga
að því hvernig vöktum verði
púslað saman þar sem margir
óski eftir hlutastörfum. Það
hafi einmitt verið í samræmi
við óskir Húsasmiðjunnar.
Vestnorrœna ráðið:
Nýr formaður
frá Færeyjum
Vestnorræna ráðið hefur kosið
sér nýjan formann, en það er
færeyski lögþingsmaðurinn
Henrik Old. Hann tekur við af
Birgi Ármannssyni, þingmanni
Reykvíkinga, sem gegnt hefur
formennskunni undanfarin
tvö ár. Formannsskiptin urðu á
ársfundi Vestnorræna ráðsins
sem lýkur á ísafirði í dag.
í ræðu, sem Henrik hélt þeg-
ar hann tók við formennskunni,
sagði hann að mikilvægi vest-
norræns samstarfs hefði aukist
fremur en hitt.„Það er erfitt
fyrir örþjóðir eins og okkur að
láta í okkur heyra á alþjóðavett-
vangi“, sagði Henrik en taldi
að með samstöðu þjóðanna
yrði þeim auðveldara að gera
sig gildandi í samfélagi þjóða.
Henrik Old fæddist í Vági
árið 1947 og var aflaskipstjóri
þegar hann var kjörinn á
Lögþingið árið 1984 fyrir jafn-
aðarmenn. Hann hefur gegnt
formennsku í efnahags- og
viðskiptanefnd Lögþingsins frá
1995 og er oddviti Færeyinga
í Vestnorræna ráðinu sem er
samstarfsvettvangur þjóðþinga
Grænlands, Færeyja og fslands.
Ferðumst meira
innanlands en fyrr
„Það virðast allir aðilar sammála um
það, og tölur sýna, að innlendi mark-
aðurinn hefur verið mun meira á
ferðinni en elstu menn muna“, segir
Magnús Oddsson ferðamálastjóri.
„fslendingar eru búnir að uppgötva
að f sland er ekkert síður ferðamanna-
land en önnur lönd.“ Hann segir
ástæður þessa vera margþættar. „f
fyrsta lagi aukin hagsæld sem hefur
leitt til mjög aukinna bifreiðakaupa
og fellihýsa- og hjólhýsakaupa sem
fólk þarf auðvitað að nota.“
Vitundarvakning
Magnús segir að auk þessa hafi orð-
ið ákveðin vitundarvakning gagn-
vart íslandi sem ferðamannalandi.
„Það eru tíu ár síðan við byrjuðum
með átakið fsland - sækjum það
heim, þannig að síðastliðinn áratug
hefur verið mikil áhersla lögð á það
að íslendingar ferðist innanlands."
Að lokum nefnir Magnús aukna
uppbyggingu um allt land sem einn
þátt í þróuninni sem hann kallar
skemmtilega sprengju í innlendri
ferðamennsku. „Það þýðir nefnilega
lítið að hafa góðar samgöngur, góða
bíla og peninga til að ferðast ef mót-
tökuþátturinn er ekki í lagi, þ.e. gist-
ing, afþreying og slíkt.“
Magnús segir að þetta sýni að
markaðssetning á fslandi innan-
lands hafi skilað sér en í byrjun sum-
ars var rúmum fimmtíu milljónum
veitt til þess.
Lögreglan
Aukin gæsla við skóla
Lögregluembætti víða um landið eru
með aukna gæslu við skóla þar sem
margir eru að stíga sín fýrstu skref í
umferðinni þessa dagana. Árni Vig-
fússon, aðstoðaryfirlögregluþjónn
hjá forvarnardeild Lögreglunnar í
Reykjavík, segir þetta með svipuðu
sniði og undanfarin ár. „Það er allt-
af ákveðin gæsla í kringum skólana
allan veturinn en fyrsta hálfa mán-
uðinn eftir skólasetningu er aukin
gæsla á morgnana þegar krakkarnir
eru að koma í skólann. Þetta er til
þess að gera lögregluna sýnilegri við
skólana og svo ökumenn slái af. En
svo tengist þetta líka því að leiðbeina
krökkunum í því að nálgast skólann,
t.d. að fara rétt yflr götur. Þegar líður
á haustið munu laganna verðir svo
fara í skóla til þess að kynna nemend-
um betur umferðina og hvernig haga
beri sér í henni.“
Vacláv Klaus:
Ræddu starfshætti SÞ
Forseti Tékklands, sem hefur verið hér
á landi í opinberri heimsókn, heldur í
dag heim á leið að loknum fundi með
Tékkum búsettum á Islandi á Nordica
hóteli. Dagskrá forsetans hefur verið
þéttskipuð í þessari tveggja daga heim-
sókn og í gær hitti hann m.a. Halldór
Ásgrímsson forsætisráðherra. Á fund-
inum ræddu þeir samskipti ríkjanna
og jafnframt viðskipti landanna
tveggja sem þeir voru sammála um
að auka enn frekar.
Bætum starfshætti Sam-
einuðu þjóðanna
Þá ræddu þeir Halldór og Klaus um
gott samstarf ríkjanna í ýmsum
alþjóðlegum stofnunum, t.d. Sam-
einuðu þjóðunum og Norður-Atlants-
hafsbandalaginu. Voru þeir sammála
um að reyna yrði til þrautar á leiðtoga-
fundi Sameinuðu þjóðanna í næsta
mánuði að komast að samkomulagi
um leiðir til að bæta starfshætti og
skipulag Sameinuðu þjóðanna.
Nokkuð var rætt um samvinnu
Evrópuríkja á vettvangi Evrópusam-
bandsins og á Evrópska efnahagssvæð-
inu, framtíð Evrópusambandsins
miðað við niðurstöður í þjóðarat-
kvæðagreiðslum um stjórnarskrár-
sáttmálann og frekari stækkun, auk
þess sem nauðsynlegt væri að auka
samstarf við ríki Balkanskaga og við
Úkraínu. ■
SKÍ<f*Lm II
ifísP^A
100%
FJaRMöGNUN
á völdum
foílum
BÍLAÞING HEKLU
Aiímer att i imtiuhiiii Ih/iiiii
Kletthólsi 11 Laugavegi 174 sími 590 5040
www.bilathing.is