blaðið - 24.08.2005, Blaðsíða 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2005 ! biaAÍA
Hungursneyðin í Niger
Annan i opin-
berri heimsókn
BÍLAÞING HEKLU
Xúhut all í luHuthun Miun
Kletthálsi 11 Laugavegi 174 sími 590 5040
www.bilathing.is
Dýravernd-
unarsinnar
stela líki
Miklar deilur geisa nú í Staffords-
skíri í Bretlandi á milli búgarðseig-
anda Darley Oaks og dýravernd-
unarsinna en á Darley Oaks eru
ræktaðir naggrísir sem notaðir eru
í hverskyns tilraunir vísindamanna.
Dýraverndunarsinnar hafa lagt í
miklar mótmælaaðgerðir sem sum-
ar hverjar hafa verið ofbeldisfullar.
Þeir hafa til að mynda grafið upp
lík móður eiganda búgarðsins og
þrátt fyrir að níu mánuðir séu liðn-
ir hefur lögreglu ekki tekist að upp-
lýsa málið og líkið er enn ófundið.
Búgarðseigandinn, vinnufólk hans
og þau fyrirtæki sem eiga einhver
viðskipti við búgarðinn hafa öll orð-
ið fyrir árásum þar sem jafnvel hef-
ur verið ráðist inn á heimili þeirra
um miðja nótt. Þrátt fyrir það hefur
ekki fengist nálgunarbann á dýra-
verndunarsinnana. ■
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, er nú staddur
í tveggja daga heimsókn í Afríku-
ríkinu Niger þar sem hungursneyð
geisar. Ríflega tvær og hálf milljón
manna finna með einhverjum hætti
fyrir viðvarandi matarskorti í land-
inu.
Aðstoð berst ekki nógu hratt
Sameinuðu þjóðirnar hafa sent út
hjálparbeiðni til allra helstu neyð-
arsjóða en hafa verið harðlega gagn-
rýndar fyrir að dreifa ekki hjálpar-
gögnum hratt og örugglega. Annan
hittir Mamadou Tandja, forseta Níg-
er, 1 heimsókninni en sá síðarnefndi
hefur verið harðlega gagnrýndur fyr-
ir að gera lítið úr ástandinu í landinu
og tefja þar með fyrir hjálparstarfi.
Á mörkum sjálfbærni
Hungursneyðin nú kemur í kjölfar
uppskerubrests og engisprettufar-
aldurs í fyrra en ekki er von á öðru
uppskerutímabili í Níger fyrr en í
október. Fram að þeim tíma þarf að
tryggja milljónum manna aðgang
að mat og vatni. Hjálparstarfsmenn
segja að búast megi við góðri upp-
skeru því rigningar hafi verið góð-
ar í ár. Til lengri tíma blasir erfitt
efnahagsástand við íbúum landsins
en fram kemur á fréttavef BBC að
almenningur lifi á mörkum sjálf-
bærni. ■
UTS
1/ú
SKATABUÐIN
FERÐAVERSLUN
Faxofeni 8 * 108 Reykjavík • síml 534 2727 • e-mail: skatafaudin@skatabudin.com • www.skatabudin.com
Handtekin vegna
forræðisdeilu
Lögregla í Charlotte í Norð.ur Kar-
ólínu í Bandaríkjunum handtók
hina 48 ára gömlu Nataliu Gibbons
á föstudag eftir að hún neitaði að
afhenda fyrrverandi eiginmanni
sínum tvö börn þeirra sem hann
hafði forræði yfir. Börnin, sem eru
8 og 10 ára, höfðu dvalið hjá móður-
inni þann tíma sem hún hafði tíma-
bundið forræði en þegar hún átti að
skila þeim aftur þvertók hún fyrir
það. Sjálf fullyrðir hún að eiginmað-
urinn fyrrverandi hefði sýnt þeim
klámmyndir og misnotað þau á ýms-
an hátt. Það vekur athygli að þetta
er í annað skipti á stuttum tíma sem
Natalie Gibbons er handtekin vegna
málsins en þann 11. ágúst var hún
handtekin en sleppt aftur án þess
að krafist væri tryggingar. Núna
er hins vegar búið að krefjast einn-
ar milljóna dollara tryggingar, eða
sem svarar 65 milljónum íslenskra
króna, og hefur hún ekki efni á þvi
að leggja þá peninga fram og þarf
því að dúsa í fangelsinu áfram þar
til mál hennar verður tekið fyrir.
Forræðisdeila Gibbons hjónanna
hefur staðið yfir í þrjú ár og hafa all-
skyns ásakanir um vanrækslu kom-
ið fram og hefur málið vakið mikla
athygli í Karólínuríki. ■
Barátta viB skógarelda i Portúgal heldur áfram og var þessi mynd tekin í útjaðri borgar-
innar Caminha í norðurhluta landsins. Eldarnir hafa kostað að minnsta kosti 14 manns líf-
ið og hafa Frakkar, Hollendingar, ftalir og Spánverjar sent liðsafla og tæki til að berjast
við eldana eftir að stjórnvöld í Portúgal sendu út hjálparbeiðni um helgina.
Danmörk
Klamydíufaraldur
meöal ungmenna
Hjá frændum vorum Dönum hafa
menn miklar áhyggjur af því að
fjölgun klamydíutilfella sé orðin
það mikil að kalla megi faraldur.
Mun fleiri smitast af kynsjúkdómn-
um nú til dags en gerðu fyrir fáum
árum síðan og blása menn nú í her-
lúðra til þess að berjast gegn vanda-
málinu með áróðursherferðum.
Miðað við að árið 1994 voru ný-
smitaðir tæplega 14 þúsund manns
á móti 21.500 tilfellum í fyrra er
talað um að sprenging hafi orðið í
þróuninni. Sérfræðingar óttast að
allt að 50 þúsund Danir gætu verið
smitaðir af sjúkdómnum án þess að
vita af því.
Á næstu vikum verður ýtt úr vör
áróðursherferð um landið allt sem
á að benda ungmennum á sjúkdóm-
inn og skaðsemi hans. Samtímis
verða send út klamydíupróf í Frið-
riksborgaramti til um níu þúsund
20 og 21 árs ungmenna en með þeim
er hægt að sjá hvort einstaklingur
er smitaður með þvagprufu líkt og
gert er í þungunarprófum.
Veldur ófrjósemi
Klamydía herjar í langflestum til-
fellum á ungt fólk á aldrinum 18 til
25 ára og fái þeir sýktu ekki rétta
meðhöndlun er hætt við ófrjósemi.
Sökum þess telja heilbrigðisyfirvöld
í Danmörku að klamydía sé orsök
tæplega 500 þeirra tilvika þegar
ófrjósemi er greind og 320 utanlegs-
fóstra. Þábenda sænskar rannsóknir
til þess að klamydía geti einnig gert
það að verkum að karlmenn eigi í
erfiðleikum með að eignast börn.
Kunna að lesa
Sérfræðingar eiga erfitt með að út-
skýra hvers vegna dregist hefur úr
smokkanotkun en hún er nú álíka
mikil og hún var á áttunda áratugn-
um. Samkvæmt Lars 0stergaard,
yfirlæknis á sjúkrahúsinu í Skejby,
er orsökina ekki að finna í því að
ungmenni viti ekki nóg um kynsjúk-
dóma og forvarnir gegn þeim. „Þau
eru jú ekki ólæs. Þau vita ósköp vel
að smokkar eru vernd gegn kynsjúk-
dómum“, segir hann. 0stergaard
telur að ungmennin noti sífellt oftar
vímuefni á borð við e-töflur og am-
fetamín sem valdi því að þau komist
í ástand þar sem þau gleymi öllu og
noti ekki smokka. ■