blaðið - 24.08.2005, Síða 13
blaðiö MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2005
Kindin Dolly sem var svo eftirminnilega klónuð.
Byltingarkennd
aðferð mun
útrýma klónun
Wú er hægt að endurrita frum-
ur úr fullorðnum einstak-
lingum til fósturstigs þann-
ig að þær geti myndað allar tegundir
líkamsvefja. Þessi aðferð getur kom-
ið í stað klónunar sem er siðferðis-
lega röng að margra mati.
Þessi tækni getur hugsanlega
orðið til þess að vísindamenn geta
loksins gert staðgengilsvefi, sem
eru klæðskerasaumaðir fyrir sjúk-
linga sem þjást af sjúkdómum eins
og Parkinson eða sykursýki, án
þess að nota til þess klónaða fóst-
urvísa.
Um leið og þessi aðferð verður
fullkomnuð verður hægt að nota
hana til þess að endurforrita húð-
frumur sjúklingsins með því að
blanda þeim saman við fóstur-
stofnfrumur og búa þannig til nýj-
ar slíkar sem innihalda erfðaefni
sjúklingsins.
Þessar frumur sem verða til við
þessa blöndun eru síðan notaðar
til að þróa þær frumur sem þarf til
að endurnýja sýkta eða skemmda
vefinn. Allt þetta þarf að gera á
mjög nákvæman og öruggan hátt
þar sem öll erfðamengi þurfa að
vera nákvæmlega eins til að ónæm-
iskerfið hafni ekki nýju frumun-
um.
Ef þessi tækni gengur upp eins
og vísindamenn vonast til verður
því engin þörf fyrir að rækta fóst-
urvísa til að fá erfðaefni fyrir þá
sem eru veikir. Því munu þeir sem
hafa mótmælt klónun á þeim sið-
ferðislega grundvelli að lífið byrji
við getnað fá uppreisn æru. ■
MSG í barnamat
í gær birtist grein um MSG í barna-
mat en þau leiðu mistök urðu við
vinnslu blaðsins að röng grein birt-
ist. Hér er rétta greinin.
Stuttu eftir að matvælafyrirtæk-
ið Gerber, sem flestir þekkja fyrir
barnamat í krukkum og í duftformi,
var stofnað stuttu eftir 1950 fóru
framleiðendurnir að bæta MSG, eða
„þriðja kryddinu", við barnamatinn.
MSG er efni sem dregur fram bragð
af öðru í matnum og gerir hann
bragðbetri. Hins vegar befur kom-
ið í ljós að MSG er alls ekki hollt og
mikið hefur dregið úr neyslu þess
undanfarin á r vegna rannsókna sem
benda til þess að það valdi ofnæmi
og öðrum sjúkdómum. Það sem er
sláandi við það að Gerber hafi notað
MSG er að ástæðan var ekki að láta
matinn bragðast betur fyrir börnin
heldur mæðurnar. Þeir höfðu áttað
sig á því að mæðurnar smökkuðu
matinn áður en þær gáfu börnun-
um sínum hann og ef þeim fannst
hann góður voru meiri líkur á að
þær keyptu hann aftur. Þetta var
gert frá því að Gerber var stofnað og
þar til á áttunda áratugnum. Þá var
gerður sáttmáli um það að MSG yrði
fjarlægt úr barnamatnum þar sem
heilbrigðislög sögðu svo um.
Jón Nordal
Islandsmeistari
Landsbankinn
410 4000 landsbanki.is
VISA
Electron
Faröu inn á landsbanki.is og búöu til þitt eigið kort.