blaðið - 01.09.2005, Blaðsíða 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2005 blaöið
Kaup Eimskips á Daalimpex
Flutningsmagn tvöfaldast
Eimskip, dótturfélag Avion Group,
hefur gengið frá kaupum á meiri-
hluta hlutafjár í frystigeymslufélag-
inu Daalimpex Beheer B.V. í Hol-
landi. „Ástæðan fyrir kaupunum
er einföld, þetta er gott fyrirtæki
og það stærsta í Hollandi á sínu
sviði. Það fellur líka vel að þeirri
stefnu sem við erum að fylgja hjá
Eimskipi“, segir Baldur Guðnason,
forstjóri fyrirtækisins.
25-falt geymslupláss
Daalimpex er eitt stærsta frysti-
geymslufyrirtæki Evrópu. „Ef við
setjum þetta í samhengi þá er Eim-
skip með tvær frystigeymslur á
íslandi sem rúma í kringum sjö
þúsund tonn meðan geymslur Daa-
limpex í Hollandi rúma 220 þúsund
tonn“, segir Baldur. Því hefur Eim-
skip um 25 faldað geymslupláss sitt.
, Við erum komin með eitt öflugasta
fyrirtæki Evrópu sem meðhöndlar
allar gerðir frystivöru, ávexti, græn-
meti, kartöflur, kjöt, fisk og svo
framvegis. I gegnum Daalimpex
fara um milljón tonn og það sama
hjá Eimskip þannig að við erum að
tvöfalda þessi umsvif. Við erum líka
að víkka okkar vöruúrval, ef þann-
ig mætti segja, þar sem við höfum
hingað til aðallega flutt og geymt
fiskivörur."
Kaupverð ekki uppgefið
Baldur vill ekki gefa upp kaupverðið
og segir það trúnaðarmál milli kaup-
anda og seljanda. Þó fylgja allar
fasteignir og lóðir Daalimpex með í
kaupunum og eru þær metnar á um
71 milljón evra, eða tæpan fimm og
hálfan milljarð króna. Heildarvelta
félagsins í flutningaþjónustu utan
áætlanasiglingakerfisins mun verða
um 9 milljarðar króna samkvæmt
tilkynningu. Hjá Daalimpex starfa
um 120 starfsmenn.
Frá undirskrift kaupsamnings í gær.
Lokaútkall í næstu viku
TaKrt»arK®d
tramboö,,,
fvrsturKenurt- ^
Y u ■
Verð á mann
34.900
kr. í viku*
♦Netverð á mann á ofangreinda áfanga- og gististaði.
Verð er óháð fjölda í íbúð, en lágmarksfjöldi í íbúð er 2.
innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting Í7 nætur og íslensk fararstjórn.
Ef bókað er á skrifstofu eða símleiðis bætist við 2.000 kr. bókunar- og
þjónustugjald á mann.
y*
Bókaðu strax
á www.urvalutsyn.iswww.urvalutsyn.is
Vöruskiptahallinn
tvöfalt meiri
en í fyrra
Islendingar fluttu inn vörur fyrir
tæpa 24 milljarða króna í síðasta
mánuði. Á sama tíma voru fluttar
út vörur fyrir tæpa 14 milljarða og
voru vöruskipti því óhagstæð um
rúma 10 milljarða króna. I sama
mánuði í fyrra var vöruskiptahall-
inn hinsvegar 5,6 milljarðar. Þetta
kemur fram í tölum sem Hagstofa
Islands birti í gær.
Ef fyrstu sjö mánuðir ársins eru
skoðaðir sést að búið er að flytja inn
vörur fyrir rúma 159 milljarða króna
á móti útflutningi upp á tæplega 112
milljarða. Halli á vöruskiptum við
útlönd eru því um 47,5 milljarðar á
fyrstu sjö mánuðum ársins sem er
um helmingi meiri vöruskiptahalli
en á sama tímabili í fyrra.
Sjávarafurðir 60% alls útflutnings
I Morgunkorni Islandsbanka segir
um málið að lítill útflutningur sjávar-
afurða hafi þarna mikil áhrif sem og
viðvarandi aukning á innflutningi
varanlegra neysluvara og hækkun á
eldsneytisverði.
Hagstofan bendir á að aukning
hafi orðið í flestum liðum innflutn-
ings. Mest aukning hafi hinsvegar
orðið í innflutningi á flutningatækj-
um, sérstaklega fólksbílum sem og
fjárfestingavöru, hrá- og rekstrar-
vöru og eldsneyti.
Segir Hagstofan ennfremur að
sjávarafurðir hafi verið 60% alls
útflutnings og var verðmæti þeirra
4% meira en á sama tíma í fyrra. Út-
fluttar iðnaðarvörur voru 34% alls
útflutnings og var verðmæti þeirra
2,5% meira en árið áður. Aukning
varð í útflutningi á ferskum og fryst-
um fiski og áli en samdráttur varð
í útflutningi á frystri rækju, lyfjum
og lækningatækjum.
Mikiö er flutt inn af bílum um þessar
mundir sem hefur mikil áhrif á vöruskipta-
jöfnuð
Mótorhjóladella
hrjáir landann
Mjög mikið hefur verið
flutt inn af mótorhjólum
það sem af er þessu ári. Um
miðjan ágúst voru næstum
1.400 mótorhjól komin til
landsins frá áramótum en til
samanburðar voru fyrir um
3.000 hjól í landinu. Þetta
kemur fram í tímaritinu Bílar
og sport sem kemur út í næstu
viku. Þar segir ennfremur að í
fyrra hafi um 440 manns aflað
sér réttinda á mótorhjól og
höfðu aldrei fleiri tekið próf
á einu ári. Frá áramótum nú
hafa hinsvegar tæplega 550
manns tekið slíkt próf og því
ljóst að það met verður slegið
með glæsibrag þetta árið.
FJÖLBREYTT ÚRVAL AF MYNDVÖRPUM FRÁ 79.900 KR
Fagleg ráðgjöf sérfræðinga
ASKC110
Fyrir fundarherbergið og heimabióið
• SVGA 800x600 upplausn.
• 1500 Ansi Lumen.
• Lampaending 4000 klst.
• DLP myndtækni.
• VGA, S-Video, hljóð inngangur.
• Tveggja ára ábyrgð
Tilboðsverð 79.900 kr.
Verð 99.900 kr.
IIIIIIIIII „
';* v ' i t JmxÞ? ■
NEC LT245
Hiaðinn tæknilegum nýjungum
• XGA 1024x768 upplausn.
• 2200 Ansi Lumen.
• Lampaending 4000 klst.
• DLP myndtækni.
• 2 x VGA inngangar, monitor out, audio out.
• Þriggja ára ábyrgð.
Tilboðsverð 239.900 kr.
Verð 259.900 kr.
0
*
Sony VPL-CX70
Glæsilegur myndvarpi í fundarherbergið
• XGA 1024x768 upplausn.
• 2000 Ansi Lumen.
• Lampaending 3000 klst.
• LCD myndtækni.
• VGA, sideshot, hljóö inngangur.
• Þriggja ára ábyrgð.
Tilboösverð 159.900 kr.
Verð 179.900 kr.
Toshiba T40
Hagkvæmur fyrir tjald og rafræna töflu
• XGA 1024x768 upplausn.
• 1800 Ansi Lumen.
• Lampaending 3000 klst.
• DLP myndtækni, monitor out, audio out.
• 2 x VGA inngangar,
• Tveggja ára ábyrgð.
Tilboösverð 134.900 kr.
Verð 149.900 kr.
NÝHERJI
Nýherji hf. • Borgartúni 37 • 105 Rcykjavík • Sími 569 7700 • www.nyhcrji.is