blaðið

Ulloq

blaðið - 01.09.2005, Qupperneq 6

blaðið - 01.09.2005, Qupperneq 6
6 I IAINLENDAR FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2005 blaöiö Uppgjöt- Icelandic Group veldur vonbrigðum Töpuðu 500 milljónum á þremur mánuðum Tap Icelandic Group hf. á öðrum ársfjórðungi nam 502 milljónum króna en á sama tímabili í fyrra var rúmlega 90 milljóna króna hagnað- ur á rekstri fyrirtækisins. Fyrirtæk- ið sendi frá sér sex mánaða uppgjör í gær og þar segir að ástæða tapsins sé að m.a. að afkoma í Bandaríkj- unum hafi verið verulega undir áætlun sem og að kostnaður vegna sameiningar við Sjóvík ehf. hafi ver- ið verulegur. Ef reksturinn á fyrstu sex mánuð- um ársins er skoðaður kemur í ljós að verulegur viðsnúningur hefur orðið á rekstri fyrirtækisins. í fyrra var það rekið með um 326 milljón króna hagnaði en í ár er tap á rekstr- inum upp á 311 milljónir króna. f áliti greiningadeildar Lands- bankans í gær segir að þrátt fyrir að velta fyrirtækisins á fyrri hluta árs- ins hafi verið yfir væntingum hafi uppgjörið í heild sinni verið undir væntingum. Segir greiningadeildin að afkomuspá fyrir árið verði tekið til endurskoðunar í kjölfarið. ■ Leiðrétting Einstceðir foreldrar með mörg börn Ódýrara að sleppa vinnunni en að senda börnin áfrístundaheimili eftir að skóla lýkur Kostnaður vegna frístundaheimila reynist foreldrum með mörg börn erfiður Ijár í þúfu. Dæmi eru um að einstæðir foreldrar með þrjú börn veigri sér við því að vinna eftir hádegi þar sem kostnað- ur við að senda börnin á frístunda- heimili að loknum skóla vex þeim í augum. Hagkvæmara sé að vinna hlutastarf fyrir hádegi og sjá síðan um börnin þegar heim er komið. Að- alástæða þessa er niðurfelling systk- inaafsláttar í nýjustu breytingu á verðskrá. Soffía Pálsdóttir, æskulýðsfulltrúi ÍTR, segir að breytingarnar hafi átt að þóknast meirihlutanum. „Það var mikið kurr fyrir breytinguna en í könnunum hefur engin óánægja komið fram.“ Enginn afsláttur veittur „Það var tekin sú ákvörðun að bjóða upp á eitt gjald, sama hvort um systkini, einstæða foreldra eða annað væri að ræða. Samfara þess- um breytingum var gjaldið lækkað mikið í fyrra“, segir Anna Kristins- dóttir, formaður ÍTR. Með þessu hafi skipulag orðið mun þægilegra þar sem ekki þurfti að velja fyrir- fram ákveðinn tímafjölda og fleira í þeim dúr. Nú er það svo að fast gjald fyrir hvert barn er 7.150 krónur á mánuði og enginn afsláttur veitt- ur. „Gamla fyrirkomulagið gerði okkur erfitt fyrir þar sem við ráðum starfsfólk í hlutastörf þannig að nið- urstaðan varð sú að við ákváðum að greiða meira með þessu og hafa bara þetta eina gjald. Það er þá ekki með neinum sérstökum niðurgreiðslum, hvorki fyrir einstæða foreldra né erum við með systkinaafslátt", seg- ir Anna og bætir við að engar fyrir- spurnir um að þetta þyki óeðlilegt hafi borist henni. Möguleikar á styrkjum Þá segist Anna efast um að það séu mjög mörg dæmi um að einstæð- ir foreldar séu í fullri vinnu með þrjú börn á þessum aldri. Þar fyrir utan bendir Anna á að efnaminna fólk eða aðrir sem sjá sér ekki fært að greiða frístundaheimilin, íþrótta- iðkun eða annað svipað fyrir börn- in sín geti sótt um styrki til þessa. ,Fólk getur fengið styrk ef það vill og er tekjulágt og þetta er því fjárhags- lega erfitt.“ Almennt telur Anna að ánægja sé með þjónustuna sem frístundaheim- ilin bjóða upp á. „Við sjáum það á könnunum sem gerðar eru árlega að þeir sem nýta sér þessa þjónustu eru mjög ánægðir.“ Anna bendir á að þrátt fyrir að þjónustan sé ekki lög- bundin sé hún niðurgreidd verulega af borginni á hverju ári. Hún sé til staðar svo fólk með börn geti verið á vinnumarkaðinum. ■ Fátæktin verður helst upprætt með því að leyfa fólki að efnast - segir Julian Morris framkvæmdastjóri International Policy Network Þau leiðu mistök urðu í Blaðinu síðastliðinn þriðjudag að röng feril- skrá var birt með frétt um að Ragn- heiður Bragadóttir hafi verið skipuð dómari við héraðsdóm Austurlands. f lögfræðistéttinni eru tvær Ragn- heiðar Bragadætur og var tekin fer- ilskrá þeirrar sem er prófessor við Háskóla íslands. Hið rétta er að nýskipaður dómari útskrifaðist frá Menntaskólanum að Laugarvatni 1983 og lauk lagaprófi frá Háskóla Islands 1989. Frá árinu 2002 hefur Ragnheiður starfað sem sjálfstætt starfandi lögmaður. Hún sat í stjórn Lögmannafélags Islands frá 2003 til 2005, þar af var hún vara- formaður frá 2004. Blaðið biðst vel- virðingar á mistökunum. Julian Morris er framkvæmda- stjóri stefnumótunarstofunnar Internat ional Policy Network, en hann var einn fyrirlesara á ráðstefnu RSE um eignarrétt og framtíðina í liðinni viku. Umfjöll- unarefni hans var fyrst og fremst fátækt í heiminum og hvernig mætti uppræta hana. Lykilinn að því göfuga markmiði taldi hann vera að tryggja eignarréttinn og veldi laganna. „Við búum við þau gæði í hinum vestræna heimi að fyrirbæri eins og eignarréttur, réttarríkið og annað af því taginu er snar þáttur í okkar daglega lífi, svo snar þáttur að við göngum að honum vísum. Fyrir vikið erum við stundum værukær þegar gengið er á þessar sjálfsögðu stofnanir samfélagsins. Það gerist enda ekki með þeim hætti að ráð- ist sé á þær, heldur saxast smám saman á þær á ýmsum sviðum og yfirleitt alltaf af góðum ásetningi", svarar Julian. Skipulagslög skerða eignarrétt ,Á Englandi höfum við t.d. horft upp á það hvernig gengið hefur ver- ið á eignarrétt manna með skipu- lagslögum. Þau leggja ýmsar höml- ur á eignarréttinn og skaða hann um leið. Vegna þeirra geta menn oft ekki nýtt eignir sínar á þann hátt, sem þeir kjósa, verðmat eignanna skekkist eftir ákvörðunum eða hug- dettum nefnda og ráða og eðlileg þróun nær ekki fram að ganga.“ Með þessu telur Julian Morris að menn hafi nánast óafvitandi horf- ið aftur til lénskerfisins, þar sem menn byggi eignir sínar á tiltekn- um réttindum í þágu hins opinbera. „Þannig getur eignastaða manna oltið að verulegu leyti á því hvað yf- irvöldum - oft ókjörnum - þóknast hverju sinni og með þeim hætti vík- ur veldi laganna fyrir veldi manna“, segir Morris og bætir við að með því opni menn sjálfkrafa fyrir spill- ingu. Hann minnir jafnframt á að af- leiðingarnar geti orðið mun afdrifa- ríkari til langs tíma litið fyrir samfé- lagið allt. „ Auðvitað hefur það áhrif á byggðaþróun ef aðeins er byggt þar sem núverandi sveitarfélög kjósa. Þannig verður sérstaklega ólíklegt að ný þorp og bæir myndist þar sem þeirra er þörf og fólk kýs að búa“, segir Julian. „I staðinn fyrir að bæir rísi og hnígi í samræmi við óskir fólks til þess að búa þar stýrist byggðaþróun af duttlungum stjórnmálamanna og skriffinna þeirra." Hún er komin... leJ'slmsI Eftir ævintýraför á sjó og landi er Ætigaröurinn - handbók grasnytjungsins loksins komin íbúðir og lent beint á metsölulista. Álfarnir töfðu för hennar enda sjálfsagt hræddir um að við tiieinkum okkur fræðin, tínum ber og plöntur út um allar þorpagrundir og étum þá út á gaddinn. Að öllu gamni slepptu þá er Ætigaröurinn stórfróöleg og bráðskemmtileg bók, - sem allir hafa gagn og gaman af. ■ CSfc/' 93rðurinn Ætigaróurínn, handbók grasnytjungsins - bók sem bindur þig álögum sli” Bókaútgáfan Salka Ármúla 20, 108 Reykjavík I slmi: 552-1122 I Fax: 552-8122 I salkaforlag.is Fátæktin upprætt Það sjónarmið hefur reglulega heyrst að eignarréttur einstaklinga og frjáls verslun tilheyri hinum vest- ræna hugmyndaheimi en henti ekki endilega annars staðar. Julian Mor- ris furðar sig á að þessari skoðun sé enn hreyft á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og víðar. „Julius Nyerere var velmeinandi einræðisherra í Tanzaníu og hann hélt sig mjög við þessa skoðun og reyndi að koma á afrískum sósíalisma. Afleiðingin var afskaplega fyrirsjáanleg fátækt heillar þjóðar að valdastéttinni und- anskilinni. En ef menn vilja tryggja almenningi allsnægtir er lykillinn að því að koma á öruggum eignar- rétti og veldi laganna. Allt annað er nánast ávísun á örbirgð. En það er samt svo skrýtið að allir hafa áhyggj- ur af fátækt og vilja uppræta hana. Flestir líta hins vegar framhjá hinni augljósu lausn, sem er að gefa fólki færi á því að efnast af eigin ramm- leik.“ ■ Rannsóknastofnun um samfélags- og efnahagsmál: Eignarréttur og frjáls viðskipti varða samfélagið miklu - segir Birgir Tjörvi Pétursson framkvœmdastjóri Það var nýstofnuð Rannsóknar- stofnun um samfélags- og efna- hagsmál (RSE), sem stóð fyrir ráðstefnunni um eignarrétt og framtíðina. Framkvæmdastjóri stofnunarinnar er Birgir Tjörvi Pétursson, en í viðtali við Blaðið telur hann ekki vanþörf á faglegri umræðu um samþáttun samfé- lags- og efnahagsmála. „Markmið stofnunarinnar með ráðstefnunni var að efla skiln- ing á mikilvægi eignarréttar og frjálsra viðskipta fyrir samfélagið, en með því vonumst við til þess að gera umræðuna málefnalegri en hún hefur verið á stundum“, segir Birgir Tjörvi. „Aðspurður um stofnun RSE segir Birgir Tjörvi að aðstandend- ur hennar hafi talið vöntun á því að fjallað væri um mál af þessu tagi á faglegan hátt og í samhengi. „Að stofnuninni koma menn úr háskólasamfélaginu og atvinnulíf- inu og markmiðið er það að eiga Birgir Tjörvi Pétursson, framkvæmda- stjóri RSE. vettvang til þess að setjast niður og ræða málin frá öðru sjónar- horni en gert hefur verið.“ Fyrrnefnd ráðstefna var fyrsta verkefni RSE en í framtíðinni er fyrirhugað að leggjast í frekara rannsóknastarf, útgáfu og annað slíkt. Formaður rannsóknaráðs RSE er Ragnar Árnason prófess- or við hagfræðideild Háskóla ís- lands. Erum að taka upp nýjar vörur NýbýlavegJ 12 • 200 Kópavogi Sími 554 4433 Opnunartími mán - föst. 10 -18 iaugarciaga 10-16

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.